Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1904, Qupperneq 4

Æskan - 01.06.1904, Qupperneq 4
72 Smáveg’ie. Á héraðsfundi í sveit einni stóð einn fundarmanna upp og sagöi: ,,Herrar minir! nú höfum vér um langan aldur sent fábjána vora og brjálaða menn á vitfirringaspítalann í höfuðborg- inni, og hefur það kostað oss öll ókjör, en nú hef eg þau gleðitiðindi að færa, að vór höfum nú innanhóraðs bygt vitlausra- spítala handa sjálfum oss“. Hér hætti hann alt í einu að tala og leit vandræðalega í kring um sig, þvi hann gat ekki skilið í, hvers vegna aliir fundar- menn veltust um að hlæja. Anna (við systur sina): heyrðu Sigga, það er einhver ókunnugur kominn. Sigga: Svo! Afhverju veiztu það? Anna: Jeg heyrði að pabbi sagði: „Elsk- an mín!“ við hana mömmu. Talgáta. 1. 4. 2. Hrafni dýrmætt þykir þing þykir enda flestum 2. 3. 5. Hornsteinn fyrir hagyrðing 1. 2. 3. 4. 5. Heiti á mörgum prestum. I. iv. r. * |gl£arnir. (Eftir L Tíeck). „Hvar er hún María okkar, telpuhnokk- inn litli ?“ spurði faðirinn. „Hún er að leika sór við soninn hans nábúa okkar, þarna úti á grænu flötunni", svaraði móðirin. „Bara að þau hlaupi ekki eitthvað i gön- ur“, mælti faðirinn áhyggjufullur, „þau eru svo ógætin", Móðirin fór nú eftir börnunum og færði þeim miðaftans-getuna þeirra um leið. „Það er heitt“, sagði drengurírn ogiitla stúlkan seildist áfeigjulega eftir kirsiberj- unum rauðu. „Farið þið varlega, börn!“ mælti móðirin „hlaupið ekki oflangt frá húsinu eða inn í skóginn; við pabbi ætlum út á akrana ogengið". Andres litli, — svo hét drengurinn, — svaraði: „Vertu bara ó- hrædd, því ekki förum við inn i skóginn, við sitjum hérna kyr hjá húsinu þar sem menn eru í nánd“. Móðirin fór inn og kom fijótt út aftur með manni sínum. Þau læstu aftur hús- inu, fóru svo til vinnumannanna út á akur og til þeirra, sem við heyvinnu voru á enginu. Hús þeirra hjóna stóð á lítilli grænni hæð með snotuiri rimlagirðingu umhverfis, og innan hennar var einnig á- vaxta- og blómstragarður þeirra; þorpið lá niðrí slakka og hinu megin við það gnæfði greifahöllin. Marteinn bóndi hafði til ábúðar stórjörð þá, er iá undir greifa- höllina, og bjó þar góðu búi með konu sinni og elnkabarni og undi vel hag sín- um, því honum græddist fó á ári hverju

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.