Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Blaðsíða 6

Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Blaðsíða 6
4 Sam&ming alþýðunnar Þuríður Friðriksdótlir: Fyrsti maí Þegar ég heyri þessi orð, detta mér jafnan 1 hug hinar gullfallegu vísur Þorsteins Erl'ngssonar, þar sem hann fagnar 1. maí, langþráðu vori, — lofar þröstunum, vinum sínum, sumri — loks- ins eftir allan ís og hret. »Þá er stundin«. Var það ekki eitthvað í. undirvitund þessa ódauðlega skálds og jafnaðar- manns, sem blés honum; því í brjóst, að einimitt. þessi dagur yrði helgaður öreig- um allra landa, að hin kúgaða stétt fylkti liði gegn arðráni. kapitalismans, — heimtaði rétt sinn, meiri atvinnu, hærra kaup, hollar íbúðir, meiri fræðsiu, réttlátt þjóðskipulag. Veturinn ræður ríkjum;.. Hvernig get- um við unað við það ástand, sem nú rí.k- ir meðal okkar, að nokkrir menn lifa í auði og óhófi, en alþýðan, mikill meiri hluti þjóðarinnar, berst í bökkurn eða lifir í sárustu neyð? Á þessum hátíð:s- og kröfudegi alþýð- unnar skal kjörorð ckkar vera: Sundr- ung víki, sameining ríki. Því að sannleikurinn er og verður, að enginn munur finnst á Alþýðuflokks- manni og kommúnista, þega,r báðir vinna að sama marki, sigri, sósíalismans á lýðræðisgrundvelli. öreiginn hefur allt að vinna, en engu að tapa nema, hlekkj- unum. Fyrsti maí! færðu osb í d:ag: Frelsi, eining, kærleik, bræðralag. fylkingarmanna að gera það, sem auðið er, til þess að lækna sjúklega úlfúð og fexrtryggni, sem skapazt, hefur á síðústu árum milli ýmsra góðra manna, sem í verunni eiga, sam.leið, slétta úr ýmsum ójöfnum, sem, koma í veg fyrir, að þjóð- hollir kraftar geti sameinazt um lausn hinna mikilvægustu velferðarmála. Sú stjórnmálabarátta, sem, gerir fram- tak einstaklingsins til einkaauðsöfnunar og arðnýtingar á annarra vinnukrafti að takmarki. og gleðiboðskap, er aðeins til- raun til að vekja upp dra,ug frá fortíð- inni og hlýtur á þessari öld að særa fram gegn sér alla heilbrigða krafta, svo fremi þeir njóti frelsis í landinu, það er róð- ur gegn aldarandanum, gegn straumi tímans, gegn siðgæðistilfinningu þess mannkyns’,, sem nú er uppi. En það fram- tak einstaklingsins', sem, leyft er að njóta sín í skynsamlegu hlutfalli við umráð og eignarétt almennings á framleiðslugögn- unum, getur á tí.mamótum, eins og þeim, er vér stöndum á, verið eðlilegur þáttur í þróuninni. f öllum flokkum eru menn, sem er þetta ljóst. Hið háleita, hlutverk okkar samfylkingarmanna er að sam- eina alla þjóðholla krafta, s etta þá og skipuleggja til sem, jákvæðastrar starf- semi í þágu almennings í. landinu.

x

Sameining alþýðunnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameining alþýðunnar
https://timarit.is/publication/397

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.