Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Síða 7
Sameining alþý&wnnar
Héðinn Valdimarsson:
Sameiniiigm
Aljaýðan á Islandi stendur nú á vega-
mótuim'. Eftir 21 árs göngu upp brekk-
una hefur Alþýðuflokkurinn á margvis-
legan hátt ef'lt stéttarsamtök verkalýðs-
ins, stuðlað að byrjun neytendasamtaka
í bæjunum, komið á samvinnufélögum
um byggingar, skapað sér fylgi um land
allt og hrundið fram. margvíslegri lög-
gjöf og stjórnarráðstöfunum til hags-
bóta alþýðunni, þrátt fyrir þann klofn-
ing, sem hefur verið innan verkalýðsins
milli kommúnista og Alþýðuflokks-
manna.
En fyrir ári síðan var sýnt, að vega-
skil voru komin. önnur leiðin, sú auð-
farnari, lá ofan í móti, stefndi að því
að halda því sem unnið var, og fara
ekki lengra en hægfara öflin í Fram-
sóknarflokknum vildu, láta J)au ákveða
hraðann og leiðina, vera í varnaraðstöðu.
Hin leiðin liggur áfram upp brekkuna
sömu stefnuna, í. áttina, til sósíalismans,
.stefnumiarks allra alþýðuflokka.
En til þess að fara, þá leiðina, þarf
stærri átök, meira fjöldafylgi, samein-
ingu verklýðsflokkanna í einn sósíalist-
ískan lýðræðisflokk. Margt hefur greint
á með Alþýðuflokksmönnum og komm-
únistum. Aðalyfirbragð beggja flokk-
anna. er þó eitt og hið sama. Þeir eru
sósialistiískir flokkar, en ekki borgara-
legir, og vinna að sarna stefnumarki, en
því marki ná þeir ekki fyr en þeir geta
sameinað al])ýðuna í einn flokk — sam-
einað alla sósíalista í. einn flokk.
Um þetta hefur ágreiningurinn J)ó orð-
ið í Alþýðuflokknum. Vinstri armurinn
og nálega öll stærstu verklýðsfélögin
5
VÁ
hafa ákveðið sig með sameiningu alþýð-
unnar, hægri armurinn er orðinn þreytt-
ur og kýs friðinn við borgaralegu flokk-
ana, umfram alla sameiningu, sem enn
gæti, kostað nýja harða baráttu.
Fyrsta maí. fylk.ja verklýðstfélög
Alþýðusambandsins sér saman hér í
Reykjavík og víðar um landið, minnast
liðinnar baráttu og setja fram kröfur
sínar og slefnumörk. Fyrsta maí fylkir
reykvísk aljíýða sér í sameiningargöngu,
Alþýðuflokksmlenn og kommúnistar, —
sósíalistarnir, — og heita ])ví að tryggja
eiirnguna svo, að hún rofni ekki aftur,
og skapaður verði að hausti sameinaður
íslenzkur sósíalistískur lýðræðisflokkur,
sem stefni markvisst að því að alþýðan
ráði landinu, sem hún býr í, og marki
sjálf lífskjör sín og stjórnarhætti, komi
á sósíalistísku þjóðfélagi.
Heróp fyrstu sósíalistanna í heimin-
urai var: öreigar í, öllum löndum samein-
izt. Nú eru sterkustu raddirnar,
sem kveða við í íslenzkum stjórnmálum
milli fjalls og fjöru: Alþýðumenn á Is-
landi sameinizt. Alþýðumenn í öllum
löndum sameinizt!