Valsblaðið - 24.12.1959, Side 10
6
VALSBLAÐIÐ
að minningarnar þaðan eru varan-
legri.
Ég verð að segja, að ég hef trú
á strákunum, og að þeir koma til.
Ert þú ánægður með það, sem af
er vetrinum?
Ekki get ég annað sagt, en það
er þó eins og það vanti herslumun-
inn í þetta hjá okkur, eins og sést
á því, að í meistaraflokki karla
höfum við gert þrjú jafntefJi og
tapað einum leik með eins marks
mun.
Með samheldni ,rabbfundum og
hugsun á alvörunnar stund, ætti
þetta allt að koma. Þeir eru enn
of ákafir í að skjóta, í stað þess
að halda knettinum lengur, og fá
vörn mótherjanna svolítið meira
úr jafnvægi.
Nokkuð sérstakt, sem þér liggur
á hjarta?
Ég vildi gjarnan að það kæmi
fram hér, að það væri okkur og
strákunum mikil uppörfun, að sjá
hina eldri handknatteiksmenn
meira hjá okkur og fylgjast með
okkur, það mundi örfa fólkið til
dáða. Ég vil líka segja, að húsið
okkar nýja skapar okkur mögu-
leika að ná árangri, ef við notum
það vel og allir eru ánægðir með
að æfa þar.
Sem sagt, ég er bjartsýnn með
framtíðina.
Katrín Hermannsdóttir:
„Oska eftir þvi aft hópurinn
haldi vel saman.“
Hvenær gekkst þú í Val?
Fyrir tveimur árum, og hef ég
leikið í öðrum flokki síðan, en er
líka farin að leika í meistaraflokki.
Ég hef allt frá
því fyrsta haft
mikinn áhuga
fyrir leiknum.
Hvernig stóð
á því að þú
fórst að leika
handknattleik?
Það vildi svo
til, að vinkona
mín, sem æfði
handknattleik,
,,plataði“mig til að koma einusinni
svona til reynslu, og það þurfti
ekki meira. Árni Njálsson æfði
flokkinn, sem hefur verið undir
hans handleiðslu síðan. Mér finnst
hann mjög góður þjálfari og við
stelpurnar vildum hafa hann sem
allra lengst. Þetta er fyrsta mótið,
sem við vinnum í öðrum A, í fyrra
vann B-flokkurinn og er það mest
honum að þakka.
Hvernig lízt þér á deildarskipt-
inguna í félaginu?
Hefi nú kannske ekki hugsað
mikið um það, en mér finnst það
vera mikil breyting og ábyggilega
mikið heppilegra fyrirkomulag.
Starfið hefur aukizt og félagsfólki
fjölgað, og erfitt fyrir eina stjórn
að anna þessu öllu.
Fórstu til Færeyja?
Já, það var mjög gaman, og
það var tekið svo vel á móti okkur.
Ég hlakka sannarlega til að taka
á móti þeim hér heima og reyna
að gjalda eitthvað gestrisnina.
Áður en við fórum saumuðum
við á okkur ferðabúning, sem var
rauðar buxur og hvít treyja, og í
hana saumaðir stafirnir VALUR,
og þótti okkur mjög gaman að
þessu. Æfingarnar áður en við
fórum, þjöppuðu okkur saman og
mér finnst að eftir að við komum
heim hafi samstarf okkar og sam-
heldni aukist mikið, og við bund-
ist fastari böndum.
Mig dreymir auðvitað um fleiri
ferðir, í þeim eignast maður minn-
ingar, sem aldrei gleymast.
Hvernig er félagslífið í deild-
inni?
Við stelpurnar höfum stundum
haft fundi og leikið Bingo og voru
þar veitt verðlaun, og þótti okkur
gaman að því. Hafði Árni Njáls-
son stjórn á þessum fundum. Mér
finnst að handknattleiksfólkið
ætti að efna til skemmtifunda í
deildinni við og við, það eykur á
kynninguna. Svo finnst mér að það
ætti að taka upp fundi með keppn-
isfólkinu og ræða við það um
handknattleikinn og skipulag hans
og þá sérstaklega fyrir leiki, og
það ættu allir flokkar að gera.
Hvað vilt þú svo segja aðlokum?
Ég óska þess, að þessi sam-
stillti hópur mætti halda sem
lengst saman, því að ég hef trú á
því að þá takist okkur að færa Val
sigra og að vera nýtir félagar í
starfi og leik.
Elías Hergeirsson:
„Það byggist á félögunum
sjálfum.“
Elías Hergeirsson.
Hvernig lízt þér á deildarskipt-
inguna, Elías?
Eiginlega vel. Ég hygg það til
bóta, annars er það reynslan, sem
sker úr um það.
Hverja telur
þú höfuðkosti
þessa ,,þjóð-
skipulags“?
Stjórnin fær-
ist nær þeim, er
mestan þátt
taka í félags-
starfinu, eða
eiga að gera
það. Það hefur lengi verið á vit-
orði, að ýmsir meðlimir félagsins,
sérstaklega þeir yngri, þekktu ekJ:i
þá, sem farið hafa með stjórn
félagsins hverju sinni. Nú er þetta
úr sögunni þar sem í stjórninni
sitja menn, sem þekktari eru hjá
þeim yngri en áður var.
Hvað um framtíðina?
Fyrst og fremst hlýtur hún að
byggjast á félögunum sjálfum, þ.
e. a. s. að þeir vinni vel, allir að
einu marki, þá er þetta komið, sem
við leitum að: Bikarinn á hilluna
og heilbrigt og gott félagslíf.
Bergsteinn Magnússon:
„IMú getum vift ekki kennt
öftrum um.“
Hvernig lízt þér á deildaskipt-
inguna?
Mér lízt sæmilega á hana. Nú
getum við a. m.
k. ekki kennt
öðrum um, ef
ekki allt gengur
sem bezt. Nú er
bara við okkur
sjálf að sakast,
en ég held nú
að þeim erfið-
leikum, sem
kunna að koma,
verði mætt með
karlmennsku og bjartsýni.
Það er sjálfsagt að reyna þetta,
Frumhald á bls. ■>