Valsblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 11

Valsblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 11
VALSBLAÐIÐ 7 Rakarasonurinn — galdramaður einleiksins Grein sú, sem hér fer á eftir, er eftir hinn kunna danska íþróttafréttaritara Simon, og birtist hún í „Fotballjul“ fyr- ir nokkru síðan. Fjallar hún um Stan- ley Matthews, sem þá var fastur maður í liði Blackpool og í landsliðinu, en hann mun nú í þann veginn að hætta, en lék þó 600. leik sinn í nóv. s.l. Hann er nú 43 ára gamall og af honum stafar meiri ljómi, sem knattspyrnumanni, en nokkr- um öðrum í Englandi og er þá langt jafnað. Greinin hljóðar á þessa leið: Stanley Matthews er bezti knatt- spyrnumaður í heimi. Það er eng- inn aðalstitill fyrir framan nafn hans, þrátt fyrir það að cricket- íþróttin á þrjá menn, sem hafa verið aðlaðir og veðreiðarnar einn. En það er einmitt Stanley Matt- hews, er hefur sem útsendur erindreki fyrir enska knattspyrnu, gert meira en nokkur annar til þess að gera knattspyrnuna al- þjóðlega. En ,,Stan“ þarf enga titla. Sérhver, sem á annað borð skilur hvað knattspyrna er, þekk- ir þennan krónprins knattspyrnu- unnar, sem þegar 1946 sló met Eddi Hapgoods, fyrirliða Arsen- als, í landsliði Englands með 48 leiki. Og í september • var hann sér- staklega hylltur sem mesti snill- ingur í enskum íþróttum, og fyrir að vera knattspyrnumaður heims- ins númer eitt, galdramaður ein- leiksins, sem með hreyfingum sín- um og leiftursnöggu fótskipting- um og í sannleika sagt ótrúlegu samstarfi heila og líkama, hefur leikið sér að beztu bakvörðum, eins og köttur að mús. Stanley Matthews er sonur rak- ara í borginni Stoke ,hinn ,,kepp- andi rakari" eins og íþróttablaða- menn nefndu hann, var svo efni- legur hnefaleikamaður, að hann hefði getað unnið enskan meistara- titil, ef hann hefði byrjað dálítið fyrr og ekki hætt eins fljótt og hann gerði. En hnefaleikaferill rakarans fékk snöggan endi. Hann keppti við hnefaleikamann einn frá Man- chester, Chambers að nafni, sem hafði unnið 20 leiki í röð með rot- höggi. Enginn í Manchester hafði heyrt um rakarann frá Hanley, og Chambers byrjaði leikinn með að sýna áhorfendum á yfirlætisfull- an hátt, að þetta væri aðeins ,,upp- hitun!“ Rakarinn, en frá honum hefur Matthews erft hinn hraða fóta- burð, fékk Chambers fljótt til að láta höggin geiga, og láta hann slá út í loftið. Við þetta var Chambers óður. Þegar fimmta lota byrjaði hafði Chambers misst allt vald yfir sér, og rauk á rakarann með æðis- gengnum látum, sem linnti ekki fyrr en rakarinn gaf honum ,,hook“ undir kjálkann með hægri hnefa, með þeim afleiðingum, að hnefaleikakappinn frá Manchester féll í gólfið og „talinn út!“ Keppandi rakarinn. Með þessu hafði rakarinn feng- ið viðurkenningu, og hann fékk þegar tilboð um annan leik, sem fara átti fram á leikvanginum í Liverpool. Þar sló hann einnig mótstöðumann sinn niður í fimrntu lotu. Mótherjinn var meðvitundar- laus í marga klukkutíma, og rak- arinn var settur í fangaklefa í lögreglustöðinni í Liverpool. Ef hinn meðvitundarlausi hnefaleika- maður væri dáinn mundi rakarinn verða ákærður fyrir „óviljandi“ manndráp. Til allrar hamingju raknaði hnefaleikamaðurinn við, en hinn „keppandi rakari“ missti allan áhuga fyrir hnefaleikum. Stanley Matthews lék fvrir Stoke City í 7 ár, en árið 1938 bað hann um að verða settur á sölulistann. Það orsakaði uppreisn í Stoke, og forustumenn staðarins urðu sammála um að boða til mót- mælafundar í Kings Hall. Um alla borgina voru festir upp auglýsinga miðar með áletrun á þá leið, að: „Stanley Matthews má ekki fara“ og vinna féll niður í allri borginni og það leit út fyrir allsherjarverk- fall. Framleiðendurnir héldu því fram í fullri alvöru, að ef Matt- hews skipti um félag, mundi fram- leiðslan í leirkeraverksmiðjunum stórminnka, en Stoke er fræg fyr- ir leirker sín. Framkvæmdastjór- arnir í Stoke City urðu hræddir við þetta og buðu Matthews betri kjör í framtíðinni, þar til að hann var seldur til Blackpool fyrir 230.000 kr. Ég veit ekki hve oft ég hef séð Stanley Matthews, en ég hef verið jafn heillaður af honum hvort sem hann hefur hlaupið í kringum Bastrup Birch, í „Idrætsparken“ eða spaugað með hinn sterka þýzka bakvörð, Múnzenberger, í leiknum 6—3 við England, á Ölympíuleik- vanginum í Berlín 1938, eða sjá hann dreifa ótta og óróa upp- lausnar í vörn ungverska liðsins, og sem aðeins var einasti Englend- ingurinn, er var af ungverskum „klassa", er yfirgnæfði hinn ung- verska sigur á Wembley, 6—3. Og muna má, þegar hann gerði hinn glæsilega þýzka vinstri bak- vörð, Kohlmeier, grátbroslegan í augum áhorfenda. Kohlmeier þessi var þó svo hraður, sterkur og ör- uggur í úrslitaleiknum í Bern, að hinn eldfljóti útherji Ungverj- anna, Budai, neyddist til að skipta um stöðu, vegna þess að hann komst aldrei fram hjá Kohlmeier allan fyrri hálfleik.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.