Valsblaðið - 24.12.1959, Page 13
VALSBLAÐIÐ
9
og ég hugsuðum alltaf hvor með
annars heila. Willie vissi hvenær
hann átti að hlaupa út eða hlaupa
fram, eða standa kyr, og hann
skoraði þrjú mörk á Sy2 mínútu,
og mun það vera mestur hraði í að
skora þrjú mörk í alþjóðakeppni.
Stoltur að þekkja svo ,,stóran“
smávaxinn mann.
Ég minnist þess, þegar Billy
Cook sagði við mig í fyrri hálf-
leik: „Stan, ef þú kemur með
knöttinn nærri mér einu sinni enn,
þá sný ég þig úr hálsliðnum. Guð
hjálpi mér, ég geri það, Stan“.
Hall skoraði fimm mörkin og ég
skoraði það sjötta og síðasta. Þá
var vörn Irlands svo niðurbrotin,
að ég gat hlaupið með knöttinn á
tánum hálfan völlinn og svo að
síðustu „vippa“ honum í markið
fram hjá Twomey markverði Leeds
United.
Willie Hall er einn þeirra beztu
samherja, sem ég hef nokkru sinni
átt, og það var hræðilegt, þegar
varð árið 1946 að taka af honum
hægri fótinn vegna kolbrands. og
síðar varð hann að láta skera upp
á sér vinstri fótinn.
Nokkrum mánuðum síðar mætti
ég honum, þar sem hann hökti
áfram á tveim hækjum og fullur
dugnaðar eins og hann var alltaf,
sagði hann: „Þetta gengur ágæt-
lega, Stan. Það eina sem veitist
mér dálítið erfitt, er þegar ég sé
stein eða trékubb á götunni, get
ég ekki staðizt að sparka í hann,
en þá skeður dálítið, sem aldrei
hefur komið fyrir mig áður — ég
sparka yfir „knöttinn",
Willie hió. Ég varð nær því að
gi'áta, stoltur yfir því að hafa
þekkt og leikið með-stórum-litlum
manni“.
Á keppnistímabilinu 1947—48
var Matthews kjörinn „knatt-
spyrnumaður ársins“, en félagi
hans og vinur Stanley Mortensen
var næstur á listanum. Þetta gerð-
ist kvöldið áður en hann tók þátt
í úrslitaleiknum í bikarkeppninni
við Manchester City.
I ár hefur Stanley Matthews
hlotið sama heiður. En það er eig-
mgjarnt af Bretum að takmarka
það við England, því Matthews er
hið fagra fordæmi í öllu því bezta
sjutia
Framhald af bls. 6.
og í ýmsum tilfellum getur þetta
komið sér vel, að hver deild sé út
af fyrir sig, t. d. með búninga, en
þar hefur stundum komið til á-
rekstra. Mér finnst þó æfinga-
gjaldið of hátt, en raunar veit ég
ekki fyllilega hvað kostar að starf-
rækja svona deild.
Æf ingarnar ?
Mér finnst að það ætti að taka
þær með meiri alvöru en gert er.
Það má ekki taka þær sem einhvert
grín. Leikmenn verða að tala sam-
an og reyna leikaðferðir, og mynda
sér sameiginlegar skoðanir á heild-
arleiknum. Þetta á við bæði meist-
ara- og annan flokk karla og
kvennaflokkinn. Mér finnst því að
þjálfararnir þurfi að vera strang-
ari.
Æfingasóknin er yfirleitt mjög
góð, og ef tíminn væri betur not-
aður mætti ná miklu meiri árangri.
Framtíðin ?
Mér lízt vel á hana. Handknatt-
leiksfólkið er ágætt og efnilegt, og
mætti segja mér, að það eigi eftir
að koma margir bikarar í félags-
heimili Vals, ef þetta fólk heldur
saman. Strákarnir eru efnilegir og
ég hef trú á þeim, og stúlkurnar
enda líka, en þær eru alltaf óráðn-
ari og hverfa oftast of fljótt.
Hvað félagslífið snertir, að þá
vil ég fleiri fundi fyrir handknatt-
leiksfólkið, bæði skemmtifundi,
fundi með einstökum flokkum og
hópum og svo fundi fyrir leiki, til
þess að reyna að byggja upp leik-
aðferð, sem ætti að henta í kom-
andi leik.
Svo að lokum vil ég skora á alla
handknatteiksmenn að standa sam-
an og vinna að því að Valur kom-
izt á toppinn í öllum flokkum.
í knattspyrnunni, mikill heiðurs-
maður, bæði innan vallar og utan.
Altaf drenglyndur í leik, þrátb fyr-
ir það, að hann hefur orðið að
hoppa yfir þúsundir fóta, sem fyr-
ir hann hafa verið settir, og ólög-
legar hindranir gerðar sem ör-
þrifaráð af bakvörðum, sem voru
orðnir þreyttir á því að vera til
athlægis fyrir tilverknað þessa
Fær páfinn ekki að koma á
Ólympíuleikina í Róm?
Fregnir hafa borizt um það, að hinn
frjálslyndi páfi, Jóhannes, hugsi sér að
koma til Ólympíuleikjanna í Róm að ári.
Sagt er, að framkvæmdanefndin telji
þetta mikinn heiður fyrir leikina, en er
þó í miklum vanda stödd. Þannig er, að
þegar pófinn sýnir sig opinberlega, safn-
ast um hann mikill mannfjöldi, og gerir
nefndin því ráð fyrir að þúsundir af
fólki elti páfa, en hafi engan áhuga fyr-
ir leikjunum.
Þeir gera líka ráð fyrir, að ekki verði
hægt að kalla út svo mikið lögreglulið,
að tryggt sé að hægt verði að halda fólk-
inu í skefjum.
Það hefur því verið rætt, hvort ekki
sé rétt að biðja páfann að halda sig
heima.
Jesse Ovens hljóp þjófinn uppi.
Það virðist sem hinn heimsfrægi
spretthlaupari Jesse Ovens geti enn
sprett úr spori. Hann varð fyrir því
um daginn að maður hafði komið að
bifreið hans og stolið frá honum hatt-
inum hans og tekið einnig með sér safn
af grammophon-plötum. Mun hann hafa
orðið mannsins eitthvað var og tók glæsi-
legan 100 m sprett og dró þjófinn þegar
uppi.
Knattspyrna í svefni.
(Sagan talin sönn).
Maður nokkur í Eskilsater í Várma-
landi í Svíþjóð, sem er mikill áhuga-
maður sem áhorfandi á öllum kappleikj-
um, sem þar fara fram, dreymdi draum
með alvarlegum afleiðingum. í draumn-
um var hann áhorfandi að mjög spenn-
andi leik þar á staðnum. Skyndilega
fannst honum eins og að hann hefði að-
stöðu til að hjálpa heimaliðinu. Hann
gaf knettinum hörkuspark, svo að hann
fór beint í markið. Við þetta vaknaði
hann með háhljóðum. Hann hafði raun-
verulega sparkað af fullum krafti og
hafði hitt rúmstólpan með þeim afleið-
ingum að stóratáin brotnaði!
galdramanns knattspyrnunnar,
sem hefur þann eiginleika að láta
fætur og heila vinna saman, svo
líkist sambandi rafstraums, með
næstum yfirnáttúmlegum hætti.
Hinn 42 ára Stanley Matthews
er ekki aðeins bezti knattspyrnu-
maður Englands, en einnig í öll-
um heiminum og hann er það hvei’t
ár. F. H. þýddi.