Valsblaðið - 24.12.1959, Side 17

Valsblaðið - 24.12.1959, Side 17
VALSBLAÐIÐ 13 Reykjavíkurmótið í Valsblaðið snéri sér til hins á- hugasama og duglega leiðtoga og leiðbeinanda handknattleiksins í félaginu, Sveins Kristjánssonar, og bað hann að gefa því upp ár- angur úr ein- stökum leikjum Valsliða í hand- knattleik í Reykjavíkur- mótinu, sem er nýlokið. Var hann og beðinn að segja í- örstuttu máli nokkur orð um hvern flokk fyrir sig. Fer hér á eftir ski’á yfir leikina og umsögn Sveins: Meis taraflokkur. Valur—Fram 11:11, Valur— Víkingur 9:9, Valur—KR 9:10, Valur—ÍR 13 :13, Valur—Þróttur 24:13, Valur—Ármann 12:14. Meistaraflokkur gerði þrjú jafn- tefli í mótinu, vann 1 leik og tap- aði tveimur, öðrum með einu marki en hinum með 2 mörkum. Jafnteflisleikirnir hefðu allir átt að vinnast, því að í þeim öllum höfðum við yfirhöndina er stutt var til leiksloka, og misstum af sigrinum vegna þess að öryggi og festu skorti. I heild sýnir útkoman að aðeins vantar herslumuninn til þess að árangur náist. Vonandi tekst betur til í íslandsmótinu eft- ir áramótin. Fyrsti flokkur: Valur—Fram 3:7, Valur—IR 4:10, Valur—KR 9:10. Hafði gert ráð fyrir að þessi flokkur stæði sig miklu betur í leikjunum, og efni standa þar til meira. Vorum að vísu óheppnir að vinna ekki leikinn við KR. Annar flokkur karla: Valur—KR 5:12, Valur—Vík- ingur 9:6, Valur—Þróttur 5:10. Er satt að segja óánægður með þann árangur, sem þessi flokkur hefur náð. Bjóst við mikið meiru, og með samheldni og æfingu geta þeir mikið meira, og það kemur. handknattleik 1959 Þriðji flokkur karla: A-lið Valur—Þróttur 7:6, A-lið Valur—KR 7:5, A-lið Valur— Fram 4:8, B-lið Valur—IR 5:5, Valur—Fram 1:10. Leikir drengjanna voru yfirleitt ágætir nema á móti Fram. Þá vantar meiri ró þegar á þarf að halda. Þeir kasta knettinum of mikið niður. I þessum flokki er mjög góður efniviður. Me istaraflo kkur kvenna: Valur—Þróttur 7:3, Valur— KR 6:9, Valur—Ármann 5:8, Val- ur—Víkingur 5:3. Annar flokkur lcvenna: Valur—Fram 6:2, Valur—Vík- ingur 4:3, Valur—Ármann 7:3, Valur—KR 11:0. Stúlkurnar hafa staðið sig vel, bæði í meistaraflokki og öðrum flokki, og unnu mótið í öðrum fl. Eru þar rnjög góð efni. Frammi- staða hinna ungu stúlkna í meist- araflokki er mjög góð, eins og markamunur við hin stóru félög Ármann og KR sýnir. Allar eru þessar stúlkur í stöð- ugri framför. Að lokum fylgir hér yfirlit um frammistöðu handknattleiksflokk- anna. HANDKNATTLEIKSFLOKKAR VALS, REYKJAVÍKURMÓT 1959 Flokkur L U J T Mörk Röð Meistaraflokkur kvenna ............... 4 2 0 2 23 : 23 3 2 flokkur kvenna ..................... 4 4 0 0 28 : 8 1 Meistaraflokkur karla ................ 6 1 3 2 78 : 70 5 1. flokkur karla ..................... 3 0 0 3 16:27 3 r. 2. flokkur karla...................... 3 1 0 2 19 : 28 3 r. 3. flokkur karla A ................... 3 2 0 1 18 : 19 2 r. 3. flokkur karla B................. 2 0 1 1 6: 15 3 r. Alls 25 10 4 11 188 : 190 r = riðill. R EYKJ AVÍ KLJRMEISTARAR Hinn sigursœli 11. fl. ásamtþjáljam sínum Frá vinstri: Kristín Níelsdóttir, Katrín Hermannsdóttir, Unnur Hermannsdóttir, Hrefna Pétursdóttir, Bergljót Hermundsdóttir, Bára Guðjónsdóttir, Erla Magnús- dóttir, Sigrún Geirsdóttir og Ámi Njálsson, þjálfari.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.