Valsblaðið - 24.12.1959, Page 22

Valsblaðið - 24.12.1959, Page 22
18 VALSBLAÐIÐ / RírLarlörLdum... Framhald af bls. 15. gegnumbrot sem er alveg einstakt. Annan leik mikið meira spennandi sá ég í sjónvarpi í Hamborg. Real Madrid gegn H. S. V. Hamborg, er endaði með 15:2 fyrir Madrid, en þeir eru ósigrandi í Evrópu- bikarkeppninni eins og flestum er kunnugt. Frammistaða Hamborg- avanna var ]>ví mjög góð, ekki sízt hins unga miðframherja Uwle Seeler, er skoraði gegn Madrid 2 mörk. Þarna var einmitt leikinn knattspyrna á báða bóga, sem fyrir „amatörinn" er Iperdómsrík og sem Manchester United fékk að finna fyrir, en þeir töpuðu 6:1. Stuttur samleikur, snöggar skipt- ingar og mýkt ásamt því að nota augnabikið hárrétt er við átti en Púskas skoraði 3 mörk í röð, en er Bretinn fór að gæta hans skoraði bara Didi á hinum vængnum önn- ur 3 mörk. Það má segja að beir kunni að stíga í vænginn er við á, þessir karlar. Ensk knattspyma er orðinn alltof þunerlamaleg gegn bessum leikaðferðum. og er merki- legt að þeir skuli ekki finna það eftir að hafa tapað fyrir nokkrum á>’um fyrir Ungverjum 7:1, en þeir ura það. Alla dagana er við dvöldum í Rínarlöndum var veðrið eins, um 20 stiga hita og logn, enda notaði Buchloch óspart Mercedesinn sinn til að flytja okkur á fallegustu stað- ina við Rín báðum megin, t. d. Petersburg, Godesb<u-g og Schön- berg. og þó að landslagið sé þarna víða líkt, vínviðarvaxnar móbergs- hæðir, einkar hlýlegar. Þá setja kastalar riddaranna frá miðöidum sinn sérstæða blæ á þetta allt sam- an, og manni verður litið aftur í tímann, frjóvgar þetta ímyndunar- afiið strax um löngu liðna tíð, er hefur skilið cftir svona fagrar minjar, því lirein völundarsmíð eru þeir, þessir kastalar, ef maður skoðar bá gaumgæfilega. Þjóðverj- um þykir líka undur vænt umbessa staði og segja alltaf: Rín látum við aldrei, enda er hún slagæð þeirra hvað samgöngur snertir. . Skammt frá Petersburg komum við í einkar vel hirtan kirkjugarð með skipulögðum röðum af kross- um, sem á var letrað nöfn og hvar og hvenær fallinn á hvem kross. Buchloch gekk þögull um þennan reit og sagði mér að margir þeirra er þama hvíldu hefðu verið í her- deild þeirri, er hann var í við Re- magen brúna er Ameríkanar báru Þjóðverja ofurliði við Rín 1945. Uppbyggingin eftir stríðið hef- ur gengið svo vel, að á ytra borði er ómögulegt að sjá að þessi þjóð hafi tapað stríðinu, en auðvitað eru enn djúp sár hjá mörgum fiöl- skyldum eftir hildarleikinn mikla er seint munu gróa, en samheldni Þjóðverja er undirstaða velgengni þeirra. Hvert miðvikudagskvöld koma t. d. 12 saman og leika kúlu- snil langt fram á kvöld og drekka bjór. síðan fara þeir flestir á fæt- ur um kl. 7, en viti menn, kl. um ellefu á hverjum morgni birtast hinir sömu félagar, t. d. einn bankastjóri. einn kaupmaður, einn katolikki, einn Adenauersmaður, einn Ollenhauer, og standa sem einn maður saman um félagslega og fiárhagslega unnbvggingu hvers annars í daglegri lífsbaráttu. Mér varð hugsað heim, bar sem menn ganga banka úr banka til að fá smálán, án þess að við þeim sé litið og lenda að lokum hjá okur- körlum, mis.jöfnum. Félagslega eru Þjóðverjar til milíiilar fyrirmyndar og langt á rndan öllum öðrum í Evrópu. enda n.jóta þeir nú í ríkum mæli við- reisnarlána, og eiga margir beirra mm’gra hæða hús, þótt ungir séu að árum. Nú fórum við nokkra daga í Zimmern-Hunsriick, sem er stutt f”á Saar, gamla þrætueplinu milli Frakka og Þjóðver.ia. sem er nú hvzkt aftur. Þar fórum við með Mildu og Buchloch í nicnik skógai’- ferðir, þ. e. a. s. borðuðum úti barna er 100 km. langur skógur nwð villtum dýrum, dádýr. hé>’ar. villt svín o. fl. Einnig fengum við fialla silung (Forellen BlauL sem e>- rniög líkur þeim hérna heima. nema á hótelverði 7 mörk. Tnn- arlega í bessum skógi hafði Hind- enburg gamli bækistöð sína 1916 —18, eftir að hann hafði unnið sigrana miklu við Tannenberg. Nú er þessu breytt í skemmtilegt sum- arhótel, sem er mikið sótt. Á heimleiðinni er við héldum til Múhlheim, fórum við svo í Mosel- dalinn, sem er eins og yngri systir Rínai’dalsins, þó öllu mýkri og léttari. Þar komum við til eins að- alvínyrkjandans við Mosel. Hann átti stórar ekrur og ennþá fallegra hús og hafði það gengið í erfðir í fimm hundruð ár. Við fengum að koma í kjallarann, þar sem tunn- urnar stóðu í gerjun, og allt stóð okkur opið. Síðan settumst við út á svalir og átum vínber, svört og græn, með ljúffengum Moselveig- um eigandans. Nú, allir góðir dag- ar taka enda, og að lokum kvödd- um við þessi yndislegu hjón, Buch- loch og syni þeirra, ásamt fjölda kunningja, er við eignuðumst, og héldum til Kaupmannahafnar og með Gullfossi heim á rennisléttum sjó alla leið til Reykjavíkur. * Ur ýmsum áttum Buxnalaus, en ekki ráðalausl Það er margt, sem getur komið fyrir dómara, ekki aðeins, þegar þeir eru úti á vellinum, um það getur sænski dómar- inn Ingimar Axelsson vitnað. Hann hafði því illu heilli gleymt dóm- arabuxunum sínum heima, og fór því inn til heimaliðsins og fékk lánaðar bux- ur. Það fór þó svo, að heimamenn voru ekki ánægðir með dóminn í fyrri hálf- leik og hafði hann m. a. ógilt mark einu sinni fyrir þeim. í hálfleik komu þeir tii hans og kröfðust að fá buxurnar aft- ur, þeir vildu ekki lána svona dómara buxur. Axelsson varð því að fara úr buxunum og afhenda þær, um annað var ekki að velja. Nú voru góð ráð dýr. Hann fór inn til „gestanna' og bað um buxur, og fékk þær, og þannig gat hann haldið áfram í síðari hálfleik! Knötturinn bjargaði lífi iðjuhöldans. Hinn þekkti, ítalski iðjuhöldur Bene- detto Triotta lagði sig um eftirmiðdag í íbúð sinni. Hann var einn í íbúðinni og veitti því ekki athygli að komið hafði leki að gasleiðslu, maðurinn var því í bráð’-i lífshættu. Við hliðina á íbúð Triotta var lítill knattspyrnuvöllur, og nú vildi bað til, sem raunar hefur skeð hér og alls staðar, að knöttur fer skakkt, og hann lenti í rúðu á íbúð iðjuhöldans, og braut hana. Við þetta kom hreint ioft inn í húsið, svo hann vaknaði, og bjargaði það lífi hans. Triotta hafði áður verið íþróttahat- ari, en nú hefur hann gerzt mikill knatt- spyrnuáhugamaður, og ætlar að byggja nýjan, lítinn, fínann knattspyrnuvöll fyrir drengina, sem þakklætisvott fyrir björgunina.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.