Valsblaðið - 24.12.1959, Side 23

Valsblaðið - 24.12.1959, Side 23
VALSBLAÐIÐ 19 HAUSTMDT KNATTSPYRNUKAPPLEIKUR I T V E I M HALFLEIKJUM PERSÓNUR: DÓMARI LÍNUVÖRÐUR A LfNUVÖRÐUR B 22 LEIKMENN 6 VARAMENN VALLARVÖRÐUR 2 LÖGREGLUÞJÓNAR 167 ÁHORFENDUR, ÞAR AF ÞRÍR „UNDIR ÁHRIFUM". LEIKSVIÐ: Leikurinn getur farið fram í hvaða moldarflagi sem er, en þó er æskilegt að 40—50% vallarins sé umflotinn vatni. Ófrávíkjanlegt er að stórir og djúpir pollar séu fyrir framan bæði mörkin, ella er ekki hægt að sýna leikinn. Nauðsynlegt er og, að einhver kofi sé nærri vellinum og að minnsta kosti einn lélegur hátalari sé á áhorfendasvæðinu. Sé völlurinn undir hól geta áhorfendur setið uppi á hólnum, leyfi staðhættir ekki hól, geta áhorfendur haft alla sína hentisemi og jafnvel ráfað um völlinn. BÚNINGAR: Liðin skulu klædd hvítum og svörtum búningum, tölusettum frá 139 til 151. Dómari skal vera mjög grænklæddur, en línuverðir bláir (ekki af öfund). Áhorfendur skulu sjálfir ráða klæðnaði sínum, utan þeim skal óheimilt að klæðast þannig fatnaði að það særi fegurðar- smekk viðstaddra. Pokatíska er algjörlega óleyfilegur klæðnaður og ber dómara að vísa áhorfanda af leikvelli verði hann var við slíkan klæðnað. Til athugunar: Það getur sett skemmtilegan svip á athöfnina, ef meðal áhorfenda eru: múrari, læknir, skrifstofustjóri, ljósmóðir, prest- ur, rukkari, flugmaður og hreppstjóri. Leikstjóri skal athuga vel, að rétt er að sá hluti áhorfenda sem er undir áhrifum, skal vera á þrem mismunandi stigum svo vel sjáist þróunarsaga neyzlunnar. Ennfremur að það skapar virðingu meðal áhorfenda ef vallarvörður er gráhærður. Þetta er heppilegur leikur til sýningar við vígslu félagsheimila fyrir austan, svo og við opnun nautgripas'ninga. LEIKURINN: Fyrri hálfleikur: Dómari blæs í flautuna. Miðframherji hinna hvít- klæddu ætlar að spyrna knettinum en hittir ekki og dettur. Dómari blæs í flautuna og stöðvar leikinn. Þögn. Áhorfendur eftir nokkra þögn: Utaf með dómar- ann. I Reykhúsið með dómarann. Dómari kippist til við köllin og blæs aftur í flaut- una. Miðframherji hinni hvítklæddu spyrnir knett- inum, en dregur ekki yfir miðjuna. Dómarinn blæs enn í flautuna. Þögn. Línuvörður A veifar dómaranum sem gengur til hans, lætur hann dusta ryk af buxum sínum, hvíslar síðan einhverju í eyra hans. Línuvörður A brosir. Dómarinn blæs í flautuna, bendir á vítaspyrnupunkt hinna svartklæddu og þurrkar svitann af enninu. Áhorfendur: Morðingi, svikari, KRingur, Fram- ari, Valsari, Víkingur, Þróttari, aumingi,peningafals- ari, frímerkjasafnari, bóksali, leikari, grautarhaus, skellinaðra. Markmaður hinna hvítklæddu stillir boltanum upp á vítaspyrnupunkti andstæðinganna og býr sig undir að spyrna. Hann reynir að spyrna knettinum, en finnur hann ekki í pollinum. Leikmenn taka að leita knattarins, en finna ekki. Áhorfendur ókyrrast. Lögreglumaður íklæddur kafarbúningi kemur inn á völlinn og kafar eftir boltanum. Markmaður stillir knettinum upp aftur. Hann spyrnir og boltinn svífur langt yfir markið. Brot- hljóð heyrist og rúða í húsinu brotnar. Vallarvörður kemur hlaupandi út og baðar út höndunum. Dómari flautar öxar við ána og gengur út til vinstri. Hlé í tíu mínútur. Síöari hálfleikur: Dómari flautar til leiks. Miðframherji hinna svartklæddu spyrnir knettin- um og leikurinn hefst. Leikmenn hlaupa allir á eftir knettinum en ná honum ekki. Hann hoppar í loft upp og kemur ekki niður aftur. Vallarvörður kemur hlaupandi með stiga inná völl- inn. Hann reisir upp stigann og nær í knöttinn og fær hann dómara. Dómari dæmir aukaspyrnu en leikmenn mótmæla. Línuvörður kemur hlaupandi og spyrnir í knött- inn. Leikmenn taka enn að elta knöttinn en ná hon- um ekki. Hann rennur í átt að marki hinna svart- klæddu. Markmaður reynir að verja með því að henda sér á knöttinn en hendir sér í öfuga átt. Knötturinn rennur í markið. Áhörfendur æpa, stökkva uppí loftið og klappa saman höndunum. Hreppstjórinn fær sér í nefið. (Ef ekki er hreppstjóri fyrir hendi verður að fella niður þetta atriði, því öðrum er ekki treystandi). Línuvörður B veifar og dómari gengur til hans. Þeir hvíslast á. Dómari dæmir útspyrnu. Markmaður býr sig und- ir að spyrna knettinum frá markinu, en þá er kallað í hátalarann á dómarinn í símann. Dómari yfirgefur völlinn.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.