Valsblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 30

Valsblaðið - 24.12.1959, Blaðsíða 30
26 VALSBLAÐIÐ oft þeir greindustu, sem falla sam- an þegar mest á reynir. En það er bráðnauðsynlegt, að í liðinu sé jafnan einn góður leikmaður, sem hefur sérstaka forystuhæfileika, en sá hæfileiki er oft samfara góðum vitsmunum. Auk þess er æskilegt, að hver leikmaður hafi eitthvað sérstakt til brunns að bera — t. d. þurfa þeir helzt að vera 1 eða 2 í liðinu, sem geta gert að gamni sínu og fíflast lítið eitt, jafnvel þó liðið sé að tapa. Ég hef oft tekið eftir því, að stórt félag kaupir dug- legan leikmann, sem síðar hefur svo reynst illa. Þetta stafar af því, að í liði þess félags, sem keypti, eru fyrir nokkrir leikmenn, sem hafa sömu hæfileika, svo að það er í raun og veru ekki hægt að nota fleiri slíka“. „Knattspyrnu- prófessorinn" eins og Brasilíu- mennirnir kalla hann, bætti því við, að það væru í raun og veru miklu fremur áhorfendurnir, sem þyrfti að vanda um við en leik- mennirnir. „Þegar við lékum fyrst í Evrópu, var ég mjög undrandi yfir því að leikvöllurinn var ekki girtur með vírneti. Slíkt er nauð- synlegt í Suður-Ameríku — ann- ars verða leikmennirnir fyrir meiðslum af hendi áhorfenda, sem kasta flöskum og öðru slíku á eftir beim. Og ég varð forviða, þegar áhorfendurnir klöppuðu fyrir okk- ur, jafnvel þó þeirra eigin lið biði ósigur. Því líkt mundi aldrei koma fyrir í Suður-Ameríku“. I fyrstu var hann einnig áhyggjufullur yf- ir því, að í Evrópu voru ekki leyni- legir útgangar neðanjarðar frá völlunum. eins og fvrirfinnast á flestum stærri leikvöllum Suður- Ameríku. Án slíkra útganga getur sigrað lið átt það á hættu. að á bað ráðist óánægðir áhorfendur. Það dugir ekki að veita leikmönn- unum lögregluvernd, því að lög- regluþiónarnir geta líka oft á tíð- um tekið unp á því. að skevta skapi sínu á leikmönnunum. Prófessor O.rvalhaes þykir það leitt, að for- vstumenn brasilísku knattspyrnu- félaganna hafa verið áhugalausir gagnvart honum síðan sigur vannst í heimsmeistarakeppninni. ..Þegar við vorum í Evrópu bárust mér mörg tilboð um að verða þar eftir og þjálfa evrópska leikmenn", Þróttur 10 ára Á þessu ári varð Þróttur, yngsta knattspyrnufélagið í Reykjavík, 10 ára. Stofndagurinn er 5. ágúst. Þegar Þrótt- ur var stofnaður voru liðin hart nær 40 ár því að knattspyrnufélag hafði verið stofnað í Reykjavík, sem eitthvað kvað að, eða frá því 11. maí 1911, en þá var Valur stofnaður. Á þessum tíma hafði íbúum bæjarins fjölgað úr rúmum 12 þúsundum í nær 55 þúsund. Þróttur minntist afmælisins með ýmsum hætti. Efnt var til afmæliskapp- leiks, einnig innanhússmóta, bæði í knattspyrnu og handknattleik. Ákveðið var heimboð erlends knattspyrnuliðs, en það fórst fyrir af óviðráðaniegum or- sökum. Hinn 14. nóv. s.l. var efnt til afmælis- hófs í Framsóknarhúsinu. Óskar Pét- ursson, formaður Þróttar, flutti að- alræðuna fyrir minni félagsins og rakti sögu þess í stórum dráttum. Var hófið fjölmennt, m. a. allir framámenn íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík, og færðu þeir Þrótti árnaðaróskir og g.jaf- ir. Einnig bárust mörg heillaskeyti. Við þetta tækifæri voru 15 félagar og aðrir stuðningsmenn félagsins, þar á meðal forseti Í.S.Í., heiðraðir með því að sæma þá silfurmerki félagsins með lárviðar- sveig, ásamt heiðursskjali. Þá kom og út afmælisrit. Aðalfundur félagsins var haldinn 22. s. m. Var hann vel sóttur. Skýrslur og reikningar báru öruggu félagsstarfi gott vitni. Á fundinum voru samþykktar ýmsar tillögur í sambandi við félags- starfið, m. a. að gefa úr, árlega, félags- blað. Stjórnin var að mestu endurkosin, en formaður er Óskar Pétursson, og er þetta fimmta árið, sem hann er kjörinn formaður Þróttar. Vikingsblaðið í nóvember s.l. hóf knattspyrnufélag- ið Víkingur útgáfu félagsblaðs. í ávarpi sem stjórn félagsins birtir í blaðinu, segir svo m. a.: „Ákveðið er að ráðast í blaðaútgáfu þessa, fyrst og fremst til að upplýsa hina mörgu stuðningsmenn og velunnara félagsins í Smáíbúða- og Bústaðahverfi um starfsemi félagsins, framkvæmdir allar og framtíðarhorfur". Blaðið er hið snotrasta að öllum frá- gangi og í því eru margar greinar um starfsemi Víkings og framtíðaráætlanii’. Þá eru reikningar félagsins, félagsheim- ilisins og íþróttasvæðisins einnig birtir þarna. í ritinu er mikið af myndum frá félagsstarfinu. Ritstj. er Árni Ágústs- son, en auglýsingastjóri Guðmundur Kristjánsson. Blaðið er 32 síður auk kápu. sagði hann. „Nú sé ég eftir því að hafa sagt nei“. Hann hló, er ég lauk viðtalinu með því að segia honum, hvað einn landi hans hafði sagt um knattspymuáhugann i J VALSBLAÐIÐ l 2 OG VALSMENN • • o o • • Valsblaðið er sent öllum • e • J Valsmönnum ókeypis. Ef ein J J hverjir félagar fá ekki blað- J ® ið, stafar það af því, að rétt * “ heimilisfang viðkomandi * • vantar í félagaskrána, Til- « O • • kynnið því heimilisfang ykk- ® • ar, ef þið fáið ekki blaðið. J J Það kemur út vor og h?.ust J l og fyrir jólin. 2 O O •••••••••••••9«oeoooooeooeo« Úr ýmsum áttum Auga fyrir auga og „beinn hægri“. Það er víða, sem dómarinn verður fyr- ir óþægindum í leik. Eru það bæði leik- menn og áhorfendur, sem sannarlega vildu svala sér á manninum með blístr- una, ef hann gerir ekki eins og þeir álíta að sé rétt. Að sjálfsögðu er mis- jafnt, hvernig dómarar bregðast við köllum og þegar að þeim er veizt enn nánar. í haust kom fyrir atvik í Júgóslavíu, þar sem dómarinn hagaði sér samkvæmt biblíunnar orðum: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Tvisvar höfðu leikmenn farið til hans og slógu til hans af því að þeir voru óánægðir með úrskurð hans. En í þriðja sinn var það dómarinn, sem varð fyrri til. Gerðist það, er leik- maður hugðist slá hann, að dómarinn rétti að honum „beinan hægri“ og það hressilega, að hann steinlá — „knock out!“ Dómarinn fékk að vera í friði það sem eftir var leiksins. Harðhentur dómari. Það mun títt að knattspyrnudómarar geti orðið harðir í horn að taka á leik- velli, en að leikmenn verði að þola bein- brot af þeirra hálfu mun fátíðara, og það í fullri vinsemd! Það kom fyrir eftir leik milli Fjóns og Kaupmannahafnar, að dómarinn, Tage Sörensen, þurfti að fara nokkuð fyrr en aðrir úr veizlu eftir leikinn. Var hann orðinn nokkuð seinn fyrir og kvaddi menn með miklum hraða og var snöggur upp á lagið. Gekk þetta þó allt vel, þar til kom að hinum gamla lands- liðsmanni og keppanda úr O.B., Leschly Sörensen, þá munu fingur keppendans ekki hafa farið nógu vel í hendi dóm- arans, því einn fingurinn hrökk í sund- ur við handtakið! landi þeirra. „Það er ekki ógæfa Brasilíu, að 60 prósent þjóðarinn- ar er ólæs, heldur hitt, að hin 40 prósentin hugsa aðeins um knatt- spyrnu“,“ sagði þessi háðfugl.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.