Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1897, Síða 24
STJARNAN.
EPTlIi OIIAELES DICKEN&
jiað var einu sinui drengur, og hann
hljdp uin víða, og veitti athygli öllu, sem
fyrir augun bar. Hann átti systur, sem
var á líku reki'og hann; þau unnust hug-
ástum, og voru ætíð saman. Allan liðlang-
an daginn voru þau að furða sig á
einhverju. þau furðuðu sig á fegurð
blómstranna; þau furðuðu sig á, hvað him-
ininn var hár og blár; þau furðuðu sig á,
hve hið tæra vatn gæti verið djúpt, og þau
furðuðu sig á, hvað guð, serri hefði skapað
þennan fallega heim, hlyti að vera góður
og mikill.
þau voru stundutn að tala um það,
hvort blómstrunum 02 vatninu og himn-
inum myndi ekki þykja fyrir, ef öll börn á
jörðunni dæi einhvcrn tíma. Jú, þeim hlyti