Almanak um/fyrir árið 1900-1905 - 01.01.1900, Page 36
og hvíti asninn tók sótt og andaðist. datt honum nýtt
ráð í hug. Hann jarðaði asnann hjá þjóðveginum, og
þegar einhver fór fram lijá, rétti hann út hönd slna, og
sagði: „Gef mér lierra, nokkra peninga, svo ég meigi
klaustur byggja beinum ,,hinssyndlausa.“ llonum varð
svo vd til, að innan skamms gat hann byggt klaustrið.
Og fjöidí fóiks. flykktist nú þangað, til að snerta bein
„hins syndlausa.“ og fá við það heilsu sína, og bráð-
uni varð hann flugríkur, og tók marga þjóna, en lifði
I prakt og vellystingum daglega,.
, Einusinni datt honum í hug að heimsækja gamla
húsbónda sinn, og tók mcð sér marga þjóna og frítt
föruneyti. Þegar hann kom þangað, sat munkurinn við
klaustursdyrnar. Undrandi starði hann á ungmennið
og auðiegð hans. Ungmennið steig af baki, heilsaði
munknum og sagði honuin hver hann væri.
„Hvar hefur þú dvalið?“ spurði hann forviða. „Seg
mér sögu þína, og hversu þú hefur svo auðgast?“
Ogungmennið sagði honum allt af létta; hversu
peningar hans eyddust, asninn dó, hversu hann jarðaði
hann og betlaði peninga til að byggja klaustur yflr
„hinn syndlausa," og hversu honum græddist fé af píl-
agrtmunum sem sóttu þangað heilsu sína með því að
snerta hin heilögu bein „hins syndlausa, þvíbættihann
við: „Ellin er úrræðalítil, en æskan er hugsandi.“
Ánægju bros leið yflr hrukkótta andlitið á munkn-
um meðan ungmennið sagði sögu sína. En er henni var
lokið,lagði hann titrandi hönd á höfuð hans og sagði á-
fcrgjulega:
„Farðu þér hægt, ungi maður. Þvl þetta klaustur,
hvar þú hefur eytt æsku þinni, séð svo mörg krafta-
vet k gjörð, og marga sjúkdóma læknaða, var byggt
yflr hinum helgu moldum — móður asnans þíns.“