Afturelding - 01.12.1934, Blaðsíða 6

Afturelding - 01.12.1934, Blaðsíða 6
AFTURELDIHIG þarna og skemmtir þér, getur orðið prédikari". Ég svaraði honum ekki öðru en hæðnishlátri þá; en nokkrum árum seinna frelsaði Jesú mig og sendi mig út til þess að boða það orð, sem ég áður hafði troðið undir fótum. Eftir þessa löngu lýsingu á tilheyrendunum, ætla ég að minnast aftur þessa manns, sem ég nefndi áðan. Á meðan á samkomunni stóð, tók ég eftir því, að örvar orðsins hittu hann, og að Andinn sann- færði hann um synd. Guði sé lof fyrir það! Allir boðberar Drottins vita, hve undursamlegt það er, að finna, að Guð starfar, meðan boðskapurinn er fluttur. Þegar ég var búinn að prédika, ogbúið að syngja nokkra söngva, þá fór ég til þessa unga manns og heilsaði honum og sagði: „Nú er kominn fimmtu- dagurinn, þegar þér ætluðuð að gefa yður Guði“. Hann svaraði: „Allt, sem þér í kvöld hafið talað, var talað til mín“. Ég svaraði þá: „Já, það er und- ursamlegt, að Drottinn vissi um yður; en þér ættuð að taka á móti Jesú í kvöld“. Hann leit á mig og spurði: „Geti Andersson ábyrgst, að ég fái frið, þá skal ég gjöra það“. Margir í salnum horfðu á mig, og ég fann á mér sæluríka hrifning frá himn- um. Ég svaraði þá efalaust: „Það get ég, ef þér viljið gefa yður Guði“. Hann sagði: „Þá gjöri ég það“, og féll á kné undir eins. Eftir stutta bæn til Drottins um frelsi, leit hann á mig, og andlit hans bar vott um mikil vonbrigði, og hann sagði með hárri röddu: „Ég finn engan frið“. Það var dá- lítið þungt um stundarsakir að standa eins og svikari frammi fyrir fjölmenni. En Drottinn stóð á bak við sitt orð, sem hljóðar svo: „En sömuleiðis hjálpar Andinn veikleika vorum“. Drottinn hefir líka undursamlegt nafn: „Undraráðgjafi", og það er hann. Hallelúja! — Andinn sagði við mig: „Opna þú biblíuna þína og lát hann lesa Jesaja 53, 5. Hann las hátt: „En hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða; hegn- ingin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á hon- um, til þess að vér hefðum frið“. (Eldri þýðing). Á meðan hann las, bað ég til Guðs í hljóði. Þegar hann var búinn að lesa, spurði ég: „Hvað öðlumst við?“ Hann leit á fyrirheitið og sagði: „Við öðl- umst frið“, og síðan hrópaði hann: „ó, Guð; þetta var undursamlegt; friðurinn streymir inn í hjarta mitt!“ Ogmeð uppréttum höndum vegsamaði hann Guð fyrir dýrðlegt frelsi. Kona hans komst þá í 6 syndaneyð, og beygði kné við hlið manns síns og fór að biðja Guð um náð ogfrelsi. Hún fékk einnig sama vers til að lesa, og friðurinn streymdi einn- ig til hennar úr hinni sömu lind. Dýrð sé Guði! Ó, hversu dýrðlegt er, að fá að vera með, þegar það rætist, sem ritað er. Guð stendur á bak við fyrir- heitin, þegar við uppfyllum fyrst skilyrðin, og fyrir trúna fáum vér svo að taka á móti því, sem Drottinn hefir lofað. Hér eru svo nokkur biblíuorð, sem tala um það, sem við öðlumst: Við öðlumst syndafyrirgefning (Post. 10, 43); frið ((Jes. 53, 5); skírn Andans (Post. 2, 38); kraft (Post. 1, 8); albata (Post. 3, 16), fullkominn fögnuð (Jóh. 16, 24) ; hundraðfalt (Matt. 19, 29) ; óbifanlegt ríki (Hebr. 12, 28); og kórónu lífsins (Jak. 1, 12). „Sælir eru þeir, sem þvo skikkjur sín- ar, til þess að þeir geti fengið aðgang að lífsins tré og megi ganga um hliðin inn í borgina“. (Op- inb. 22, 14). f Ur bréfi frá ungum trúbróður. Þess vegna er það, að við verðum að nota þá krafta, sem Guð hefir gefið oss, styrkja þá með því að æfa þá. Notum þau náðarmeðul, sem hann hefir gefið oss, og gerum fúslega það, sem við megnum með hjálp Krists, „sem oss styrka gerir“, og vér reynum, að Krists ok er indælt og byrði hans létt. Það er gleðilegt, að hafa höndlað Jesú, svo að segja á morgni lífs vors. og geta tileinkað sér hann og fyrirheit hans, „hann, sem er vegurinn, sann- leikurinn og lífið“. „Þú Jesús ert vegur til himins- ins heim, í heimkynni sælunnar þreyða“. Páll post- uli gladdist í Drottni, og hann benti öðrum á þessa gleði. „Gleðjist í Drottni“, segir hann. það er hin varanlega gleði. Það er gleði þess hjarta, sem fyrir Jesú blóð er leyst úr ánauð syndarinnar og komið í frið og sátt við Guð, heilagan og réttlátan. Þessi kristilega gleði sprettur af þeim himneska friði. sem Jesús Kristur veitir hverju því hjarta, sem með lifandi trú á hans friðþæging og heitri iðrun synda sinna, tileinkar sér Guðs óverðskuld- uðu náð, sem öllum heiminum er framboðin í Jesú Kristi.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.