Afturelding - 01.09.1940, Blaðsíða 3

Afturelding - 01.09.1940, Blaðsíða 3
A FT U K K I, I) I N <: kapítula finnum vió skýringu þessa. Þar segir: »Þegar hinztu tímar eru í nánd mun hinn æösti byggja upp þrjú ríki, sem munu ríkja yfir víðri veröld (hinu forna yfirráðasvæði Rómar) með mik- illi harðstjórn«. »Því að það eru þau, sem eiga að fullkomna illskuna og. framkvæma endalokin. Og þegar þú sást, að stóra höfuðið var eigi leng- ur sjáanlegt, boðar það, að einn einvaldinn mun látas^ í rekkju sánni eftir miklar þrautir. Og' hinir tveir, sem eftir eru, munu falla fyrir sverði. Þvi sverð annars mun granda. hinum, en að lokum mun honum sjálfum verða grandað með sverði«. Af þessu sjáum við, að einn, einvaldinn mun lát- ast af kvalafullum sjúkdómi, og að hinir tveir, sem eítir eru, munu veitast hvor að öðrum, senni- lega. vegna missætta um skiptingu herfangsins. Annar þeirra mun falla í viðureigninni. Síðasti ein- valdinn mun falla fyrir sverði sennilega í Palestínu, þar eð, eins og í Ritningunni stendur, »hvers hönd mun hafin gegn öðrum«, og' kynkvíslir Gogs og Magogs, munu eyðast. Og ég ho.rfði og sá öskrandi ljón æða út úr skógi. Ég’ skildi, að það talaði mennskri röddu til arnarins og sagði: Hlýddu á, ég vil tala við þig, og hinn æðsti allra vill tala við þig, .... jörð, þú hefir eigi dæmt rétt, því að þú hefir ráðizt á þá auðmjúku, þú hefir unnið þeim friðsömu mein, þú hefir hagnast á lygi og rænt híbýli hinna fram- takssömu, þú hefir brotið niður múra þeirra, sem ekkert hafa gert á hluta þinn. Þess vegna hefir hið svívirðilega atferli þitt birzt hinum æðsta og mikillæti þitt hinum almáttuga. Hinn æðsti hefir einnig veitt því athygli, hversu lengi þú hefir tam- ið þér dramb og sjá, dagar þínir eru taldir, og við- urstyg'gðir þínar fullkomnaðar. Hverf þess vegna örn, með hina viðbjóðslegu vængi þína, með hinar illskufullu fjaðrir þínar og hin vesælu höfuð þín, hinar læsandi klær þínar, — já allur hinn ónot- hæfi líkami þinn hverfi«. Og ég horfði, og sjá, allur líkami arnarins var brenndur, og allir jarðarbúar voru lostnir skelf- ing«. (Þýtt úr ensku). HLTÐNI. A minningai'SÍeini Hans Nielsens Hauge stendur: »Ég hefi svarið Anda Guðs hlýðni, og Dro-ttin.'i hefir hjálpað mér til þess að halda {)að«. Þeir þrá mest frá Guði, sem mest hafa frá honum h.lotið. Próf. James Stalker: Hvernig Jesns las biblíuna. Það, að Jesús hafði aðeins hið Gamla Testamenti að lesa, ætti að gera Biblíuna ennþá dýrmætari fyrir okkur. Ræður hans og samtöl við fólkið eru stöðugt gegn- ofið af tilvitnunum í hið G. T., sem staðfesti, að hann las það og rannsakaði iðulega.. Stundum tek- ur hann upp versin eins og þau hljóða, en oftar bendir hann á atburði eða persónur. Ef við rannsökum tilvitnanir hans, finnum við, að það eru ekki aðeins áberandi drættir, en einn- ig hinir leyndu stigir. Þetta sýnir ekki aðeins, hve vel hann þekkti orðið, heldur gefur okkur fullvissu um, að hvar sem við göngum inn á lóð G. T. hafa hinir blessuðu fætur hans gengið á undan okkur. Það gefur okkur dásamlega gleði, þegar við les- um, að geta numið staðar hér og þar og vitað, að af þeim bikar, sem við leggjum okkur til munns, drakk Jesús hið lifandi vatn. Mörg vers, og jafn- vel heilar bækur, virðast hafa verið honum sér- staklega hugljúfar. Þar á meðal 5. bók Móse, Sálm- arnir og spádómsbók Jesaja. Jesús bendir ekki á sérstaka aðferð til að rann- saka Guðs orð. Frásagnir úr lífi hans sýna, aó hann gerði það á fleiri en einn hátt. Ö, að við gæt- um einnig á fleiri en einn hátt rannsakaó Orðið, okkur til gagns og blessunar.. Við finnum þá mest áberandi þrjár leiðir, sem eru mjög lærdómsríkar fyrir okkur. 1. Málsvörn. Þar sem Satan kemur til hans í eyðimörkinni, finnum við, að hann notar Orðið sem málsvörn, þar s.em hann stöðugt svarar: Það stendur skrifað. Orðið var í höndum hans sem sverð andans, sem hann varðist árásum óvinarins með. Á svipaðan hátt notaði. hann Orðið, þegar vondir menn réðust að honum. Þegar þeir vildu veiða hann í orðum, var Orðið skjöldur hans. 1 Matt. 22. kap. finnum við mismunandi flokka ráðast að honum, en hann hratt af sér árásum þeirra með svörum frá Guðs orði, svo að þeir gengu þegjandi frá honum, og' máttu blygðast sín fyrir vankunn- áttu sína í Guðs Orði, þar sem þeir þó voru valdir til að leggja út Orðið. Hinum síðasta óvini mætti hann á sama hátt. Þegar skelfingar dauðans, eins og' herskari myrk- ursins, þrengdi að hinum einmana manni, fann 51

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.