Afturelding - 01.12.1942, Side 13

Afturelding - 01.12.1942, Side 13
AFTURELDING 75 brauðhúsið, hefir að gefa okkur, án peninga og fyrir ekkert. Þótt maðurinn, að yfirsýn, virtist geta haldið lögmálið, en hefði ekki öðlazt leynd- ardóm friðþægingarinnar, væri hann alls ckk- ert. Því að friðþægingin í Jesú Kristi er enn þann dag í dag blikandi lindin í urtagarði lífsins. En Betlehem þýðir einnig »stálstaðurinn«, ekki í biblíulegum né málfræðilegum skilningi, held- ur óeiginlegum. Og þegar ég hugsaði um Belle- hem, borg Friðarhöfðingjans, og hið blóði drifna umhverfi hennar, flaug hugsun mín að Betlehem, »stálstaðnum«. Það er nefnilega staður einn í Ameríku. Það er hinn mesti stálgerðarbær í hehni. Liggur nærri að álíta, að þetta sé kaldhæðni þró- unarinnar, að einmitt þessi staður skuli læita Betlehem. En frá hinni hlið málsins, er það tal- andi tákn um það, hve mannkyninu hefir að litlu íeyti auðnast að opinbera boðskap Friðarhöfðingj- ans, að staður sá, er framleiðir mest af stáli skuli vera nefndur Betlehem. Samlíkingin er merki- leg: að eins og borgin, þar sem Friðarhöfðing- inn fæddist heitir Betlehem, og er um leið, sam- kvæmt dómi þeirra, er gerzt þekkja, blóði drifn- asti staður jarðarinnar, þannig er Betlehem »í hin- um nýja heimi«, hinn mesti stál og vopnagerðar- staður jarðarinnar. Þetta virðist í mesta máta annarlegt, en það er, ef til vill, táknrænt fyrir þann heim, sem hefir tekið stefnuna frá Guði. En þannig verður það ekki urn alla framtíð. Það, sem á þessum vondu dögum, gefur hugg- un í erfiði okkar, er hin spádómlega von, sem við eigum í krafti Orðsins. Það er sú von, að rétt- lætissólin muni renna upp innan skamms meo græðslu undir vængjum sínum. Það er vonin um það, að hinar blóði stokknu skikkjur — hugar- , far og verknaður styrjaldanna — muni brennt verða í eldi, og fólkið lifi saman í friðþæging- unni, í Mannssyninum — tákninu, sem Guð sjálf- ur setur á himininn. — Þann veg á sá heimur eftir að umskapast, sem mannkynið lifir í í dag og margfaldast, sveitist og streitist, fótum treður og eyðir, stríðir og deyr. Ég heyrði eitt sinn embættisbróður minn, þjóð- kirkjuprest heima í Svíþjóð, halda fyrirlestur um frið. Hann tók ræðukjarna sinn frá Jesaja 9, og talaði um hervæðingu og gróðafýkn, stríðið milli auðs og iðju, stríðið fyrir friði á jörðu og hugsjón- ina, sem á bakvið býr. Ekki efast ég um það, að hann vildi vera ærlegur í efnismeðferð. Þegar hann hafði lokið fyrirlestri sínum, átti ég sam- tal við hann. Hann var tingur og djarfur, heitur þrunginn áhuga. Ég sagði: »Þú gleymdir, kæri bróðir, lokaáherzlunni og höfuðefninu, þ. e.: »Vandlæting Drottins hersveitanna mun þesso til vegar koma«. Því að við verðum að reikna með hinu guðdómlega, með Jesú Kristi, annars heppn- ast það aldrei að reisa hið fagra hús. Þú mál- aðir þetta með hinum sterku litum hugmynda- flugs þíns og hughrifa*. Það er öldungis víst, að við verðum að hugsa með raunsæi, ekki aðeins með hugmyndaflugi, heldur með hversdagsleikans beiskasta raungildi. Annars heppnast það ekki. Kynslóðin á undan alhcimsstríðunum skildi það ekki — ef til vill, en við börn stórskotaárásanna og sprengjuregns- ins, við ættum að skilja það betur. Það var kunn- ur maður í þjónustu kirkjunnar, sem sýndi mikla kostgæfni fyrir málefni friðarins. Hann talaði einnig með mikilli hugkvæmni og hjartans alvöru um möguleika á að stofnsetja friðarríki á jörðu, og fjölþættar gáfur brast hann ekki. Fyrir erfiði sitt fékk hann friðarverðlaunin í norska stór- þinginu. Samtímis las ég það, sem hershöfðingi nokkur, sannur hermaður, athyglisverður á sínu sviði, sagði um fyrirlestur kennimannsins: »Því miður vantar grunnstólpa raunsæinnar undir þá frið- arhvelfingu, sem hér er talað um«. Hershöfðing- inn sagði satt. En sá grunnstólpi er til, Guði sé lof! Grunnstólpinn er Jesús Kristur, sigur hans, hans eigið líf. A þessum grunnstólpa inun reist verða alheims friðarríki, fyrir trúna á hann, gegn- um sigur hans frá manni til manns. Að vinna verk Guðs er í eðli sínu þetta: Að trúa á þann, sem Guð sendi, Jesúm Krist. (Jóh. 6, 29). Um síð- ir sigrar réttlæti Guðs á jörðu. Það verður í ljós leitt, að Golgata er einasti möguleikinn til frið- ar og farsældar í heiminum. Enn í dag, álíta margir, að Golgata sé ekki leiðin til lífshamingju »lífsrúmið« þurfi að vinnast með valdi, hörku, hnefarétti. Því hlæja menn að þeim, sem þræða götuna um Golgata — hausaskeljastaðinn. En þar er það einmitt, í dauða Krists og sammyndun písla hans, sem lind lífsins rennur. Svo verður það að endingu, að heimsins mikla lífsbreyting, sem Jesús kallar endurnýjun heimsins, endur- fæðing fólksins, að Betlehems blóði drifna jörð ljómar af sól að ofan. En meira en það. Betle- hem, stálstaðurinn í hinu fjarlæga vestri umbreyt7 ist í stálstað friðarins f Guðs ríltis þjónustu. ________ Nils Ramselius. Porsíðuinjndin: Vatn á Sandskeiði. Vífilfell í baksýn.

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.