Afturelding - 01.06.1949, Qupperneq 13

Afturelding - 01.06.1949, Qupperneq 13
AFTURELDING ÞAR RÍKIR EILÍFT VOR James 15. Finley trúboði í Oliio, Bandaríkjunum, segir frá þessari merkilegu reynslu á einum stað í sjálfsævi- sögu sinni: — Ég hafði haft óvenju mikið annríki um eins árs skeið. Þegar mestu störfin voru að baki mér, veiktist ég mjög alvarlega og fékk ákafan hita. Lækna var vitjað, en þrátt fyrir allt sem þeir lögðu fram til að reyna að stöðva veikindi mín. minnkaði mótstöðuaflið stöðugt. Það var kominn sjöundi sólarhringur veikinda minna. Menn höfðu gefið upp alla von um líf milt. Vinir mínir stóðu grátandi við sæng mína og hiðu eftir því. að ég tæki síðasta andvarpið. Þegar ég var orðinn meðvitund- arlaus um allt, sem fór fram í kringum mig í hinum ytra heimi, og vinir mínir töldu mig vera dáinn, skynj- aði ég að himnesk vera gengur inn í herbergið mitt. Hún gengur alveg að rúmi mínu, og ég heyrði að hún talaði til mín mildri, silfurskærri röddu: „Eg er kominn til að fylgja þér inn í nýja tilveru.“ Á sama augaltragði Ivftist ég upp. Ég var borinn af englinum í gegnum geiminn. Brátt hvarf jörðin sjónum mínum. Allt í kringum mig sá ég veraldir sveipaðar í hirtu og ljóma. Burt, hurt frá heimi þjáninga og sorga, harst ég óðfluga til geislandi fagurra Ijósheima. För okkar var svo hröð, sem hugur færi. Og nú höfðnm við náð hliðnm Paradísar. Ó, hvílík óviðjafnanleg fegurð! Ég varð alvea: frá mér numinn af því sem ég sá. Há og víð smaragðhliðin opn- uðust fyrir mér. Þau snérust á gullásum. Fyrir framan mig spegluðu sig silfurtrer vötn i guð- dómlegri fegurð og landslag óvið'afnanlegt. Fegurðinni er alveg ómögulegt að lýsa, sem nú blasti við augum mér. Á meðan ég horfði á þetta frá mér numinn, sá ég mik- inn fjölda engla svífa um liósvaka himinsins. En þó að hreyfingar þeirra væru leifturskjótar. lágu hó vængir þeirra kyrrir niður með síðum þeirra. Við beinni spurn- ingu minni um það, hvaða erindum þessir englar færu þarna, svaraði leiðsagnari minn: „Þetta eru englar, sem sendir eru út í h'ónustu miskunnseminnar til þeirrar veraldar, sem þú ert frá kominn.“ Allt í kringum mig var loftið þrungið af undurhvðri hljómlist. Þó sá ég engan hiá mér, nema bann, er sagði mér leið. Eitt sinn sagði ég við hann: „Er nokkur mögu- leiki á því. að ég fái að sjá einhvern af hinum heilögu, er áður lifðu á jörðu, en eru nú komnir í dýrð Guðs?“ Jafnskjótt og ég hafði þetta mælt, sá ég þrjár verur. Éin þeirra virtist vera karlmaður, önnur kona, þriðja harn. Tvær þær fyrstnefndu voru mjög líkar í útliti engl- inum, er ég hafði séð. Þó voru þær öðru vísi að því leyti, að þær báru gullnar kórónur á höfðum og höfðu gullhörpur í liöndum. Hvorugt þetta höfðu englarnir. Klæði þeirra voru hvít sem traf. Andlitin ljómuðu af guð- dómlegri birtu, og þær hrostu til mín í unaði ólýsan- legum. Ekkert þekki ég, sem ég gæti lýst þeim yndisþokka með, sem skein af barninu. Allir litir regnhogans léku um vængi þess yndisfagra. Klæðin, sem það har, voru hvítari, en það sem ég hef hvítast séð. Á klæðunum var eins og það væri dúnkennd, hvít, mjúk áferð. Nýfallin mjöll er ekki nægilega björt til að líkja hreinleik klæð- anna við hana. Ásýnd barnsins tók yfir allt, sem jafna má við. Hún geislaði af yndisleika. Bros þess leika enn um hjarta mitt og orna því með þeim áhrifum, sem aðeins er haigt að skynja, en alls ekki að lýsa. Ég stóð í orðlausri undrun og horfði á þetta himneska barn! Loks sagði ég: „Ó, ef ég mætti hverfa aftur til jarðarinnar, með þetta harn, til að sýna það öllum syrgjandi og grát- andi mæðrum á jörðu. Ég veit með vissu, að þegar þær fengju að sjá barnið, mundi engin móðir fella tár út af dánu harni sínu.“ Þessi ósk tók mig svo fanginn, að ég rélti hendur mínar til þess að taka þessa yndislegu Ijósveru mér í faðm. En þá hrökk barnið undan mér og stakk sér niður í móðu lífsvatnsins. Á næsla augabragði kom það upp og þegar vatnið hríslaðist af vængjum þess, var eins og af því hryndi gimsteinaregn. Svo lijarlir og silfurtærir voru vatnsdroparnir, er hrísluðust af því. Það synti þvert yfir elfina til strandarinnar hinum megin. Þá flaug það ujjj) úr valninu og upp á efstu greinar á einu hinu fagra lífstré. Þaðan horfði það yfir lil mín, sælt eins og serafi, og tók að syngja á himnesku tungu- máli: „Honum, sem elskar mig og þvegið hefur mig af svnd- um mínum með sínu eigin blóði. Honum sé dýrð, hæði nú og um eilífð, amen.“ Um leið og ég heyrði yndisfagran söng harnsins. féll kraftur Heilags Anda yfir mig og ég tók að lofa Guð hástöfum. Jafnhliða fór ég að klappa höndum mínum saman, frá mér numinn, en um leið reis ég uj>]i í rúmi mínu fullkomlega heilbrigður. Nú var það með mig eins og lamu manninn við fögru- dyr, sem „gekk um kring og ldjóp og lofaði Guð.“ Gagn- 45

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.