Alþýðublað Hafnarfjarðar - 09.05.1962, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐ IIAFNARFJARÐAR
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Utgefandi:
ALÞÝÐUFLOKKURINN í HAFNARFIRÐI
Ritstjóri og úbyrgðarinaSur:
HÖRÐUR ZÓPHANÍASSON
Afgreiðsla í Alfnjðuhúsinu, simi 50499
PHENTSMIÐJA HAFNAHFJAHÐAH H.F.
Njálfstæði§menn
Sregm Hafnarfirðl
Það vakti nokkra furðu hér í bænum, þegar Hamar
sagði að Sjálfstæðismenn vildu „eingöngu með brögð-
um bæta vígstöðu sína.“ Það hafði ekki verið venja
þeirra íhaldsmanna að tala svona hreinskilnislega um
starfsaðferðir sínar. Þeir höfðu ekki fyrr kosið sér slíkt
kjörorð, þ. e. a. s. „engin ábyrgð, bara brögð“ í kosn-
ingum hér í Hafnarfirði. En ef til vill hefur ritstjóra
Hamars fundizt að hér hafi Sjálfstæðisflokkurinn verið
búinn að ganga svo langt í þessum efnum, að það þýddi
ekkert að vera að fara dult með þessa starfshætti flokks-
ins lengur. Og það er ekkert undarlegt, þó að maður,
sem kemur í bæinn og fer að kynna sér bæjarmálefni
Hafnarfjarðar, verði gripinn þessari tilfinningu á eftir,
þegar t. d. þetta er haft í huga:
1. Sjálfstæðismenn hafa lagt mikla stund á að ófrægja
bæinn sinn, hvatt menn til þess að flytja burtu úr
honum, varað menn við að flytjast með atvinnurekst-
ur sinn hingað, verið á móti flestum stærstu fram-
faramálum Hafnarfjarðar í fyrstu, en snúizt svo þeg-
ar málin hafa komist í framkvæmd og orðið vinsæl,
og þá látið sem þeim þætti allt vangert í þessum
efnum.
2. Sjálfstæðismenn hafa verið á móti Bæjarútgerðinni,
þegar illa áraði með togaraútgerð, en með henni þeg-
ar hagur hennar hefur staðið með mestum blóma.
Þeir hafa bæði í tíma og ótíma, þegar erfiðleikar hafa
steðjað að Bæjarútgerðinni, sett upp sakleysissvip og
beðið um hinar og þessar upplýsingar um reksturinn,
til þess að þeir „gætu komið með ráð til bjargar“, en
ráðin hafa aldrei komið og allar upplýsingar sem þeir
hafa fengið, bæði rangfærðar og reynt að gera þær
tortryggilegar. Þannig hafa Sjálfstæðismenn alltaf
grafið undan Bæjarútgerðinni.
3. Sjálfstæðisflokkurinn var á móti byggingu Bæjarbíós
í upphafi. En þegar bíóið var komið á fót og réttmæti
þess búið að sýna sig, þá var hann í orði með bíóinu,
en sælgætissöluna þar átti auðvitað einn af gæðingum
hans að fá. Það fannst Sjálfstæðismönnum ekki nema
sjálfsagt!
4. Sjálfstæðismenn höfðu allt á homum sér um Krýsu-
vík. Þar sáu þeir ekkert annað en vonleysi. Þeir vildu
helzt los bæjarfélagið við þennan „vandræðastað“.
Þeir voru á móti borununum í Krýsuvík og beittu
áhrifum sínum til þess að þeim væri hætt. En svo kom
stóra gufugosið og þá áttu Sjálfstæðismenn ekki orð
yfir það, hve illa væri að málum þessum unnið.
5. Sjálfstæðismenn hafa talað um það fjálglega, að þeir
vilji vinna að því, að Flensborgarskólinn heimti aftur
hina „gömlu reisn sína“. En þegar að því kemur, að
auka á húsnæði skólans og bæta þannig aðstöðu hans
til þess að „heimta aftur reisn sína“, þá mega Sjálf-
stæðismenn ekki heyra það nefnt. Það hafði ekkert
verið byggt við Flensborg í aldarfjórðung og hvers
vegna að vera þá nokkuð að hagga því? Þessi hugs-
un virðist móta skoðun þeirra.
Það er ekki von, að fólkið vilji svona menn í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar. Það hafnar þeim, sem vinna svona
gegn hagsmunum Hafnarfjarðar. Það tryggir hagsmuni
bæjarfélagsins og kýs Alþýðuflokkinn, A-listann.
Á þessu kjörtímabili, sem nú er að enda var Jiessi fallega bygging tekin í notkun. Þarna er bókasafnið okkar til
húsa og á efri liæðinni starfar iðnskólinn.
Virkjun jaröhilnns í Krýsuvik . . .
(Framhald af bls. 6)
bæjarins með jarðbor sem
Hafnarfjarðarbær keypti til
landsins og síðar með öðrum
tækjum. Ymsir sérfræðingar
innlendir og erlendir hafa
verið fengnir til þess að at-
liuga hina ýmsu virkjunar-
möguleika. A þessu kjörtíma-
bili, sumarið 1960, var stór-
virkur jarðbor við boranir í
Krýsuvík í 4 mánuði. Þá voru
boraðar þrjár holur. Frekari
boranir eru nauðsynlegar og
er nú beðið eftir að hinn
stórvirki jarðbor fáist aftur
til Krýsuvíkur. I vetur var
unnið að gera jarðvegskort af
jarðhitasvæðinu í Krýsuvík.
Alþýðuflokkurinn telur
virkjun jarðhitans eitt stærsta
hagsmunamál Hafnfirðinga.
Boranir og rannsóknir þar
hafa leitt í ljós gífurleg nátt-
úruauðæfi, sem verður að
hagnýta m. a. til hitaveitu
'fyrir Hafnfirðinga og að öðru
leyti til liagsældar fyrir bæj-
arbúa í iðnaði og til stuðn-
ings öllu atvinnu- og efna-
hagslífi Hafnarfjarðar.
Alþýðuflokknum er bezt
treystandi til þess að leiða
þetta mál til lokasigurs. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur ýmist
verið á móti jarðhitarann-
sóknum í Krýsuvík, eða hann
hefur sýnt því máli fyllsta
tómlæti, eða þá í mesta lagi
hefur hann verið með sýnd-
aráhuga, eins og nú síðustu
árin, en þó reynt að torvelda
framkvæmdir við jarðhita-
rannsóknimar, til þess að
þjóna ímynduðum pólitískum
hagsmunum sínum þegar
hann hefur þorað. Sú afstaða
Sjálfstæðisflokksins kom
skýrt fram hjá Páli V. Dan-
íelssyni bæjarráðsmanni vor-
ið 1960, þegar stórvirki jarð-
borinn fékkst til Krýsuvíkur
til borana á kostnað ríkisins.
Þá lagði hann til að bæjar-
sjóður yrði látinn greiða
kostnaðimi um 5 milljónir
króna, vitandi þó að þeir
peningar voru ekki á fjár-
hagsáætlun bæjarins. Hann
ræddi jáfnvel þessa hugmynd
sýna við Ingólf Jónsson ráð-
herra. Hvar var þá umhyggja
þessa Sjálfstæðismanns fyrir
traustri fjármálastjórn bæjar-
ins og útsvörum bæjarbúa?
Ef þetta áhugamál Páls V.
Daníelssonar hefði náð fram
að ganga, hefðu engar jarð-
boranir verið framkvæmdar
í Krýsuvík árið 1960. Og ætli
það hafi ekki verið tilgang-
urinn með þessari tillögugerð
bæjarráðsmannsins?
Allur skollaleikur Sjálfstæð
isflokksins í jarðhitamálum
Krýsuvíkur er svo augljós að
hann getur engan blekkt.
Hreinn meirihluti Alþýðu-
flokksins í bæjarstjórn er ör-
uggasta tryggingin fyrir því
að jarðhitinn í Krýsuvík
verði virkjaður til hagsældar
fyrir Hafnarfjörð í náinni
framtíð. X A-Iistann.
TÉKKNESKIR OG RÚSSNESKIR
hjólbarðar óvallt fyrirliggjandi
JAPÖNSKU
hjólbarðarnir (Bridgestone) væntanlegir næstu daga
Gerum við og sjóðum einnig í dekk
ÁvnlU fljót oq qóö þjónustfl
Hjólbarðaviðgcrðill Strandgötu 9
Hafnarfirði
^Bmum
Orðsending frá Sundhöll Hafnarfjarðar:
Hafnfirðingnrf
AÖ gefnu tilefni biðjum vér yður að at-
huga, hvort símanúmer vort er greinilegt
í símaskrá yðar, en það er:
5-00-88