Alþýðublað Hafnarfjarðar - 09.05.1962, Síða 4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Frá Flensborgarskóla.
Sýning
á handavinnu og teikningum nemenda Flensborgar-
skólans verður í skólanum næstkomandi sunnudag
(13. maí).
Opin kl. 10—12 og 13—22.
Skólastjóri.
TILKYNNING
um lóðahreinsun í Hafnarfirði.
Samkvæmt II. kafla heilbrigðissamþykktar Hafnarfjarðar-
kaupstaðar, er lóðareigendum skylt að halda lóðum sínum
hreinum og þriflegum.
Eigendur og umráðamenn lóða eru því hér með áminntir
um að flytja burt af lóðum sínum allt er veldur óþrifnaði
eða óprýði og hafa lokið því fyrir 20. maí n. k.
Hreinsunin verður að öðrum kosti framkvæmd á kostnað
lóðareigenda.
Að marggefnu tilefni skal það tekið fram, að óheimilt er
að fleygja í lækinn, höfnina innan hafnargarðanna, í fjöru
eða annars staðar á landi bæjarins, neinum úrgangi eða
rusli og óþverra og er aðeins heimilt að losa slíkt rusl, þar
sem sorp bæjarins er látið í sjóinn, fyrir sunnan Hellnahraun.
Hafnarfirði 27. apríl 1962.
Heilbrigðisfulltrúi.
Hvers virdi er innbiíid mitt?
Látið það ekki henda yður að innbúið, þar með
talin sængurfatnaður og föt sé
óvátrygrgt eða langrt undir sannvirði.
Hafið samband við okkur.
Við aðstoðum yður.
Hafnarfjarðarhöín að verða stærsta inn-
og útflntningshöfn utan Reykjavíkur
- Ahyglisverð saga hafnarmálanna
aqíslands'
UMBOÐSSKRIFSTOFA
Lögfræðiskriíslofa Árna Grétars Finnssonar
Strandgötu 25 - Sími 51177
(Framhald af hls. 4)
Hafnarfjarðarbæ ærið clýr, þessi lóða-
ráðsmennsku íhaldsins.
Alþýðuflokkurinn lét á árunum 1930—
1941 gera ítarlegar rannsóknir um það,
hvernig bezt i/rði fijrirkomið uppbygg-
ingu hafnarinnar svo að hún kæmi að full-
um notum í framtíðinni og árið 1941 var
hafin bygging Norðurgarðsins.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði á síðustu ár-
um valdatíma síns hér í Hafnarfirði látið
gera hafnaráætlanir, sem reyndust vera
fjárhagslega óframkvæmanlegar og síðar
kom í Ijós við atlmganir, rannsóknir og
mælingar á höfninni og botnlagi hennar
sérstaklega, að þessar áætlanir voru einn-
ig tæknilega óframkvæmanlegar, með
þeirra tíma tækni. Þetta viðurkenndi Sjálf-
stæðisflokkurinn með því að koma með
nýja hafnaráætlun 1939 um að byggja
lítinn hafnargarð, eða réttara sagt grjót-
garð meðfram Gömlu bryggjunni út frá
Svendborgarplaninu. Þetta var nú allur
stórhugur Sjálfstæðisflokksins þá, og hefði
höfnin verið stórskemmd, ef þarna hefði
verið farið að ráðum hans.
íjí >Jc
Alþýðuflokkurinn lét hefja undirbún-
ing að byggingu Suðurgarðsins árið 1947
og lét síðan byggja hann. Suðurgarður-
inn er eini hafnargarðurinn á íslandi, þar
sem stór olíuskip geta lagzt upp að.
Jafnvel í „sæluríki“ Sjálfstæðisflokksins,
Reykjavík, geta skip eins og t. d. Hamra-
fellið hvergi lagzt að bryggju eða hafnar-
garði.
Á seinasta kjörtímabili hefur svo eins
og áður er sagt, Alþýðuflokkurinn beitt
sér fyrir, að byggður var nýi hafnarbakk-
inn og Suðurgarðurinn breikkaður. Með
jmí náði Alþýðuflokkurinn því takmarki
sínu, að Hafnarfjarðarhöfn yrði sam-
keppnisfær inn- og útflutningshöfn.
* ❖
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á þessum
sama tíma ekkert vitað livernig hann ætti
að láta í þessum málum. Hann liefur ekki
þorað að vera á móti málunum en ýmist
rokið upp til handa og fóta og gambrað
af miklu ábyrgðarleysi um að framkvæma
á stundinni liluti, sem kosta tugmilljónir
króna og voru þess vegna óraunhæfir, eða
hann hefur reynt að tefja raunhæfar
áætlanir með sýndartillögum og teikn-
ingum.
* *
Alþýðuflokkurinn hefur birt stefnuskra
sína. Þar sést vilji hans í Hafnarmálum
Hafnfirðinga. Hann fagnar þeim þátta-
skilum, sem urðu í liafnarmálum Hafn-
firðinga á síðasta kjörtímabili bæjarstjórn-
arinnar, hinni bættu aðstöðu báta, togara
og kaupskipa í Hafnarfjarðarhöfn. Hann
fagnar því, að Hafnarfjörður er að verða
önnur stærsta inn- og útflutningshöfn
landsins. Alþýðuflokkurinn vill styðja og
flýta fyrir þessari þróun með stækkun
hafnarbakka, vöruskemmuhyggingum,
auknu afgreiðslu- og viðleguplássi fiski-
skipa, ásamt smíði smábátabryggju og
verbúða. Alþýðuflokkurinn er þess full-
viss, að allir þeir, sem kynna sér sögu
hafnarmálanna í Hafnarfirði fijrr og nu,
eiga ekki nema eitt svar til að því loknu
en það er:
Fimm Alþýðuflokksmenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
ÁRSHÁTTÐ Alþýðufloltksfélagaiufa
I Hofonrfirði
verður n. k. laugardag i Alþýðuhúsinu
og hefsí kl, 8,30 síðdegis
Fjölbregtt skemmtifttriði
Alli sluðningsfólk A-lisíans
velkomið meðan húsrúm leyfir
NEFNDTN