Alþýðublað Hafnarfjarðar - 23.12.1962, Page 8
8
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Útgefandi:
ALÞÝÐUKLOKKURINN í HAFNARFIRÐI
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
HÖRÐUR ZÓPHANÍASSON
Afgreiðsla í Alþýðuhúsinu, sími 50499
PRENTSMIÐJA HAFNARPJARÐAR H.F.
KIRKJAN IIM HÁTÍDARNAR
„Klukkna hljóð kallar þjóð“
HAFNARFJARÐAR-
KIRKJA
Aðfangadagur: Aftansöngur kl.
6.
Jóladagur: Messa kl. 2 e. h.
Gamlárskvöld: Aftanspngur kl.
6.
Nýársdagur: Messa kl. 2 e. h.
SÓLVANGUR:
Annan jóladag: Messa kk 1 e. h.
BARNASKÓLINN,
GARÐAHREPPI
Aðfangadagskvöld: Aftansöngur
kl. 6 e. h. (Séra Bragi Frið-
riksson).
BESSASTAÐIR
Jóladagur: Messa kl. 11 f. h.
Gamlárskvöld: Aftansöngur kl.
8.
KÁLFATJÖRN
Jóladagur: Messa kl. 4 e. h.
Nýársdagur: Messa kl. 4 e. h.
FRÍKIRKJAN '
Aðfangadagur: Aftansöngur kl.
6.
Jóladagur: Messa kl. 2 e. h.
Annar jóladagur: Barnaguðs-
þjónusta kl. 2 e. h.
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
6.
Nýársdagur: Messa kl. 2 e. h.
Séra Þorsteinn Jóhannesson,
fyrrv. prófastur, prédikar.
KAÞÓLSKAKIRKJAN
Aðfagnadagur: Hámessa kl. 12 á
miðnætti.
Jóladagur: Hámessa kl. 10 f. h.
Nýársdagur: Hámessa kl. 6 f. h.
„Ljósum alsett jólatréð44,
skartar nú á „ThorspIaninu“
eins og undanfarin ár. Vinabær
okkar Fredriksberg hefur sent
okkur jólatré, að venju. Þessi
jólatré frá vinum okkar í Fred-
riksberg hafa verið hin mesta
bæjarprýði og svo er einnig um
tréð núna. Eru þessi tré, sem
lýsandi vitar um velvild og vin-
áttu Fredriksberg í garð Hafn-
arfjarðarbæjar og þeir munu
áreiðanlega verða ófáir Hafn-
firðingarnir, sem í huga sínum
senda hlýjar kveðjur yfir hafið
um leið og þeir njóta þess augna
yndis, sem jólatréð vissulega er.
Söfnuðu 26 þúsundum
Skátarnir fóru um bæinn að
safna fyrir vetrarhjálpina eins
og venja befur verið. Bæjarbú-
ar hafa jafnan brugðizt vel við
og sú varð einnig raunin á núna.
Söfnuðu skátarnir hér í Hafnar-
firði 26 þúsundum króna og er
það meira en nokkru sinni áður.
I fyrra söfnuðust 16 þúsundir
króna og var það met þá.
Auk þessa peninga safnaðist
þó nokkuð af fatnaði og var
hann yfirleitt nýr eða nýupp-
gerður. En Hraunbúarnir voru
Munið Skósmíðavinnustofuna
Hverfisgötu 57 - Hafnarfirði
SENDIFERÐABÍLL
vanti ykkur sendiferðabíl
þá hringið í síma 51484.
Geymið auglýsinguna
ekki aðeins á ferðinni hér í
Hafnarfirði. Þeir söfnuðu cinn-
ig í Garðahreppi og safnaðist
þar 2.470.00 kr. og fer það sem
þar safnaðist til heimila og ein-
staklinga þar. Skátunum ber
mikill heiður og þökk fyrir hin
góðu og árangursríku störf sín á
þessum vettvangi í fjölda ára.
Sams konar söfnun í Reykja-
vík vakti athygli, vegna þess
myndarskapar sem Reykvíking-
ar þóttu sýna með framlögum
sínum. Og sú athygli var verð-
skulduð. Sú staðreynd er því
ánægjuleg fyrir okkur Hafnfirð-
inga, að bæjarbúar bér skyldu
bregðast svo vel við, að fram-
lag á hvern íbúa varð að þessu
sinni helmingi meira hér en í
Reykjavík.
Vetrarhjálpin hér hefur beðið
blaðið að koma á framfæri
kæru þakklæti til bæjarbúa fyr-
ir rausn sína og hlýhug.
Ástralía er einn þeirra staða, sem jólin
koma fyrst til í hátíðaleik sínum. Það er
á miðju sumri. Engispretturnar syngja og
stóru sandeðlurnar sleikja sólskinið. Menn
ganga í þunnum, hvítum klæðum, með
barðastóra hatta, til þess að forðast sól-
stungu. Kirkjur, verzlanir og mörg önnur
hús, eru skreytt blómavöndum og trjá-
greinum. Þegar sólin hnígur til viðar í
sínu geislaskrauti, tendra menn marglit
ljós í skrúðgörðum sínum og húsum; —
jólin eru haldin hátíðleg.
Dökku papúa-börnin, sem eiga heima
á hinum svækjumiklu víðáttum Nýju-
Guíneu, hlaupa ,með pálmaviðargrein í
hendinni til skólans á jóladagsmorgun, til
þess að sækja jólagjafirnar. Skólastofan er
umvafin pálmaviðarblöðum og geislandi
Það er einnig merkilegt, fyrir Evrópu-
búa, að sjá í öðrum heimshluta,' í egi/pzku
stórborgunum Alexandia og Cairo, jóla-
sveina alveg eins og við þekkjum þá hér
heima, í þykkum fötum, með vattskegg,
skreyta búðarglugga, en úti fyrir er 45
stiga hiti.
Við forðum okkur úr öllum þessum hita,
til okkar eigin heimshluta og heimsækjum
nágranna okkar í Sví])jóð og Noregi.
í Svíþjóð, allt upp til Lapplands, eru
jólin haldin með svipuðu móti og hjá öðr-
um Norðurlandaþjóðum. A aðfangadags-
kvöld er messugjörð í sænskum kirkjum,
en fyrir eða eftir kirkjugönguna hressir
;
Jólnsidir í öirum
löndum
:
korton-blómum. í miðri skólastofunni
stendur lítið pálmaviðartré umvafið bóm-
ullarlagði, sem á að tákna snjó, undir hin-
um hreina, bláa himni. Sungnir eru jóla-
sálmar og á eftir fylgir glaðvær hátíð. með
skemmtilegum leikjum. Þegar kvölda tek-
ur, eru tendruð Ijós í marglitum pappírs-
öskjum og flugeldum skotið.
Mexikanar hefja hátíðina 9 dögum fyr-
ir jól og halda þá í skrúðgöngum frá einu
húsi til annars og syngja jólasálma. Jóla-
sælgætið, og það er fjölbreytt, er látið í
pínataen, þ. e. brúðu úr brenndum leir,
sem hangir niður úr loftinu. Síðan er
bundið fyrir augu barnanna og þeim snú-
ið í þrjá hringi, afhent prik og nú reynir
á að slá pínataen í sundur. Þeim, sem
tekst það, er veitt verðlaun, en allir krakk-
arnir ryðjast yfir sælgætið, sem hrynur úr
leirbrúðunni.
þ
í Argentínu stynja menn af hita í des-
embermánuði, en jólatré verður engu að
síður að fá. Venjulega er það fjallafura,
eða tilbúið tré, gert úr vír og skreytt með
j)ynii og grænmáluðum hænsafjöðrum.
Ljós eru einnig á trénu, en venjulega veita
þau niður á við, þegar kveikja skal á þeim,
svo mikill er hitinn. Undir sólskýlinu fyr-
ir utan húsið, fá menn sér bita af kalkúna
og annan af krydduðum emponadas, sem
gerður er úr söxuðu kjöti, ólífu og mörg-
um ólíkum kryddjurtum, sem bakað er í
líkingu hálfmána.
maður sig á því, að borða brauð, sem
dýft er í súpupottinn, þar sem svínslærið
er soðið. Þetta kalla Svíar að ,,dopjja í
grytan“. Geislandi jólatréð er aðalhátð-
leiki aðfangadagskvöldsins, en seinna
hressa menn sig á jólasvíninu og hrís-
grjónagrautnum með möndlunni í. Á jóla-
dagsmorgun er farið snemma á fætur, því
að kl. 8 árdegis er „julotton“ í kirkjunum.
Uppi í sveit, þar sem farið er í vagni til
litlu uppljómuðu kirkjunnar, er mikill
hátíðleiki yfir þessari árdagsökuferð. Jól-
in standa til þrettándans, en [)á ganga
unglingar í ýmsum skemmtilegum bún-
ingum á milli bæja.
I Noregi eru jólin ekki aðeins haldin til
þrettánda dagsins, heldur til Jæss tuttug-
asta, ]). e. 13. janúar.
Á þessum mörgu jóladögum heim-
sækja nágrannarnir hverir aðra. Ættingjar
og vinir hittast, og Jnið er glatt á hjalla í
stóru stofunni við snarkandi arineldinn.
Kaffi er borið á borð, eftir góðan máls-
verð, og margar sætar kökur, stórar,
kringlóttar jólakökur og ýmsar smákökur,
,,fattigmanden“, „hjertetakk“, eða hvað
þær nú heita, allt að fjórtán tegundum.
Maður kemst ekki yfir að bragða á þeim
öllum. En drengirnir kunna að notfæra
sér þetta. Þeir ganga hús úr húsi í hinuin
undarlegustu búningum og fá sælgæti og
sætar kökur fyrir söng sinn.
í Bergen fara drengirnir fjórir og fjórir
saman og syngjá á götunum. Einn ber
jólastjörnu, en hinir eiga að tákna hina
heilögu þrjá konunga.