Morgunblaðið - 06.01.1962, Side 12

Morgunblaðið - 06.01.1962, Side 12
12 MORCUTSBLÁÐ1Ð Laugardagur 6. Jan. 1962 Otgefandi: H.f Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: \ðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. BORG HIIMIMA IVIIKLII FRAMFARA F’nda þótt stórkostleg upp- ^ bygging hafi átt sérstað uxn allt ísland á síðustu ára- tugum, mun menn þó naum- ast greina á um það, að hvergi hafi framfarirnar orð- ið eins miklar og í höfuð- borg landsins. Reykjavík er orðinn um 75 þúsund manna borg, sem býr íbúum sínum fjölþætt atvinnuskilyrði og margvísleg lífsþægindi. Vitan lega er margt ógert í þessari ört vaxandi íslenzku höfuð- borg. En engum sanngjöm- um manni dylst, að að um- bótunum hefur verið unnið af ráðdeild og markvísri festu. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur, sem haft hafa forystu áratug um saman um stjórn borgar innar, hafa haft giftusamlega forgöngu um hagnýtingu auð linda landsins, vatnsafls og jarðhita, til sköpunar bættra atvinnuskilyrða og aukinna lífsþæginda. Það er Reykjavík, sem jafn an hefur riðið á vaðið um stórkostlegar virkjanir foss- afls og jarðhita. 1 skjóli þess- ara glæsilegu framkvæmda hefur afkomugrimdvöllur borgarbúa stöðugt orðið traustari og aðstaða fólksins í lífsbaráttunni betri. Nýjasta stórframkvæmdin, sem Reykjavík hefur á prjón unum er hitaveita fyrir allan bæinn. Erlent lán hefur ver- ið tryggt til þessara fram- kvæmda og allur undirbún- ingur þeirra er traustur og vandaður. Jafnhliða hefur verið unnið að undirbúningi nýrra vatns- aflsvirkjana, sem munu tryggja að til raforkuskorts muni ekki koma, þegar nú- verandi raforkuver eru full- nýtt. Þannig hefur stjórn Sjálf- stæðismanna á Reykjavík jafnan mótazt af framsýni og glöggum skilningi á þörfum fólksins og bjargræðisvega þess. í skjóli blómlegs atvinnu- lífs hefur borgarstjórnin einnig getað sinnt fram- kvæmdum á sviði menning- armála í ríkum mæli. Hver skólinn hefur risið á fætur öðrum, sjúkrahúsakostur hef- ur verið aukinn, glæsileg heilsuverndarstöð byggð og rekin af myndarskap til ó- metanlegs öryggis fyrir borg- arbúa. Göturnar í bænum hafa verið bættar og marg- víslegur stuðningur veittur til íþróttastarfsemi, barna- leikvalla, dagheimila og ann- arra stofnana í þágu æskunn- ar. Reykjavík er borg hinna miklu framfara og fram- kvæmda. Það er vissulega ósk allra Reykvíkinga að þessi mikla uppbygging og þróun í borg þeirra haldi áfram. Þess vegna veltur á miklu að höf- uðborgin njóti áfram þeirrar traustu og víðsýnu forystu, sem markað hefur stefnuna í hinu mikla uppbyggingar- starfi. Sjálfstæðisflokkurinn býð- ur höfuðborgarbúum áfram forystu sína. Allt bendir til þess að fylgi hans muni nú sem fyrr standa traustum fótum meðal borgarbúa. En eins og kunnugt er eiga borg arstjómarkosningar að fara fram á komandi vori. HÓTAMIR SIJK4RNOS CJukarno Indónesíuforseti hót ar nú vopnaðri árás á hollenzku Nýju Guineu, ef Hollendingar lýsi því ekki fyrirfram yfir ,áður en til samningaviðræðna við þá komi, að þeir muni afhenda Indónesíu þennan landshluta skilyrðislaust. Hefur forset- inn þegar látið draga saman 250 þúsund manna her til þess að gera innrás í vestur- hluta Nýju Guineu, sem Hol- lendingar stjórna. Þessar aðfarir Indónesíu- forseta eru svo dólgslegar að furðu sætir. En auðsætt er að hann þykist hafa fengið byr undir báða vængi með hemaðarárás Indverja á Góa. Hollendingar hafa lýst því yfir, að þeir hafi engan á- huga á að halda vesturhluta Nýju Guineu sem nýlendu áfram. Þeir hafa lagt áherzlu á, að sjálfsákvörðunarréttur íbúanna ætti að ráða mestu um framtíð þeirra. En Indó- nesar hafa ekki mátt heyra sjálfsákvörðunarrétt Papú- anna nefndan. Þeir vilja skil yrðislaust leggja þetta fjar- læga eyland undir sig, enda þótt íbúar þess séu fjarskyld ir Indónesum að uppruna og hafi aldrei verið í neinum tengslum við land þeirra, öðr um en þeim að lúta í nokkur hundruð ár sömu stjórn og þeir, þ.e.a.s stjóm Hollend- inga. Friðurinn við Kyrrahaf virðist nú hanga á veikum þræði. Sukarno telur sig njóta stuðnings Rússa, þegar John F. Kennedy Eleanor Roosevelt bonurnar í 13 ár. Þær, sem næst henni köma 1961 eru Jaq ueline Kennedy nr. 2, Elísabet Englandsdrottning nr. 3, og frú Maie Eisenhower nr. 4. Vinsældir frú Kennedy hafa aukizt mjög á árinu, var hún í 7. sæti 1960. Þá var frú Eis- enhower nr. 2, Elísabet drottn- ing nr. 3 og Helen Keller nr. 4. Dáðasti maður Bandaríkj- anna er Kennedy, forseti, næst ur er Eisenhower fyrv. forseti, þá kemur Sir Wind'ston Churc hill, Adlai Stevenson er ftr. 4, Albert Sweitzer nr. 5, Trú- Rússar hindra fréttasendingar Moskvu 5. jan. (NTB/Reuter) SOVÉZK stjórnarvöld rufu í dag sambandið á fjarritalínu Reuter-fréttastofunnar, sem ligg- ur frá Moskvu til Lundúna, um Helsinki — en lína þessi var tekin í notkun fyrir um þrem mánuðum, og var Reuter eina fréttastofan, sem fékk leyfi til að koma upp beinni línu frá Moskvu tii fréttasendinga. Verða nú fréttamenn Reuters í Moskvu að notast við símtöl og sím- skeyti til að koma íréttum sínum á framfæri, „Af tæknilegum ástæðum." Reuter var tilkynnt það 21. des. sl., að sambandið á fjarrita- línunni mundi slitið í náinni framtíð, þar sem rússneskir aðil- ar þyrftu á henni að halda til eigin nota. Fréttastofan fór þess mjög eindregið á leit að fá að halda línunni — en í miorgun lét sovézka samgöngumálaráðuneyt- ið rjúfa sambandið. Háitt settur embættismaður í ráðuneytinu sagði síðar, að þetta hefði verið óhjákvæmilegt, „af tæknilegum ástæðum." - ■ - Tass hefir línu frá Lundúnum. í marzmánuði í fyrra var að miklu leyti aflétt frétitaskoðun í Moskvu — og var þá fénginn grundrvöllur fyrir því að senda fréttir þaðan beint með eigin fjarritalínum. Hins vegar fékk enginn aðili nema Reuter leyfi til að koma sér upp slíkri línu, þótt fleiri fréttastofnanir og einstök blöð sæktu um leyfi til þess. — Þess má geta, að rússneska fréttastofan, Tass, hefir beina fréttalínu frá Lundúnum, sam- kvæmlt samkomulagi við yfir- stjórn símamála í Bretlandi. Vinsælustu 1961 f LOK hvers árs fer fram Gallupkönmun í Bandaríkjun uim og eru íbúarnir spurðir hvaða mann og konu þeir dái mest. Dáðasta kona Bandaríkj- anna 1961 var kjörin frú Elean Or Roosvelt, en hún hefur ver ið efst á lista yfir dáðustu man fyrv. forseti nr. 6, Billy Graham nr. 7, Richard Nixon nr. 8, Jóhannes XXIII. páfi nr. 9 og McArthur nr. 10. Þetta er 16. árið, sem Gallup könnun hefir farið fram á þvi hvaða menn Bandaríkjamenn dái mest. Allir þeir 10 efsbu 1961 hafa áður verið meðal hinna efstu á listanum, frá því að skoðanakönnunin hófst og Eisenhöwer hefur 10 sinnum verið efstur. Kennedy var í 4. sæti á listanum í fyrra. hann hótar Hollendingum styrjöld. Hann þykist báðum fótum í jötu standa. Þessi austræni einræðisherra legg- ur sig nú allan fram um að æsa upp þjóðerniskennd með al Indónesíumanna. Hinir fjarskyldu og frumstæðu Papúar á Nýju Guineu eru allt í einu orðnir bræður Indónesíumanna!! Allt þetta atferli er hið ógiftusamlegasta. ÍSLENZK LIST ERLENDIS ó að íslendingar eldi stund um grátt silfur saman út af skáldskap og listum og sitt sýnist hverjum, eins og gengur, hljótum við að fagna því, þegar íslenzk verk fá hljómgrunn með er- lendum þjóðum. Margir ís- lenzkir myndlistar- og tón- listarmenn og skáld hafa unnið góða sigra á erlendum vettvangi og borið hróður lands síns og menningar langt út fyrir landssteinana. Fáir eru svo forhertir í and- úð sinni eða þvermóðsku, að þeir fagni ekki yfir hverjum sigri íslenzks manns á er- lendri grund. Nú er svo komið, að mörg íslenzk bók- menntaverk eru til í góðum þýðingum á erlendum mál- um. Þannig höfum við fært út landamæri okkar og ver- ið minnugir þeirra orða, sem Einar Benediktsson sagði í Væringjum: „Vor þjóð skal ei vinna með vopnanna fjöld en með víkingum andans um staði og hirðir“. Eins og fyrr greinir, sýnist sitt hverjum, þegar bók- menntir og listir eiga hlut að máli. Þannig hefur þetta allt af verið og mun vafalaust verða hér á landi, meðan frelsið ríkir í menningarmál- um. í einræðisríkjum þarf fólk ekki að velta því fyrir sér, hvað er gott eða slæmt frá hendi listamanna. Stjóm- in ákveður það sjálf, og það sem hún leggur ekki blessun sína yfir er bannað. Ekki höfum við lent í slíkri and- legri Sódómu og gerum von- andi aldrei, þó svo virðist sem sumir .listamenn æski þess. Frelsi listamanna á að vera óskert, enda hefur reynslan orðið sú að fáir góðir listamenn spretta úr jarðvegi einræðis. Flestir munu sammála um, að gróska sé í íslenzkum listum, ekki sízt bókmennt- unum. Þó sumum þyki ljóða- dísin hafa sett ofan hin síð- ari ár, virðast íslenzk ljóð fá þó nokkurn byr og er nú unnið að því að þau eign- ist spöl í landi í Danmörku. Morgunblaðið birti fyrir skemmstu yfirlit um ís- lenzka ljóðaþætti í danska útvarpinu, sem var vel tekið og vöktu athygli. Þar voru lesin ljóð eftir 17 íslenzka höfunda. Danskt skáld, Poul P. M. Pedersen, hefur þýtt þessi ljóð. Hyggst hann þýða um 300 ljóð alls og gefa út í bókarformi í samvinnu við Gyldendal og Helgafell. Lítið sýnishorn af þessum ljóðum kom út nú fyrir jólin í kVeri, sem heit- ir „Fra hav til jökel“. Flest- ir íslendingar fagna slíkri kynningu á íslenzkum ljóða- skáldskap, og þó hart sé bar- izt hér heima um rímuð Ijóð og órímuð, góð ljóð og vond, er áreiðanlegt að íslendingar og ekki sízt íslenzk skáld fagna hverri þeirri tilraun sem gerð er til að kynna skáldskap okkar með öðrum þjóðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.