Morgunblaðið - 06.01.1962, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.01.1962, Blaðsíða 18
8 MORGVTSBLAÐIÐ Laugardagur 6. jan. 196Á --------^ Margaret Summerton HÚSIÐ VIÐ SJÚINN Skáldsaga Og þá finna þau hanin? spurði ég skelfd. Ekkert er líklegra. 1 þessu vetfangi kom Lísa þjót andi út um gluggadyrnar og gekk beint að Mark. Svo að loforðin þín eru þá svona miki'ls virði. sagði hún og hvæsti illskulega. í>ú ert búinn að svíkja Esmond. Þú hefur myrt hann eins rækilega og með eigin hendi. Ég hef enga hugmynd um, hvað þú ert að fara, svaraði Mark kuldalega. Hún leyfði honum varla að ljúka við setninguna. Þú ætlar líklega að fara að segja mér núna, að þú hafir ekkert sam- band haft við Adkins og að þú hafir ekki sagt Edvinu, að þú haf ir séð Esmond í Sjávarhóli. Ég hef ekki sagt Edvinu neitt, endurtók Mark dræmt. Ég hef engum sagt neitt. Þú ættir held- ur að tala við Charlotte. Hún stendur í þeirri trú, að hún hafi séð Edvinu og Adkins saman fyr- ir nokkru. Lísa snarsneri sér að mér. Þú gætir ekki hafa séð þau saman. Frú West hefur strangar fyrir- skipanir um að hleypa honum alls ekki inn. Mark sagði: Veit frú West, hversvegna lögreglumaðurinn má ekki fyrir nokkum mun hitta Ed- vinu? Ef þú átt við, hvort hún viti, að Esmond sé á lífi, þá veit hún það. Er þetta ekki orðinn dálítið í- skyggilegur fjöldi af meðsekum hjá ykkur? spurði Mark. Lísa starði á hann þegjandi og með reiðisvip um stund, en sneri sér svo að mér: Sástu þau sam- an? Ég sagði henni, hvað mér hafði sýnzt og hún stóð þegjandi, með skrítinn vafa- og reiðisvip á and- litinu. Síðan sagði hún: Ég trúi þessu ekki. Ef Adkins hefði náð í Edvinu, hefðum við öll verið kölluð fyrir hana og málið hefði verið rannsakað á staðnum og stundinni. Ég maldaði í móinn: En til hvers er hún þá að stofna til þessarar heimsóknar í dag? Það er nú eins og hverjir aðrir duttlungar hennar, sagði Lísa. Það er ekki sagt. að það hafi neina þýðingu en samt verður að vara Esmond við. Og þá Tarrand, sagði Mark. Vel á minnst, hvar er hann núna? Hann verður að heiman fram undir kvöld og ég get ekki náð í hann fyrr en þá, sagði Lísa. Þú verður að fara og vara Esmond við, Charlotte. Þegar ég kom að Sjávarhóli, var klukka næstum tvö. Fyrir hálffjögur varð ég að vera kom- in aftur til Glissing, tilbúin að slást í för með hinum. Ég opaði framdyrnar með lykl inum, sem Lísa hafði lánað mér, fór gegn um öll herbergin niðri og síðan upp á loft. í litlu í- löngu herbergi, þar sem fátt var húsgagna, lá Ésmond í rúminu og svaf eins og saklaust barn. Ég settist á lítinn tréstól, sem ætlaði að steypast fram yfir sig, þegar ég settist á hann. Við brakið, sem varð í stóln- um, vaknaði Esmond opnaði aug- un og pírði þeim móti birtunni. Svo rétti hann út höndina. Charlotte! Fyrirgefðu uppistand- ið í gærkvöldi. Þetta hefði verið allt i lagi, ef þú bara hefði ekki tekið Mark með þér. Hann reis upp í rúminu og hristi höfuðið. En þú skalt sjá til að hann verður við óskum okkar Charlotte. Þú þarft ekki annað en hafa auga á honum þangað til annað kvöld. Ég er að reyna það, sagði ég. Hann geispaði. Fyrirgefðu ef ég er hálfrotinn. Ég fékk dálítið kast eftir að þið fóruð í gær- kvöldi, og fór ekki að sofa fyrr en klukkan sex í morgun. Ég skal fara niður og búa til te handa þér, sagði ég. Nei hugsaðu ekki um það. Ég vil miklu heldur. að þú sitjir héma og talir við mig, sagði hann. Brosið á honum var blíðlegt, kæruleysislegt og vingjarnlegt. Sagði Lísa þér.frá því, að Fóstra fór í morgun? Hann Arthur, son- arsonur hennar, kom og sótti hana. Hann rótaði í jakkavasa sín- um og dró upp kruklaða papp- írsörk. Kæri hr. Esmond! Mér þykir leitt að fara án þess að kveðja, en ég vil ekki vekja þig af værum svefni. Arthur er kominn að sækja mig og ég ætla að vera dálítið hjá honum, eins og um var ta'lað. Hann ætlar að skrifa heimilisfangið sitt og síma númerið á verkstæðinu, svo að ef þú vilt fá mig aftur, þarftu ekki annað en segja mér til. Borðaðu matinn þinn og drekktu mjólkina eins og góður drengur. Ég er fegin, að frú Es- mond kemur til að líta eftir þér. Mundu eftir að gefa kettinum tvisvar á dag. Fóstra Neðst á blaðið var skrifað með blýanti og annari rithönd, heim- ilisfang og símanúmer. Jæja, ertu þá sannfærð? spurði Esmond. Já, fuilkomnlega. Ég brosti. Ef öryggi Fóstru væri þannig tryggt, hvað þurfti ég þá að leggja trúnað á hinar getgátumar hjá Mark? Ég sagði Lísu í gær, að það væri tími til kominn, að hún gæfi þér nokkrar upplýsingar kunnugra um Mark, hélt Esmond áfram. Hann er ekki allur þar sem hann er séður, Charlotte. Já. ég veit, að hann er full-álit- legur maður, en hann hugsar nú fyrst og fremst um simn eigin hag, geturðu verið viss um. Okk- ur kom aldrei sérlega vel saman. Hann reisti sig betur við og hélt áfram, næstum reiður: Hvaða er indi átti hann að stinga nefinu í þetta? Þetta hatur hans lífgaði við hollustu mína gagnvart Mark. Af því að Mark trúir ekki, að þessi undankomu-áætlun ykkar sé öll á því hreina, sagði ég án þess að hugsa mig um. Það er hans ástæða til að fara til lög- reglunmar með það. Hann trúir ekki á, að þér takist að komast burt. Hann hló. Það er nýtt að heyra það. Þú getur sagt honum frá mér að hann skuli alveg vera áhyggjulaus. Meðan hann heldur sér saman, er mér óhætt. Hann seildist undir koddan. Líttu á þetta. Ég sá, að þetta var vegabréf, þar sem hann hét Erik Appel- berg og var sæmskur blaðamað- ur, en myndin á því var af Es- mond. Um leið og hann stakk bréfinu aftur undir koddann sá ég annað. Hvað viltu með þetta? Skammbyssan? Jú, ég býst við, ag næstu þrjár vikurnar eða svo þurfi ég að umgangast hina og þessa misendismenn. En þú sagðir, að þessir tveir menn, sem þú nefndir. væru vin- ir þínir, var ekki svo. Ekki kannske beinlínis vinir. En kunningjar. En þú þekkir þá væntanlega? Ég gat ekki leynt vaxandi ótta í rödd mimni, Hann gretti sig gremjulega. Æ, guð mimn góður, Charlotte á hverju stendur það? En ef satt skal segja, þá er það Ivor, sem þekkir þá en ekki, ég. > En þú hefur þó fengið bréf frá þeim, eða að minnsta kosti talað við þá í síma? Láttu eins og þú sért með ein- hverju viti! Ég sem er dauður. Hér eftir tala ég ekki í sima né skrifa bréf. Lögreglan hefur leit- að hér í húsinu frá háalofti til kjallara og ekki veit ég annað en úeir hafi hlustað í símann. Og allar bréfaskriftir við Webster og Souvisant, sem nauðsynlegar hafa verið hefur Ivor annazt, og ef hann hefur eitthvað símað, hefur það verið úr almennings- síma. Ég sagði og var hálfreið. Mér finnst allur þessi undirbúningur eins og þú lýsir honum vera hálf-reyfarakenndur og það finnst Mark líka. Finnst þér það? Æ, Esmond! Reiðin var snögg- lega dottin niður aftur. Það get- ur náttúrlega allt verið ósvikið, en svo gæti það líka verið full- kominn skrípaleikur. Skrlpaleikur! Hann velti orð- inu í munninum. Hvernig það? Gagnvart hverjum? Þér sjálfum. Þú hefur enga sönnun eða tryggingu fyrir því, að þessar skútur og eigendur þeirra séu yfirleitt til. Esmond kinnkaði kolli. Er það Mark, sem hefur fundið þetta út? Já. svaraði ég. Það eina, sem ég sækist eftir, er einhver sönnun, sem nægir til að sannfæra hann um, án alls vafa, að þessi ráða- gerð sé raunveruleiki. og að þú komist burt heill á húfi. Hann svaraði dræmt: Og hvað heldur Mark, að verði um mig, ef þetta reynist allt skrípaleikur, eins og honum þóknast að kalla það? Það veit hann ekki, og það er einmitt aðal áhyggjuefni hans. og ástæðan til þess, að hann vill fara til lögreglunnar. Allt í einu hló Esmond harka- lega. Jæja, þá hefur maður það! Mark vill koma upp um mig, til þess að bjarga sinni eigin sam- vizku og sitja einn að þér. Hann stóð upp, gekk að skápn- um og tók þar hálsbindi. Meðan hann var að koma því undir skyrtukragann mættust augu okkar í speglinum. Setjum svo, sagði hann, að þessi fáránlega hugmynd Marks sé nú rétt, hvernig á þetta þá að ganga fyrir sig? Ég leit við, svo að ég sá ekki framan í hann í speglinum. COSPPR __________________________ — Ef við giftum okkur fáum við áreiðanlega einn stól i brúðargjöf. Xr >f * GEISLI GEIMFARI >f X- >f — Hver sá, sem skaut á mig úr geislabyssunni, er enn hér í herberg- inu. Klimmer foringi, takið við! Tveim +ímum seinna .... i— G _ .ófuðsmaður, við höfum leitað á öllum. Við höfum leitað um allt herbergið. Hvergi er geisla- byssu að finna né nokkurn leyniút- gang! Eigum við að halda Gar lækni? Eða Pálu? Hún var í nánd við ljósaslökkvarann! — Nei, látið þau laus. Þau gætu vísað okkur á Pétur! Komdu með það. sagði hann. Ég er forvitinn að vita, hvernig hann hugsar sér framhaldið. Hvern heldur hann líklegastann ti\ að ganga af mér dauðum? Tarrand majór. Ivor? Hversvegna, ef ég mættl spyrja. Það held ég varla, að ég geti sagt þéi', sagði ég og færðist undan því að ég þorði varla að segja meira. Þú gerir svo vel og segir mér það strax, þó að ég verði að kreista það út úr þér. Það væri nú til dærhis allgild ástæða, ef hann skyldi vera ást- fanginn af Lísu. Hann sneri sér hægt frá spegl- inum og gekk til mín. Snöggvast hélt ég, að hann ætlaði að berja mig, en svo brosti hann allt í einu. Og svipurinn var rólegur og hreykinn. Það verða allra- handa menn skotnir í Lísu, en hún er bara konan mín, er það ekki? Jú. . Annað gat ég ekki fundið að segja. Nú, þú trúir mér ekki? Hann var aftur kominn í varnarstöðu og sneri nú að mér, bálreiður. Jæja þetta getur verið nóg! Ég er nú búinn að þola nóg af þér í dag og miklu meira en ég hefði þolað nokkrum öðrum. Ef þú aiíltvarpiö Laugardagur 6. janúar (Þrettándinn) 8:00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8:05 Morgunleikfimi: Valdimar Örn« ólfsson stjórnar og Magnús Pét-* ursson leikur undir. — 8:15 Tón leikar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tón-* leikar — 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónleikar). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar -•* 12:25 Fréttir og tilkynningar). 12:55 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sig* urjónsdóttir). 14:30 Laugardagslögin — (15:00 Frétt** ir). 15:20 Skákþáttur (Sveinn Kristinsson). 16:00 Veðurfregnir. Bridgeþáttur (Hallur Símonars.), 16:30 Danskennsla (Heiðar Ástvalds- son). 17:00 Fréttir. — Þetta vil ég heyraí Kristján Davíðsson listmálari vel ur sér hljómplötur. 17:40 Vikan framundan: Kynning á dag skrárefni útvarpsins. 18:00 Barnatími í jólalokin (Anna Snorradóttir): a) Þrettánda- og nýársrabb. b) Ævintýraskáldið frá Óðinsvé- iim; áttunda kynning. c) Framhaldssaga litlu barnanna: „Pipp fer á flakk"; IV. d) „Ljúfa álfadrottning", fram- haldsleikrit með söngvum eft ir Ólöfu Árnadóttur; VI. og síðasti þáttur. — Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Söngstjóri: Sigurður Markússon. 19:00 Tilkynningar. — 19:30 Fréttir. 20:00 Sönvarar og hljómsveit: Sigurð ur Björnsson og Guðmundur Jónsson syngja íslenzk lög með Sinfóníuhljómsveit íslands; Páll Pampichler stjórnar. 20:15 Leikrit: „í duftsins hlut" eftir Halldór Stefánsson. — Leikstjóri: Gísli Halldórsson. Leikendur: Búrik Haraldsson, Guðbjörg Þor bjarnardóttir, Halldór Karlsson, Jón Sigurbjörnsson, Baldvin Hall dórsson, Valur Gíslasön, Valdi- mar Lárusson og Þorsteinn Ö. Stephensen. 21:00 Hratt flýgur stund: Jónas Jónaa son efnir til kabaretts í útvarps- sal. Hljómsveitarstjóri Magnús Pétursson. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Danslög, þ.á.m. leikur hljómsveit Rúts Hannessonar gömlu dans- ana og hljómsveit Svavars Gests ný danslög eftir íslenzka höf- unda. Helena Eyjólfsdóttir og Ragnar Bjarnason syngja með hljómsveit Svavars Gests. 0100 Dagskrárlok. HÁSKÓLANS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.