Morgunblaðið - 06.01.1962, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.01.1962, Qupperneq 21
Laugardagur 6. jan. 1962 MORGUNBLAÐIÐ 21 Land-Rover minnti blaðamanninn á vatnahest í sjón. Af þess- ari mynd að dæma virðist hann einnig gera það í raun. — Land-Rover Framh. af bls. 11. sem þurfa þykir í þeim efnum. — Hann benti á, að Hekla hefði nú um tólf ára skeið annazt umiboð fyrir Rover-venksmiðjumar á Is- landi. — Og nú, þegar innflutn- ingur bifreiða er orðinn frjáls hér, mun árangurinn af hinu langa samstarfi þessara fyrir- tækja koona að fullu í ljós, öllum Land-Rovereigendum á Islandi til hagsbóta, sagði mr. Coe. — Auðvitað eru allir Rover-menn ánægðir yfir því, að umboðs- mönnum okkar skuli þegar nafa tekizt að selja 150 Land-Rover bila — en þó þykir mér það enn meira virði, að þeir hafa tekið hinar ánægjulegu markaðsbreyt ingar föstum tökum — m.a. með sérhæfingu á starfsliði sínu, í því skyni að fá annað hinum auknu viðskiptum, og með því að senda menn út til verksmiðj- anna til tækniþjálfunar. Mr. Coe sagðist hafa gert sér far um að kynna sér sem bezt ástand vega hér á landi — og eftir þá athug- un væri hann þess fullviss, að Land-Rover væri sá vagn, er einna bezt mundi henta okkur til aksturs utanbæjar á öllum árs- tímum. Hann kvaðst hafa veitt því athygli, að við hefðum í notk un allmi'kið af nokkuð gömlum bílum, sem vart uppfylltu lengur kröfur tímans. — En tkni manna héfir aldrei verið jafndýrmætur og nú, sagði hann. — Ef þú átt heima úti í dreifbýlinu — hvort heldur sem þú ert bóndi, læknir eða eitthvað annað — er þér nauðsynlegt að komast frá heim- ili þínu til vinnustaðar eða verzl unarbæjar með svo öruggum, ó- dýrum og hagkvæmum hætti sem unnt er. Vegna hins sérstaka á- stands samgönguleiða úti um land, er mikilvægt að hafa til umráða bíla með 4-hjóla drifi — eins oig t.d. Land-Rover. Auðvitað er um fleiri tegundir að velja — en Land-Rover er sérstaklega miðaður við hin ólíkustu og erf- iðustu aksturskilyrði, og miér er ekki kunnugt um, að framleidd ur hafi verið annar vagn, er taki honum fram að því leyti. Enda er það mála sannast, að Land- Rover hefir í ýmsum löndurn orð ið eins konar strætisvagn dreif- býlisins, ef svo mætti segja. Leyfi ég mér að vona og ætla, að svo j geti einnig orðið hér á landi með tíð og tíma. • Land-Rover kemst á leiðarenda. Engir ættu betur að vita það en fréttamenn, að oftast er á- stæða til að beita smávegis frá- drætti, þegar menn eru að kynna eigin framleiðslu eða verzlunar- vöru — enda er það lélegur kaup maður, sem lastar sína vöru. En þá er ég enn minni mannþekkjari en ég hefi talið sjálfum mér trú um, ef þessi hægláti og hógværi Englendingur er skrumari — og ekki má treysta orðum hans nokkurn veginn. Við fréttamenn irnir fengum líka nokkra sönnun þess með hinum glannalega sýni akstri í Öskjuhlíðinni á dögunum, að Land-Rover lætur hreint ekki að sér hæða — og ég hygg, að menn ættu að geta verið nokkurn veginn öruggir um að komast á leiðarenda í slíkum vagni á flest- um vegum og vegaleysum á ís- landi. • Fannst hann vera „heima“ hér. Það var ánægjulegt að ræða við mr. George Coe. Hann virtist hafa gert sér ótrúlega glögga hugmynd um íslenzkt þjóðlíf og íslenak málefni við mjög skamma dvöl hér. — Hann hældi íslendingum á hvert reipi fyrir ljúft og kurteislegt viðmót og ríka menningu, sem hvarvetna setti mark sitt á daglegt líf manna. Hann kvað Island vera 42. landið, sem hann hefði heim- sótt á vegum fyrirtækis síns — en hvergi hefði hann hrifizt eins af landi og þjóð sem nér, þótt dvöl sín hefði víða orðið lengri. Mr. Coe lauk viðtalinu með því að láta í ljós þá von, að hann mætti brátt eiga erindi á ný til íslands — „þar sem mér finnst sem ég sé „heima“, eftir aðeins nokkurra daga dvöl“. Ég gekk af fundi Englendings- ins með þá tilfinningu, að hann væri örugglega kominn í hóp hinna margumræddu íslandsvina. — H. E. Skrifstofustarf Þekkt útgerðarfyrirtæki hér í bæ óskar eftir að ráða nú þegar eða, sem allra fyrst mann vanan skrifstofustörfum. Þarf að vera vanur bókhaldi og vélritun auk þess að hafa nokkra kunnáttu í ensku og dönsku. Tilboð er greini fyrri s'örf og meðmæli ef til eru sendist afgr. Mbl. merkt: „7294“. Vélskip til leígu Hefi verið beðinn að selja á leigu 250 tn. vélskip. Upplýsingar gefur JÓN N. SIGURÐSSON, HRL. Laugaveg 10, sími 14934. - ,Gamli maðurinn' Framhald af bls. 10. Það er sárgrætilegt að við skulum ekki fá að sjá þetta hérna, myndir eftir snillinga eins og t.d. Antonioni. — En svo við víkjum að „Gamla manninum og hafinu“ þá fannst mér hún ekki nógu mikil kvikmynd; ekki hafa nógu mikið kvikmyndalegt gildi. Mér finnst sagan hjá Hemingway vera betri bók- menntir heldur en fram kom í þessari mynd. Ég held að átakið hafi verið mest í and- litinu á Spencer Tracy, sem manni var ósköp hlýbt til í þessu hlutverki, eins og reynd ar í öðrum hlutverkum, sem hann hefur leikið. Að ýmsu leyti var myndin frá tækni legu sjónarmiði stórgölluð í skiptingu og fleiru.“ SIGURÐUR GRÍMSSON. segir m.a.: „....gildi hennar (myndarinnar) er fyrst og fremst í þeim táknræna sannleika, sem að baki sögu- þráðinum býr.... Mynd þessi hefur hvarvetna hlotið mikið lof fyrir listræna gerð hennar og leikur Spencer Tracy’s í hlutverki gamla mannsins hefur vakið mikla aðdáun allra, sem myndina hafa séð, enda er leikur hans alveg frábær1* — Sjá enn- fremur umsögn á bls. 6. Dr. GUNNLAUGUR ÞÓRÐARSON. Ég bjóst við því að mynd- in væri langdregin, því að sagan er í sjálfu sér ekki efnismikil, en mjög hugstæð. Myndin fannst mér skemmti- leg og sérlega vel tekin. 12 ára sonur minn, sem var með mér, og er mikill fiskimaður, hafði mjög gaman af því að horfa á þessa baráttu gamla mannsins við stóra fiskinn. SIGURÐUR A. MAGNÚSSON. — Mér finnst myndin mjög falleg sem einskonar „mynd- skreyting" á sögu Heming- way’s, en sem kvikmynd finnst mér hún missa marks; það vantar í hana einhverja „plastiska“ fyllingu. Sagan er svo innhverf, að hún kemur ekki að fullu til skila í kvik- mynd, enda er augljóst að lestur sögumanns er neyðar- úrræði. Gamli maðurinn í myndinni hefur engan veginn þá reisn, sem hann hefur í sögunni. — hh. — Gifurleg hálka Framh. af bls. 24. eyjargötunni í átt að miðibæn- um, en þegar bíllinn var kominn til móts við húsið nr. 23, segir bílstjórinn að sér hafi virzt hægra framhjól bílsins festast. Snarsnerist bíllinn þá til hægri og lokaði götunni fyrir Volks- wagenibjl, sem hann var að mœta. Skipti engum togum að Volks- wagenbíllinn skall með miklu afli á vinstri framihlið leigutoíls- ins, sneri honum langsum á göt- unni, þannig að leigutoíllinn sneri í öfuga átt við upphaflega stefnu. Við áreksturinn lenti höfuð ökumanns Volkswagentodlsins á framrúðunni og kom gat á hana við höggið. Skarst hann á höfði af glerbrotunum. Einnig var stýri Volkswagenbílsins brotið og gengið alveg fram að mæla- borðinu, og bakið á framsætinu lá niðri. Báðir bílarnir stór- skemmdust, eins og sjá má af forsíðumynd, og var leigutoíllinn Með KIWI gljá skórnir betur og endast lengur Með KIWI naest gljálnn ekki aðeins fljótast heldur verður hann þá einnig bjartastur.KIWl verndar skóna fyrir sól og regni. Ef þér notið KIWI reglulega, munuð þér fljótt sji hversu mikið lengur skórnir endast og hve þeif verða snyrtilegri. Snyrtimenni um allan heim nota KIWI O. Johnson & Kaaber h/f Reykiavik HOTEL HAFNIA við Ráðhústorgið - Kþbenhavn V. Herbergi með nýtízku þægindum. GÓÐ BÍLASTÆÐI Veitingahús - Tónleikar Samkvæmisalir Sjónvarp á barnum Herbergi og borðpantanir: Central 4046 LÆKKAÐ VERÐ UM VETRARTfMANN. fjarlægður af kranatoíl. — Öku- maður Volkswagentoílsins, Reyn- ir Guðmundsson, Barmahlíð 45, var fluttur á slysavarðstofuna og fór síðan heim eftir að búið hafði verið um sár hans. Nokkrir metrar milli árekstra Á meðan lögreglan var að vinna við áreksturinn á Sóleyj- argötunni, varð árekstur nokkra metra frá, vesfcar á götunni. Þar var maður á ferð í Volkswagen- bíl á mjög lítilli ferð, en skyndi- lega snarsnerist bíllinin og öku- maður missti algjörlega vald á honum. Rann bíllinn að gang- stéttinni og lenti þar á kyrrstæð um bíl, en skemmdir urðu frem- ur litlar. Má af þessu ráða hiví- lík hálka hefur verið, Á sleða fyrir bíl Um klukikan hálf sjö voru tveir strákar að renna sér á skíðasleða eftir Langagerði að Réttarholtsvegi. Kom bíll á móti þeim og misstu strákamir vald á sleðanum. Lentu þeir framan á bílnum, sem þá mun hafa ver- ið stöðvaður. 5 ára drengur. sem sat framan á sleðanium var flutt- ur á slysavarðstofuna. Mun hann hafa meiðzt eitthvað, en ekki alvarlega. Búizt við hálku í dag, akið varlega Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar var það fyrst og fremst hálkan, og of hraður akstur miðað við hana, sem flest- um slysunum og árekstrunum olli í gær. í gærkvöldi var enn hálka víðvegar um bæinn. en kólnað hafði. Spáð er að hitastig hækki nokkuð í nótt og má því búast við hálku í dag. Eru ökumenn áminntir að gæta ítrustu varúðar í akstri og taka fullt tillit til hálkunnar og reynslunnar frá í gær. Samkomur Filadelfía Sunnudagaskólahátíð barn,- anna verður á morgun kl. 2. Kristiboðssambandið Almenn samkoma í Kristniboðs húsinu Betaníu í kvöld kl. 8,30. „Kristileg sikó‘lasamtök“ koma í heimsókn. — Nýjar fréttir frá Konsó. Hugleiðing: Jóhannes Sig urðsson. — Á morgun: Sunu- dagaskólinn kl. 2 eh. Öll böm velkomin. Samkomuhúsið Zion Óðinsg. 6A. Á morgun: Almenn samkoma ki. 20,30. Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna K. F. U. M. Á morgun: Kl. 10,30 fh. Sunnu dagaskólinn. Kl. 1,30 eh Drengja deildirnar Amtmannsstig og Langagerði. Kl. 8 30 eh. Fórnar- samkoma. Nýtt verkefni. Tveir stjórnarmeðlimir tala. Einsöngur. Allir velkomnir. Bifvélavirkja — Vélvirkja Óskum eftir að ráða bifvélavirkja og vélavirkja. Mikil eftirvmna. Tilboð sendist Mbl. fyrir 10. þ.m. merkt: „7456“. Hjálpræðisherinn í kvöld kl. 20 Síðasta almenna jólahátíð. AHir hjartanlega vel- komnir. Sunnudag: Samkomur kl. 11 og 20,30. enxisla Tek að mér að hjálpa börnum við heimalestur. Guðrún Lárusdóttir — Sími 33790 Kennsla Enska, danska. Kennsla hafin. Nokkrir tímar lausir. Kristín Óladóttir — Sími 14263. RYSLINGE H0JSKOLE 3 og 5 mdr. hojskole fra 3. maj. Udvidet undervisniing: Gymnasfíí:, musik, sprog. Forberedelse til sygeplejeudd. Plan sendes. G. Damgárd»Nielsen, tlf. 234. UNGAN VERKFRÆÐING með 2 börn vantar 3—4 herbergja íbúð strax. — Upplýsingar í síma 37041.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.