Good-Templar - 01.07.1902, Qupperneq 9
81
vilja, en kaupa það alls ekki af þeim. Þetta er að vísu erfið-
ari leið og seinfarnari, en hún er eðlilegri og happadrýgri.
Bindindi útbreiðist æ meir og meir, og bindindishugmyndin
hefir rutt sér til rúms hjá fjölda manna, sem standa fyrir ut-
an allan bindindisfélagsskap. Útlit er því fyrir, að bindindi út-
breiðist miklu meir á næstu 5 árum, en það heflr gert á síð-
ustu 5 árum. Munu þá flestar og ef til vill ailar áfengisverzl-
anir á landinu lagðar niður, og það án iagaboðs. Þessi leið
er seinfarnari; það veit eg vel. En á það legg eg ekki svo
mikla áherzlu. Betra að vinna lengui' og vinna vel. Eða verð-
ur það eins góð bindindismenska að hætta að drekka vín, af
því ómögulegt er að veita sér það. eins og hitt, að hafna því,
þar sem það er á boðstóium?
En vínið er eitur, alstaðar skaðlegt og mesta mein þjóð-
ar vorrar, segja menn. Hví skyldi þá ekki hiklaust útrýma
því á hvern þann hátt, sem hægt er? Þegar þjóðin skilur
þetta, þegar hún trúir því, að það sé satt, þá þarf ekki að
útrýma áfengisnautninni með lögum, þvi öilum er eiginlegt að
vilja hið bezta fyrir sig kjósa.
Pað sem því bindindismönnum ber að gera, er að út-
breiða þekkinguna á þessum skaðlega drykk og kenna mönn-
um bindindi. Það er alls ekki óárennilegt að standa í bind-
indisliðinu nú á tímum og horfa á, hvernig Bakkus hopar fyrir
atlögum bindindismanna, og mundi margur fremur kjósa að
halda bardaganum áfram í sömu stefnu eftirleiðis, heldur en
að eiga að fara að halda vörð við rifur þær á bannlögunum,
sem Bakkusarvinir mundu reyna að smjúga í gegnum með
anker sín.
Óneitanlega er það frægðatorð fyrir Göod-Templanegluna,
verði vinnautninni bygt út úr landinu með lögum. En það er
miklu fegra frægðarorð, að henni hafl verið bygt út án laga-
boðs með frjálsum samtökum, og væri vel tilvinnandi að biða
nokkur ár eftir slíkum sigri.
Mér virðist það óþarft trúieysi á þessu góða málefni að
ímynda sér, að í þjónustu þess þurfl að beita öðrum vopnum
en þess eigin: trúnni, voninni og kærleikanum.
!E. @.
*