Muninn

Árgangur

Muninn - 01.01.1952, Blaðsíða 4

Muninn - 01.01.1952, Blaðsíða 4
22 MUNINN Blakmót karla Blakmóti karla lauk 15. desember síðastl. með sigri 4. bekkjar S., a-liðs. Lið þetta var skipað rnjög jöfnum og góðum mönnum, sem ekki láta bugast, þó að á reyni. Það sýndu þeir bezt í úrslilaleiknum við 6. bekk M., sem þeir unnu. Þeir unnu alla keppi- nauta sína og hlutu 28 stig, og eru þeir vel að sigrinum komnir. Liðið var skipað þessum mönnuin: Sverrir Georgsson, Friðleifur Stefánsson, Sigurður Sigurðsson, Sveinn Jónsson, Vilhjálmur Einarsson, Örn Baldvinsson. Sex efstu liðin urðu þessi: 1. 4. S. a 28 stig 2. 6. M. 26 stig 3. 5. M.A. 24 stig 4. 3. A. 22 stig 5. 5. S. a 20 stig 6. 6. S. a 18 stig Blakmót kvenna Blakmót kvenna hófst í íþróttahúsi M.A. 10. janúar s.l. Sjö lið tóku þátt í mótinu, eitt frá hverjum bekk skól- ans nema öðrum bekk, sem sendi tvö lið til leiks. Áhugi virtist vera ntikill fyrir mótinu, ekki sízt meðal piltanna, sem fjölmenntu flest kvöld mótsins í íþróttahúsið. Þetta var annað kvenna- blakmótið, senr haldið er hér í skólan- um, og virðist áhugi fara vaxandi fyrir þessari góðu íþrótt meðal kvenfölks- ins. Margir af leikjum mótsins voru mjcg jafnir og spennandi, og var það oft aðeins tilviljun, hvort liðið bar sig- ur úr býtum. 5. bekkur fór með sigur af hólmi í þetta skiptið. Liðið var þannig skipað: Maja Sigurðardóttir, Stefanía Stefánsdóttir, Rannveig Gísladóttir, Birna Þórarinsdóttir, Þórey Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir. Einstök lið: 6. bekkur: Liðið var mjög misjafnt, en náði oft góðunr leik, þegar Jrað var í „stuði“. Var leikurinn við 4. bekk bezti leikur Jreirra. Annars áttu þær oftast í harðri baráttu við keppinauta sína og töp- uðu eða unnu flesta þeirra með nijög fáum boltum. Bezt léku Erna og Hanna Gabriels. .5. bekkur: Þetta var vafalaust heilsteyptasta liðið, sem kom fram á mótinu. Hefir orðið mikil framför hjá því frá Jrví í fyrra. Eru þær vel að sigrinum komn- ar, því að flesta leikina unnu þær með yfirburðum. Beztar voru Stella, Birna og Rannveig. 4. bekkur: Samleikur var mjög lélegur í liðinu, og höfðu stúlkurnar yfirleitt lítið vald ylir boltanum að Jóhönnu undantek- inni, sem var stoð og stytta liðsins. Sýndi hún beztan leik á þessu móti. Kristín var einnig allgóð í vörninni. 3. bekkur: Liðið var nokkuð jafnt, en óheppn- in virtist elta Jrað. Hefðu stúlkurnar gjarnan mátt vera hreyfanlegri á vell- inum. Beztan leik sýndi Anna Kvaran. 2. bekkur a.: Þetta lið var mjög jafnt, og vörnin ágæt. Voru stúlkurnar vel hreyfanleg- ar og höfðu mikinn baráttuvilja, en hann verður ætíð að vera fyrir hendi, ef ná skal góðum árangri. Beztan leik sýndu Guðbjörg, Bryndís og Svala. 2. bekkur b.: Leikur Jressa liðs var oft mjög léleg- ur, einkum var vörnin nrjög í molum. Virtist leikendur skorta mjög æfingu í samleik. Gæti þetta lið vafalaust náð mun betri árangri, ef vel væri æft, því að- efnin vantar ekki í góða leikendur. Beztar voru LJnnur og Anna. 1. bekkur: I Jressu liði var baráttuviljinn næg- ur, og sýndu stúlkurnar oft mikinn dugnað og þrautseigju. Verða þær vafalaust mun framar á næsta blak- móti, ef Jrær æfa vel. Beztan leik sýndi Jónína Helgadóttir. Einn leikur er nú eftir af mótinu og er því ekki ennjrá hægt að birta loka- úrslitin. X -J- Y. LEIÐRÉT TIN G: I síðasta blaði voru ranghermd föð- urnöfn Jrriggja manna í knattspyrnu- liði 4. bekkjar, Magni Guðnason á að vera Guðmundsson, Skúli Steingríms- son á að vera Steinjrórsson og Loftur Guðmundsson á að vera Magnússon.

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.