Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1959, Blaðsíða 16

Muninn - 01.12.1959, Blaðsíða 16
Við teljum það algjöran óþarfa að telja upp allar þcer vörur, sem fdst kunna i verzlun okkar, þið komið hvort eð er til okkar fyrst, við viljum nota þessa auglýsingasíðu i þetta skiptið aðeins til að þakka ykkur viðskiptin, og itreka það álit okkar, að þið séuð stórum betra fólk en foreldrar ykkar og reynsla okkar er sú, að við getum sannað það með raunhæfum dæmum frá verzlunartíð okkar, sem tekur nú yfir fimmtán ár, að ungt fólk er prúð- ara í umgengni en fyrir áratug siðan, að við nú ekki tölum um foreldrana. Við þökkum ykkur sem sé góða viðkynningu á undanförnum árum, og ját- um fúslega þá fávísi okkar, að við höfum ekki hugmynd um, hvar allur sá skrill, sem nú ku vera að vaxa upp, er niður kominn. Svo óskum við ykkur og fjölskyldum gleðilegs jólaleyfis. BÓKABÚÐ RIKKU Ásg. Jak.

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.