Muninn - 01.03.1961, Qupperneq 3
A K U R E Y R I
Þessa dagana sýnir L. M. A. gamanleik-
inn Vængstýfða engla eftir franska rithöf-
undinn Albert Husson, undir stjórn hins
ágæta leikstjóra Benedikts Arnasonar. Þeir
sem séð hafa sýninguna ljúka upp einum
munni um það, að sjaldan hafi leikfélaginu
tekizt betur í starfi sínu en einmitt nú. iÞað
er gleðilegt til þess að vita, að í skólanum
skuli vera til nemendur, sem geta gert jafn
erfiðu verkefni jafn góð skil.
Félagsmálastarfsemi nemenda, hverju
nafni, sem hún nefnist, krefst ævinlega mik-
illar vinnu og alúðar af þeirra hálfu.
Stundum hefur það viljað brenna við, að
nemendur hafa látið námið sitja á hakan-
um, til þess að geta sinnt hugðarefnum sín-
um. En það er erfitt að þræða hinn gullna
meðalveg í þessu efni, sem öðru og þegar
uppskeran í garði Thalíu er jafn ríkuleg og
nú er, er ástæðulaust að sýta liðnar stundir.
Það sigrar enginn án fórna né uppsker án
þess að sá. Og það er óhætt að óska hinum
ungu leikurum og öðru starfsliði leikfélags-
ins til hamingju með sína uppskeru. Þetta
verkefni var þeim til sóma. —
Leikritið „Vængstýfðir englar“ er ekki
nýtt af nálinni, það hefur verið sýnt í öllunr
helztu leikhúsum Evrópu og Ameríku og
alls staðar vakið mikla kátínu. Efnið er að
vísu ekki viðamikið en fyndnin er hárfín
og leikritið samið af mikilli list og þekk-
ingu. Fyrir nokkrum árum sýndu mennta-
skólanemar úr Reykjavík leikritið í Iðnó,
n i n n
Ó L A N S Á
VÆNGSTÝFÐIR ENGLAR
og einnig var sýnd hér ágæt kvikmynd,
byggð á leikritinu, með þeirn Humprey Bo-
gart, Peter Ustinov og Aldo Ray í aðalh.lut-
verkum. Leikritið f jallar um þrjá sakafanga
á Djöflaey og kaupmannsfjölskyldu, sem
þeir hjálpa úr ýmis konar kröggum af góð-
mennsku sinni og „skörungsskap". Einnig
koma mikið við sögu tveir frændur kaup-
M U N I N N 55