Muninn - 01.03.1961, Side 11
taug, hver fruma í líkama hans, sál hans,
var í spurningunni. „Já,“ svaraði hún lágt.
„Já!“ hún hafði blá, yndisleg augu. „Já!“
hún elskaði hann. „Já.‘
„Eftir þrjár vikur kem ég aftur af sjón-
um, og þá verðum við alltaf saman.“
„Þarftu að fara?“ Hún var óróleg og hélt
fast utan um hann. „Já, en ég kem aftur. í
raun og veru fer ég ekki frá þér. Þú ert
hluti af mér, og ég er hluti af þér. Það er
þannig, af því að við elskumst. Þegar ég fer,
þá ferð þú. Hvar sem ég er, þar ert þú.
Það er guð, sem segir það. Og við skiljum
það núna. Það er ástin. Þess vegna get ég
farið, af því að þú ert í mér, og ég er í þér,
og ekkert getur skilið okkur sundur. Skil-
urðu við hvað ég á?“
„Ég veit það ekki. En ég veit, að þú elsk-
ar mig.“
„Allt líf er ást. Allt, sem lifir. Þessi jörð,
sem við iiggjum á, er fósturjörðin okkar.
Finnurðu, hvernig hún heldur utan um
þig? Hvernig hún þrýstir jrér að sér. Svo
undurblítt. Eins og móðir þín, Jregar þú
varst barn. Við erum börn þessarar jarðar.
Jörðin elskar mig, elskar þig. Allt.“
Þegar kólnaði um kvöldið, gengu þau
burt. Tvö saman. Piltur og stúlka. Tvö
saman. Eitt. Þ. Geirsson.
LEIÐRÉTTING
í öðru tölublaði Munins í ár birtist verð-
launabotn Óttars Einarssonar við fyrripart,
sem „slegið var upp“ á skemmtun Munins
í haust. Því miður misritaðist botninn, en
réttur er hann svona:
Stoðar ekki boð né bann,
beitt er þekking Amorslista.
Blaðið biður höfund velvirðingar.
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNUMÓTIÐ
Knattspyrnumót í. M. A. fór fram í októ-
ber og nóvember, og ber að Jrakka knatt-
spyrnunefnd fyrir, hve mótið gekk vel fyrir
sig, en það rná kallast fátítt, að móti þessu
sé lokið fyrir jól.
Að þessu sinni var keppt í tveimur riðl-
um, í fyrri riðli ,léku miðskóladeild og III.
bekkur. III. bekkur sigraði með yfirburð-
um í þeim riðli og öðlaðist því réttindi til
að leika í seinni riðlinum, eða með efri
bekkjunum. Allir efri bekkirmr sendu eitt
lið hver, nema fjórði, sem sendi tvö lið.
Keppni í efri riðli lauk með sigri A-liðs
ijórða bekkjar, aðrir urðu sjöttu-bekkingar,
J^á fimmti bekkur, f jórðu urðu þriðju bekk-
ingar, en B-lið fjórða bekkjar rak lestina
með eitt stig.
Leikirnir í mótinu voru nokkuð góðir,
'en þó báru leikir milli fjórða og sjötta
bekkjar af, en þeir bekkir léku tvo leiki til
úrslita, hinn fyrri varð jafntefli, en þann
síðari unnu fjórðu bekkingar með tveirn
mörkum gegn einu, eftir hörkuspennandi
leik, sem hefði eins getað lokið nreð sigri
sjötta bekkjar, en það sem bjargaði sigri
fjórða bekkjar var það, að vörn þeirra
reyndist sterkari en sjötta, en annars eru
liðin mjög jöfn.
Um liðin er annars Jretta að segja:
Fjórði bekkur B-lið: í þessu liði léku
piltar, sem allir eru liðtækir í knattspyrnu
en vantaði algjörlega hörkuna, þeir náðu
jafntefli við fimmta bekk, og má það teljast
gott. Fjórði bekkur sýndi enn og sannaði
hve mikill íþróttaandi er ríkjandi í bekkn
um með Jrví að senda tvö lið.
Fimmti bekkur: Lið J^etta var ósamstillt
og ójafnt og var að margra áliti slakasta lið
riðilsins.
III. bekkur: Lið þetta á góða einstak-
linga, og liðið gæti orðið gott með meiri
M U N 1 N N 63