Muninn - 01.01.1969, Blaðsíða 3
B L A Ð
m u n i n n
MENNTASKÓLANS Á
A K U R E Y R I
Janúar . MCMLXIX . 41. ár . 2. tölublað
Orð í tíma töluð
To be or not to be, that is a question.
Nikolai Ivanovich Lobatchevsky.
Nú og Á komandi tímum, en þó einkum og
sér í lagi áður fyrr á þeim tímum sem líða
hjá í óbugandi, óbitanlegri rósemi og trú,
hefur sá barnalegi en refsiverði og þó af-
sakanlegi leikur með orð orðið að hnika
fyrir því athæfi að stara í gaupnir sér og
láta gamminn geysa án tillitssemi til hugs-
unarinnar staðfestu og órjúfanlegs eðlis svo
samslungnu málinu okkar ylhýra sem hverj-
um og einum mun tamara en organleikur
sá sent ofviðrið heyr á Dröngum { kaldrana
sínum og háttbundinni tíðni, og jafnvel —
svo ekki sé meira sagt — miskunnarlausri
kaldhæðni og kæruleysi með það eitt fyrir
augum að mata sinn eigin krók án sjálfs-
gagnrýni eða nokkurs vilja til endurbóta
sem hljóta þó að vera númer eitt í hverju
sjálfstæðu þjóðfélagi sem vill láta eitthvað
gott af sér leiða og byggir ekki tilveru sína
á vafasamri, díalektískri efnishyggju, eða
eins og hvað eftir annað hefur verið bent á
af ótölulegum grúa framsækinna valda-
manna, að enginn hlutur getur orðið án
þess að vera eða hafa verið, hvað þá hann
muni nokkru sinni verða það sem hann
getur aldrei orðið eða mundi geta orðið eða
mundi hafa getað orðið, ef hann yrði það
sem hann er eða var eða væri, eða þá jafnvel
orðið það sem hann ætti að verða eða að
minnsta kosti ætti að vera eða mætti vera
eða hefði átt að verða eða vera, eða ef hann
yrði t. d. það sem hann var eða hafði í
liyggju að verða eða vera, né heldur verið
það sem hann mundi verða að vera orðinn,
svo ekki sé minnst á að hann yrði það sem
hann aldrei hefur orðið sbr. Egilssögu.
Nikolai Ivanovich Lobatchevsky.
Sigurður Jakobsson sneri lauslega
úr hnútaletri.
MUNINN 47