Muninn

Volume

Muninn - 01.01.1969, Page 6

Muninn - 01.01.1969, Page 6
skapraunar. Hann lítur snúðugt á mönnnu sína, og stendur síðan hægt á fætur. Hann hefur verið fremur seinn á sér uppá síð- kastið. En það er sjálfsagt bara þessi langa innivera, hugsaði móðir hans. Drengurinn hefur varla komið rit fyrir hússins dyr í viku. Ef til vill lagaðist skapið örlítið við að koma út undir bert loft. — — Niður úr kjallaranum heyrðust ham- arshögg. Einhver var að smíða. Kalli opnar kjallaradyrnar uppá gátt, og kallar háum rómi: „Konda sækja vatn Palli“. Ekkert svar. Drengurinn kallar enn hærra, og end- urtekur sömu orðin. Hamarshöggin halda áfram. Þá er þolinmæði Kalla á þrotum, og hann öskrar af öllum mætti: „P-a-l-l-i, ertu heyrnarlaus“? Hamarshöggin hætta. Andlit Palla birtist neðan úr kjallaranum: „Var einhver að kalla“? „Það er mikið að þú heyrir maður, ég er búinn að æpa á þig í hálftíma. Við eigum að sækja vatn. Náðu í fötuna um leið og þú gengur“. Ivalli var orðinn æstur. Honum blöskraði heyrnar- leysi bróður síns. Þeir voru nú komnir út á hlað, og nú blasti sveitin við þeim. Hún var nú bara skrambi falleg sveitin þeirra, þegar það gat loksins stytt upp. Að horfa niður á engjarnar, var eins og að horfa á málverk, þar sem allt er kjurt. Túnin voru á litinn eins og grænn ostur, og var ofur- lítil dalalæða hér og þar. Annars var mynd- in ákaflega skýr. — — Grasið var ennþá vott eftir rigninguna, og það myndaðist far eftir fótspor þeirra, er þeir gengu niður túnið. Þeir báru fötuna á milli sín. Hún sveiflaðist til í höndum þeirra, svo að ískraði dulítið! Þetta var gömul fata. — — Nú voru þeir komnir niður á veginn, sem lá niður að brunninum. Það hafði létzt á drengjunum brúnin, og þeir voru komnir í bezta skap. Meira að segja farnir að segja hvor öðrum brandara. En það höfðu þeir ekki gert lengi. Þeir höfðu ákaflega sér- o o o kennilegan luimor þessir litlu drengir. „Imyndaðu þér prestinn í samfestingi Smá- sagnasamkeppnin Skilafrestur í smásagnasamkeppni Munins rann út 20. des. síðastliðinn. Höfðu þá borizt alls 12 sögur all mis- jafnar bæði að gæðum og frágangi. Dómnefnd, skipuð Friðrik Þorvalds- syni, kennara, Bárði Halldórssyni, kennara og Sigurði Jakobssyni, þótti engin saga verð fyrstu verðlauna, en veittu sögu Þórgunnar Jónsdóttur 6.— A. „Skuggi“ 2. verðlaun og sögu Jóns Georgssonar 6.—X. „Gömul sagau 3. verðlaun. Óskum við hér með sigurvegurum til hamingju. Ritnefnd. 50 MUNINN

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.