Muninn

Árgangur

Muninn - 01.01.1969, Blaðsíða 8

Muninn - 01.01.1969, Blaðsíða 8
Það var nótt. Utan af hafinu kotn storm- urinn og bar með sér svört, tætingsleg ský in yfir borgina. Stjörnurnar, sem aðeins ()ðru hvoru komu í ljós á milli skýjanna, horfðu áhugalausar á fjötruð skipin á ísi- lagðri höfninni. Þarna lágu þau bundin hvert við annað, og gátu ekkert aðhafst annað en að benda ásakandi möstrum sín- um á stjörnurnar, eins og allt væri þetta þeim að kenna. En stjörnurnar virtu þau ekki viðlits. Úr kjallara einum við norðurenda hafn- arinnar barst glaumur frá drykkju. Rvðgað járnskilti, sem hékk út yfir strætið og sveifl- aðist til í næðingnum, sýndi, að þetta var krá. Gidleitt útiljós lýsti nokkra metra út í myrkrið og uppeftir hrörlegri húshliðinni. Ilúsin við götuna voru öll eins, þau hímdu þarna í frostinu og héldu dauðahaldi í hvert annað eins og þau væru aðframkomin af kulda. Kaldir, svartir reykháfarnir bentu á stjörnurnar með sömu ásökun og skipin. Þær horfðu jafn áhugalaust á móti. Hávaðinn frá kránni jókst allt í einu, J^egar dyrnar opnnðust og út kom hópur skvaldrandi og hlæjandi manna. Það marr- aði í snjónum undan óstyrkum fótum Jjeirra, þegar Jjeir héldu niður götuna. Þeir voru að fara heim. Flestir þeirra áttu heima þarna í nágrenninu og hópurinn þynntist því fljótt. Óreglnleg röð flöktandi ljósa í ■óhreinum gluggum sýndi hvar |)eir höfðu stanzað og kvatt félaga sína með háværum hlátrum og hrópum í myrkrinu. Að síðustu voru aðeins tveir eftir. Þeir voru hættir að hlæja og gengu nú þöglir með hendur í vösum. Andardráttur þeirra varð að frost- nálum, sem vindurinn tætti jafnskjótt í burtu. Loks var hann aleinn. Hann gekk álútur og hlustaði á marrið í snjónum. Þetta var þreytulegur maður. Nokkurra daga gamlir skeggbroddar undir- strikuðu fölt andlitið. Hann var í her- mannafrakka og berhöfðaðnr. Vaxandi gol- an lék sér að ósnyrtilegu hárinu. Hann var að velta því fyrir sér hvernig Jretta mundi verða. Nú var langur tími liðinn síðan hann strauk frá vígstöðvunum. Hann mundi ekki nákvæmlega hversu langur, en hann mundi eftir þjáningafullri dvölinni í hernum. Hann hafði að vísu eignazt Jrar nokkra vini en það fór allt á sama veg. Einhvern daginn vorn J)eir horfnir eða lágu allt í einu svo undarlega hljóðir við hlið hans. Hann hafði dreymt brostin augu J)eirra á nóttunni. Loks Jioldi hann þetta ekki lengur. Hann vildi komast heim, heim til hinna raun- verulegu vina sinna, vina, sem ekki hurfu allt í einu, heldur voru þarna, [tegar hann þurfti á þeim að halda. Svo komst hann heim, en þá var allt breytt. Þeir voru allir farnir, sumir í herinn, aðrir eitthvert ann- að. Enginn þekkti hann lengur, fólkið var orðið svo undarlegt. Það virtist hugsa um Jjað eitt að græða peninga á stríðinu eða J)á að gleyma Jrví, ef til vill hvorttveggja. Hann liafði drukkið. Þegar hann drakk, gat liann hlegið og gleymt eins og hinir, en eftirá heltók einmanaleikinn hann. Þessi einmanaleiki hafði smám saman snúizt upp í örvæntingu, sem aldrei yfirgaf liann, held- ur jókst nteð hverjum degi. En í nótt var liann algjörlega tilfinningalaus. Engin örvænting, engin hugsun, ekkert nema nokkrar óljósar ntinningar og enn óljósari grunur um hvað framundan var. Hann \ issi varla hvert hann var að fara, eitthvað, 52 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.