Muninn - 01.01.1969, Qupperneq 12
um fullveldisárið 1918, einkanlega full-
veldissamningana, sem gerðir voru það ár.
Erindið var einkar fróðlegt og skemmtilegt,
enda er Gísli mjög fróður um þessi efni
og kom út bók eftir hann fyrir jólin um
árið 1918. Kennsla féll niður daginn eftir
vegna undirbúnings fyrir árshátíðina og
þann dag kom Muninn út, fróðlegur og
skemmtilegur að vanda.
Árshátíðin hófst svo að kvöldi laugar-
dagsins 30. nóv. í borðsal heimavistarinnar.
Björn Þórarinsson, inspektor scholae, setti
samkomuna og stjórnaði henni. Undir borð-
um flutti Sigurður jakobsson minni Is-
lands, Erlingur Sigurðsson minni skólans,
Guðrún Pálsdóttir minni karla og Sveinn
Jónsson, Egilsstöðum, minni kvenna. I lok
borðhaldsins ávarpaði skólameistari nem-
endur og gesti, en Guðmundi Karli var orð-
fátt. Dansað var nú í fyrsta sinn í Raunvís-
indahúsinu, en setustofur og þ. u. 1. voru í
gamla skólanum. Hljómsveitin Þögnin lék
lyrir dansi, og í heild má segja að hátíðin
hafi tekizt mjög vel.
Föstudaginn 6. des. talaði Jón Jónsson
fiskifræðingur á Sal um störf fiskifræðinga
og hafrannsóknir. — Sama dag sýndi kvik-
myndaklúbburinn tékknesku myndina
„Rómansa fyrir trompet“ og er hún ein sú
bezta, sem klúbburinn hefur sýnt í vetur.
Á laugardagskvöldið var setustofuball og
bar Jrað Iielzt til tíðinda þar, að tvær stúlk-
ur úr G.A. sýndu go-go-dans, og er jiað með
dapurlegri skemmtiatriðum, sem hér hafa
sézt í langan tíma.
Tónlistardeild hélt kynningu að kvöldi
fimmtudagsins 12. des. á sönglögum Schu-
berts og Schumanns, og var kynningin ágæt,
en afar fámenn.
Kvöldið eftir voru kynntar nokkrar ís-
lenzkar bækur á vegum bókmenntadeildar,
og á laugardagskvöldið hélt 4. bekkur jóla-
ballið í Raunvísindahúsinu, og komu Jrar
fram jólasveinar og gengið var í kringum
jólatré. O’Hara lék fyrir dansi.
Hin árlega jólakvöldvaka Hugins fór
fram í Raunvísindahúsinu á mánudags-
kvöldið. Séra Birgir Snæbjiirnsson flutti
jólahugvekju, Trausti Jónsson og Kristján
Sigurbjarnarson fluttu gamanþætti, 24
M.A. félagar sungu undir stjórn Sigurðar
D. Franzssonar, og þrír vitringar svöruðu
nokkrum spurningum, sem fyrir Jiá voru
lagðar.
Jólaleyfið var svo gefið þriðjudaginn 19.
des. Skólameistari flutti ávarp og árnaði
nemendum gleðilegra jóla og sunginn var
jólasálmur. Rafmagnslaust var meðan á at-
höfninni stóð og varð hún hálfu hátíðlegri
lyrir bragðið. Og lýkur hér annál að sinni.
Jón Guðni.
Nafn
/
a
raunvísindahúsié
Eins og flestir nemendur hafa
eflaust fundið er orðið raunvísinda-
hús afar óhentugt nafn, bæði langt
og ólipurt í munni.
Muninn hefur því ákveðið að
auglýsa eftir tillögum frá nemend-
um um nafn á þetta ágæta hús.
Nafnið verður að sameina Jiað
að vera fallegt íslenzkt nafn, fara
vel í munni og vera svo virðulegt
sem hæfir þvílíkri stofnun.
Tillögum má skila í Huginskassa
á miðgangi eða til ritnefndar. Til
greina kemur að veita verðlaun
fyrir snjallar tillögur.
Ritnefnd.
56 MUNINN