Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1932, Síða 3

Heimilisblaðið - 01.01.1932, Síða 3
I>eza Khan, konungur Persíu er hraustur heimadur. Það er sjaldan, sem vér heyrum sögur frá Persíu. Og þó er það ríki á framfara- skeiði eigi síður en sum nágrannaríkin þar eystra; það er eins og Persía hafi eins og þau, sofið í hundrað ár. Til saman- burðar mætti helzt nefna Tyrkland, en þó er eigi enn hægt um það að dæma, hvort Persía taki eins miklum stakkaskiftum. Fyrir Tyrklandi ræður nú Kemal Pasha, alræðismaður. En fyrir Persíu ræður líka voldugur maður, Reza Khan, eða Sha (konungur), eins og hann er kallaður. Fyr- ir fám árum var hann hrottalegur her- maður; bar hann þá ekki af lagsbræðr- um sínum að öðru leyti en frábæru lík- amlegu atgervi og hreysti. En að and- legUi atgerfi stóð hann á svo lágu stigi, sem framast mátti verða. Plann kunni hvorki að lesa né skrifa. Það má því furðu- legt þykja, að hann skuli hafa komist til valda í Persíu og gert alla hina sundur- leitu þjóðflokka í því landi að einu vold- ugu ríki. Persía hefir til skamms tíma verið þrætuepli ýmsra ríkja, einkum Englands og Rússlands. Ensk félög hafa um lang- an aldur fært sér steinolíulindirnar þar í nyt, en í þær vildu Rússar líka ná. En Englendingar stóðu betur að vígi og skorti eigi hyggindi til að fylgja Reza Khan að Bóndasonurinn, sem varð konungur Persíu. Pað purfti hardfylginn mann til ad ad koma öllu á réttan kjöl í Persíu, og pessi madur var Reza Khan, harð- vítugur hermaður.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.