Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1932, Side 18

Heimilisblaðið - 01.09.1932, Side 18
144 HEIMILISBLAÐIÐ »En við töldum þig- af,« mœlti hann og- þrýsti frænku sinni að sér. »K'a; skil ekk- ert í, hvernig á því gat staðið, að ég fann þig ekki, og' að þú lentir í, öðrum bát en ég. Ég' hefi ásakað mig ótal sinnnm fyrir þetta. En mér var blátt áfram fleyg't of- an í bátinn. og þar lá ég í óviti um hálfa klukkustund, eftir að ýtt var frá skip- inu. Legar ég raknaði við aftur, varð ég þess var, að hvorugt ykkar Giles var í bátnum. Það var voðalegt áfall fyrir mig, þetta, og síðan hafa verið þungbærar stundir fyrir okkur heima, elsku Elsa mín. Við þorðum ekki að gera okkur neinar vonir framar —- og- þó — vonin er samt það, sem við mennirnir höldum okkur lengst í. Við vonuðum og vonuðum, þvert ofan í alla heilbrigða skynsemi. Guði sé lof, að það fór svona vel að lokum. Við megum vera, forsjóninni þakklát, sem hald- ið hefir verndarhendi sinni yfir þér, barn- ið mit-t. Og við megum þakka Giles!« bætti Sir John við og lagði höndina á handlegg hetjunnar. Elsa svaraði engu. Hun starði út um glug'gann með dreymandi augnaráði. Hug- ur hennar var langt í burtu á lítilli suðurhafseyju, með pálmatrjám og brött- um klettum - sólbrennandi klettabyrgi, þar sem maður, klædduu- í tötra, barðist eins og Ijón fyrir fjöri hennar og frelsi. Hún sá fyrir sér hið svipsterka, hugrakka andlit ha,ns. Svo sneri hún við höfðinu og rak þá augun í brosandi smettið á Giles, og fór hrollur um hana. Lundúnaborg! Ilinar kæru, gömlu, troð- fuJlu götur. Þyrpingin af bilum og spor- vögnum, eilífur, óþrjótandi fólksstraumur og mannþröng! Lafði Ventor vafði EIsuí að sér og kom lengi ekki upp einu einasta orði. Síðan gekk hún til Giles og faðmaði hann. »Kæri, kæri Giles!« mælti hún með á- kafa, »ef þér aðeins vissuð, hve hreykin við erum af yður. En hvað þér hafið sýnt mikla hugrekki og snarræði! Að hugsa sér, að án yðar aðstoðar, hefðum við nú ekki haft elsku Elsu litlu hjá okku.r. Giles, þér eruð eigi aðeins okkar hetja, þér eruð hetja allrar Lundúnaborgar — alls Bret- lands!« »Giles skal sannarlega hljóta allan þann heiður, sem hann verðskuldar,<; mælti Sir John brosandi. »Það er heilsíðumynd af honum í einu hinna stórui myndablaða í kvöld.« Morguninn eftir hafði Giles dubbað sj- upp, eins og Effington greifa sæmdi. Ka*'" aði hann á leigubíl og ók ofan í miðbse. City. »Curtisstræti nr. 7, Strönd,« sagði hann við bílstjórann. Bílstjórinn hneigði sig og bar henöina upp að húfunni. »Þar á maður líklega ekki á hættu, ay hitta sjóræningja,, lávarður góðu,r,« hann og brosti. Giles brosti líka. Bílstjórinn þekti hann. Alt fólk þekti hann. — Myndin í ?8er' kvöld hafði verið alveg ágæt. I Curtisstræti 7 þektu menn líka Eff' ington lávarð. Á hurðinni hékk látúns- plata, seili tilkvnti, að hér héldu til einka- leynilögreglumennirnir Hawkson & King’- Það var aðalmaðurinn, forstjórinn, hr- King, sem tók á móti hinum virðulega gesti, og forstjórinn var alveg þrunginn af bi’osi og virðingu og hneigði sig í sífell11 fyrir Giles. »Ég má líklega treysta því, að hvert eitt viðskiftamál, sem ég fæ yður til ar' greiðslui verði starfrækt með fylstu leyne og trúnaði. Það sem ég óska að fá gert, er algerlega prívat eðlis,« mælti Giles. _ »Hamingjan góða, herra lávarður. ÖU starfsemi vor er auðvdtað grundvölluð a strangasta trúnaði í öllum störfum.« Giles kinkaði kolli. »Ég þarf að láta njósna um manneskju,* sagði hann stuttaralega. »Það þarf að ger- ast rækilega, látum okkur segja viku- tíma.« »Það tökum við að okkui- með mestu ánaegju. Þér getið verið alveg öruggur unj það, lávarður minn, að hlutaðeigandi manneskju skal verða. veitt eftirför, hvert sem hún fer og aldrei slept af henni auga-^ Giles kinkaði kolli. »Það er dama, sem um er að rseða- Ég ímynda mér, að næstu viku muni hun fara í heimsóknir hingað og þangað. Nu vil ég fá nákvæma vitneskjui um þá staði, sem hún vitjar. Nöfn og heimilisfang þeirra, sem hún heimsækir — alt saman nákvæmt og rétt út í yztu æsar.« »Já, sjálfsagt, lávarður minn. Þesshátt- ar er hversdagslegt verkefni fyrir okkur- Við fáum hundruðum saman af þesshátt- ar beiðnum, og ég er svo djárfur að segJa’ að til þessa hafa viðskiftavinir vorir ver- ið mjög ánægðir —- mjög svo ánsegðir/ mælti hr. King, með sannfæringarkraftn

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.