Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1914, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.07.1914, Blaðsíða 10
56 HEIMILISBLAÐIÐ Undan orustunni við Isthib, urðu Serbar þess varir, að fjandmenn þeirra notuðu einkenni- lega aðferð við njósnir sínar. Kúasmali var með fimm kýr á beit á hœð nokkurri, miðsvegar milli herbúðanua. Margoít um daginn rak hann kýrnar niður hæðina, ýmist eina eða tvær, og stundum íleiri. A þann hátt gaf hann Búlgurum stöðugt merki um afstöðu fjandmannanna. Igngið. Þessi fallega þjóðsaga er til um lyngið: Þegar Guð hafði lokið sköpun skóganna, plantnanna, jurtanna og blómanna, bauð hann þeim að taka sér stöðu þar, sem þau kysu helzt að eiga sér ból, og þau tóku sér öll bólfestu. Pálminn lagði leið sina suður í lönd, í sólina og veðurblíðuna. Furan þrammáði upp á hálsa og hæðir og greri þar há og tiguleg. Birkið skreið fram á bakkana og brekkurnar og önnur lauftré á eftir. í stuttu máli: hver tegund sett- ist þar að, sem henni þótti hagfeldast. En gras- ið og blómin þöktu jörðina hvarvetna. Að lokum var lyngið eitt eftir. Það stóð og var hugsi. „Nú, nú, hvers vegna fer þú ekki líka?“ ávarpaði Guð lyngið. „Ó, herra, reiðstu mér ekki“, mælti lyng- ið, „eg ætlaði aðeins að biða og sjá, hvort eng- in staður yrði eftir, þar sem ekkert hinna vildi festa sér ból, og nú sé eg langt, langt norður frá nakta kletta og gróðurlausar heiðar. Má eg fara þangað? Mig fýsir að fara þangað og vera þar, og búa til jarðveg þar, ef ske kynni, að seinna meir vildi koma þangað blóm og jurtir og gróa þar“. Og Guði þótti þetta fögur hugsun, og félst á hana. Og hann laut niður að lynginu, kysti það og mælti: „Gakk leið þína og njóttu blessunar!“ Og jafn snemma og Guð kysti lyngið, uxu angandi, fögru, rauðu smáblómin á kvistum þess og kræklum. Og lyngið hélt leiðar sinn- ar, glatt og fagnandi, til þess að klæða nakta kletta og gróðurlausar heiðar, og búa jarðveg- inn undir komu blómanna og jurtanna. ikritlur. Bankagjaldkeri einn í Ameríku heimsótti eitt sinn nafnkunnan málafærslumann og tjáði hon- um, að i skúffu bankans vantaði 50,000 dali, sem hann yrði að standa skil á, en fénu væri hann búinn að eyða. Enn vissi þó bankastjórn- in ekkert um þetta. Spurði hann málafærslu- manninn ráða. „Farið og stelið 50,000 dölum úr skúffunni í viðbót“, mælti málafærslumaðurinn. Gjaldkeranum þótti þetta kynlegt ráð, en lfiýddi þó, fór og stal 50,000 dölum i viðbót. Þá skrifaði málafærslumaðurinn bankastjórn- inni og tjáði henni, að einn starfsmaður bank- ans hefði stolið 100,000 dölum úr skúffu bank- ans, eu nú vildu venslamenn hans leggja fram helming fjárins gegn því að málið væri látið falla niður. Bankastjórnin tók þessu boði frem- ur en að fara að leggja út í málaflækjur og fá kanske aldrei neitt. A. : - Getið þér ekki gefið mér örugt ráð gegn mýbiti ? B. : Jú, dveljið þá bara aldrei á þeim stöð- um, þar sem mý er. Þernan: Karl! sækið þér fljótt vatn, frú- in .hefir fallið í yfirlið. . Karl: Æ, hvert á það að vera þvottavatn drykkjarvatn, munnvatn, augnavatn, sódavatn eða — — —. Barnablaðið „Æskan“ kemur út i Reykja- vík mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þess sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20. Útg.: Aðalbjörn Stefánsson og Sigurj. Jónsson. SKINFAXI, 16 siður á mánuði. Flytur myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvis- um kaupendum „Þjóðfélagsfræði“, eft- ir Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri Jónas Jónsson frá Hriflu. Útgefandi og ábyrgðarmaður: Jón Helganon prentari Félagsprentamiðjan.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.