Heimilisblaðið - 01.08.1914, Blaðsíða 3
8. tbl.
III. árg.
Reykjavík í ágúst 1914.
SPPÍ á fjalli.
Eftir Kr. Janson.
Hve loftið er hreint og létt og svalt
uppi’ á fjalli!
Hve stórt er og frjálst og fagurt alt
uppi' á fjálli!
Og léttur er fótur, létt er brá,
og létt er þunganum brjósti frá
uppi’ á fjálli.
Ó, kom þú úr dalnum djúpa nú
upp á fjallið.
Þig eftirá gleður gangan sú
upp á fjállið.
Hin blómlega hlíð þar sýnir sig,
og sólargeislarnir elta þig
upp á fjallið.
1 þrönga dalnum þér ofrnótt er.
Kom á fjállið.
Það grunar engan hve gott er hér.
Kom á fjállið.
Hér sérðu vítt yfir frónin fjœr.
Hér finnst þér að sértu himni nœr.
Kom á fjállið.
Að gyltum beði nœr gengur sól
bak við fjallið,
og finna sér aftan skuggar skjól
upp við fjallið
í geislum baðar þá gjörvalt sig
og glaðvœrir draumar hefja mig
yfir fjallið.
Lauslega þýtt nf Br. J.
lafa föníkumenn fundið imeríku.
(Að mestu eftir „Hjemmet“. Þýtt at' Þ. F.)
„Hvar lá landið Ofír“? er ein af þeim spurn-
ingum sem fræðimenn ýmsra þjóða öldum sam-
an hafa leitað lausnar á. Hið eina sem vér vit-
um um land þetta er frásögn biblíunnar, að
Salómon konungur ísraelsmanna og Híram kon-
ungur í Týrus gerðu út skip saman, — fyrir
hér um bil 3000 árum siðan, — til landsins
Ófir til þess að sækja gull og silfur o. fl. Skip
þessi, er voru þrjú sarnan, komu fyrst aftur eftir
þriggja ára tíma, og var gull það og silfur er
þau fluttu, notað við byggingu musteris þess er
Salómon lét reisa í Jerúsalem.
Hið eina, sem almenningur vissi um þetta
málmauðga land, var það, að það lá einhvers*
staðar hinumegin við Rauðahafið, og skipin
þurftu þriggja ára tíma til hverrar ferðar; hinir
einu er um þetta vissu frekar, voru hinir eið-
svörnu stýrimenn og skipverjar. Þegar svo skip
Föníkumanna,einhverraorsaka vegna, hættu þess-
um ferðum, hvarf Ofir smátt og smátt í gleymsk-
unnar djúp. Jafnvel Jósefur hinn frægi sagna-
ritari Gyðinga vissi ekki hvar það lá, því frá
dögum Salómons til hans tíma, höfðu skjalasöfn
musterisins þrisvar brunnið. Hann stóð i þeirri
meiningu að þar væri aðeins um Indland að
ræða. Síðan hafa ótal fræðimenn brotið heilann
um þessa spurningu og leitað Ófír í Armeníu,
Spán, Malakka, Ceylon o. v. og loks taldi þýski
landkönnuðurinn Garl Peters hið gamla Ófír vera
landspildu, rústum þakta, meðfram Zambesi-fljót-
inu i Austur-Afríku.
Eftir þvi sem útlend blöð skýra frá, telur
amerískur fræðimaður, prófessor Crawford John-
ston sig hafa nú fyrir stuttu leyst þá spurningu,
hvar ófír hafi legið og um leið annari æfagam-