Heimilisblaðið - 01.08.1914, Side 4
58
HEIMILISBLAÐIÐ
alli, en þó sí-ungri spurningu, nfl. hver hafi
fundið Ameríku?
Samgöngur hafa að líkindum átt sér stað
milli hins gamla og nýja heims, löngu áður en
Leifur hinn hepni fann Ameríku og það ekki
aðeins af tilviljun eða um stundar sakir, því
menning sú er Cortes og Spánverjar undruðust
svo mjög er þeir stigu á meginland Ameríku,
hefir að miklum likindum orðið fyrir áhrifum
frá Kína, því á stjórnarárum Wuh-Tí keisara
hér um bil 500 árum e. Kr. vita menn að hóp-
ur Buddapresta ferðuðust til ókunnugs megin-
lands í austri, er þeir töldu vera, sem aðeins
gat verið Mexikó eða vesturströnd Ameríku, en
hinar nýju rannsóknir próf. Johnstons mega að
miklu leyti teljast sanna að aðrir ferðamenn
Asíu-ættar, hafi þekt Ameríku löngu á undan
Kínverjum.
Próf. Johnston kemst að þeirri niðurstöðu
með rannsóknum sínum að Ofír sé sama landið
og meginland Ameríku, og æfintýramenn þeir
sem sigldu frá Tarsus fyrir nærfelt 3000 árum
síðan hafi fundið hana. Viðvíkjandi þessu hefir
prófessorinn athugað þjóðlíf hinna eldri kynslóða
beggja vegna Kyrrahafsins, hina gömlu amer-
isku þjóðflokka: Azteka, Mayá ogTolteka, ásamt
Gyðingum og Fönikumönnum, auk ibúa Kyrra-
hafseyjanna: Maoría og Malaja, og hefir hann
fundið með þessum rannsóknum sínum, margt
sameiginlegt og mikið samræini í siðum þessara
þjóða, sögum þeirra og þjóðareinkennum.
Hin eina þjóð, sem próf. Johnston gatfund-
ið frá þeim tíma, sem fær hefði verið til slíkra
ferða voru Fönikar, og víst er það, að skip þau
er þá voru notuð, voru miklu stærri í raun og
veru, an alment er talið, sem sjá má af því er
biblían segir frá, þar sem skip það er Páll post-
uli ferðaðist með er hann leið skipbrot, hafði
276 menn innanborðs, og þegar Jósefus var
kastað i hafið hafði skip hans 600 farþega.
Það sem próf. Johnston hefir við að styðjast
frá Austurlöndum, eru sagnir biblíunnar í Kon-
unga og Kronikubókunum um ferðir Tarsus-
skipanna til Ófír er komu aftur eftir þrjú ár
með svo mikið silfur, að því var þá í Jerúsal-
em „líkt við steina", auk gulls, fílabeins, apa
og páfugla. í löndunum sunnan Miðjarðarhafs
var svo lítið um silfur, að það var talið verð-
mætara en gull, en það fanst aftur á móti á
Spáni, en þangað sigldu skipin ekki, heldur í
austurátt, og var þá meginland Ameríku fyrsta
landið í þeirri átt sem auðugt var að silfri.
I samband við þetta, setur próf. Johnston
tímabil úr sagnabálki Azteka í Ameríku, sem
kallað er „Votanska“ tímabilið eftir hálfguði ein-
um, Votan að nafni sem á að hafa komið með
nokkur stór skip að Kyrrahafsströndinni, hér
um bil 1000 árum f. Kr. einmitt á sama tíma
og sendiferðir konunganna Salómons og Hírams
til Ófír byrja.
Skipshöfn þessara Tarsusskipa, telur prófess-
orinn líklegt, að hefir verið bæði af fólki Saló-
mons og Hírams konungs, auk málaliðs af hin-
um herskáu þjóðum, Skyþýum og Þrakverjum,
er bæði Gyðingar og Föníkumenn tóku oft á
rnála.
Þar sem próf. Johnston gengur út frá þvi
sem vissu, að Ameríka hafi verið takmark þess-
ara ferða, hefir hann leitað upp sjálfa leiðina
er þeir hafi farið. Venjuleg leið Föníkumanna
til Indlands lá sunnan við Arabíu og svo með-
fram austurströnd Indlands, og áframhald þeirr-
ar leiðar, hlaut svo að liggja um Sumatra, Java,
Torre-sund, Samoaeyjar, Tahiti og Páskaeyjar.
Þessa leið hefir hann lannsakað alla og telur
sig viðast hvar hafa fundið menjar Föníkumanna
og fylgdarliðs þeirra, og kernst hann helzt að
þeirri niðurstöðu, að málaliðið hafi verið skilið-
eftir á þessum millistöðvum, til þess að gæta
þeirra, en Fönikumenn og Gyðingar hafi sjálfir
numið land í hinu nýfundna landi Ófír. Prófes-
sorinn hefir i þessu sambandi, fundið ýms Sky-
þýsk og Þrakversk nöfn á eyjunum og einkenni-
legt samræmi i ýmsum siðum, — t. d. hörunds-
flúr (Tatovering) Maorianna er mjög líkist Þrak-
verja o. fl., o. fl. I stuttu máli, sé það margt
í lifnaðarháttum og þekkingu innfæddra manna á.
Kyrrahafs-eyjunum, sem bendi á utanaðkomandi
áhrif. Tölvísi þeirra og hugmynd um alheim-
inn, stjörnufræði og trúarbrögð séu auðsýnilega
Fönisk að uppruna, en þjóðsagnir frá Gyðing-
um runnar. Byggingarlist Mexikóbúa í fornöld,.
telur hann runna frá Fönikum, lögin frá Gyð-