Heimilisblaðið - 01.08.1914, Blaðsíða 10
6é
HEIMILISBLAÐIÐ
miljónir, annars er likið eign okkar“. Ekkjan
svaraði skjótt: „Eigið það j)á!“
Ur tíu-króna gullpeningi er hægt að búa
til 8 km. langan þráð. Auðvitað er þessi þráð-
ur undur mjór, aðeins Vioooo úr millimetra.
I Ítalíu fæddist fyrir nokkru síðan ein-
kennilegt lamb í heiminn. Skrokkarnir voru
tveir, það var áttfætt, en hafði eitt höfuð. Lamb-
ið lifði aðeins örfáar mínútur eftir fæðinguna.
Dæmi þessu lík eru fátíð, en koma þó fyrir
bæði hjá mönnum og dýrum.
Stærstu farþegjaskip heimsins þurfa 3 min.
til að stöðvast og á þessum 3 mín. hafa þau
jafnvel farið míluáttung danskan, svo er skriðið
mikið.
Útsölumenn og kajjipendiir Heimilsblaðs-
ins út um land, sem ekki hafa borgað blaðið
fyrir þetta ár, bið eg svo vel gera, að senda
borgunina með næsta pósti. — Líf og framtíð
Heimilisblaðsins er í höndum kaupenda þess,
því enginn sérstakur flokkur í landinu styrkir
það með fjárframlögum. Það sem í vanskilum
verður með blaðið, vill útgefandinn bæta úr,
þótt ekki séu vanskilin altaf honum að kenna.
Það er sorglegur sannleiki, að stórar blaðasend-
ingar tapast oft, sem með póstinum hafa send-
ar verið. En slikt lendir ætið á afgreiðslunni,
skuldinni skelt á hana, og er kaupendum og
útsölumönnum nokkur vorkun í því efni. En
blöðin hér í Reykjavík kvarta svo alment yfir
vanskilum á póstsendingum, að ástæða er til að
ætla, að póstafgreiðslan sé sumstaðar í miklu
ólagi.
í garði þeim, sem heyrir til höllinni Os-
borne á eynni Wight, vex myrtusviður, sem
er frægur vegna þess, að allar brúðir i ensku
konungsættinni bera eina eða fleiri greinar i
brúðarvendi sína af þessum myrtusviði.
Blómvöndur sá, sem Alexandra drotning
bar við brúðkaup sitt var t. d. skreyttur mörg-
um greinumSaf þessum viði. Blómsturvasinn
var úr silfurbergi og allur settur gimsteinum.
Hann var gjöf frá indverskum höfðingja.
III Arg. | Keykjavlk i &Rú8t
Fyrsta tölublað af þessum árgangi er þrotið.
Það verður endurprentað. Utg. biður á með-
an þá, sem pantað hafa blaðið síðan það
þraut, að vera þolinmóða. Þeim skal verða sent
það strax og það er prentað,
Bræðurnir, heitir ein af langbeztu og nafn-
kendustu sögum enska skáldsins Rider Haggards.
Stórmerkileg saga. Hún byrjar að koma út í
Heimilsblaðinu innan skams. Hún er löng og
verður því lengi að koma. En smærri sögur
verða hafðar með, eins og verið hefir hingað til.
Kaupcndur blaðsins austanfjalls borgi
blaðið til Andrésar Jónssonar kaupmanns á
Eyrarbakka. Þar eystra hefir blaðið mikinn fjölda
kaupenda, og treystir útgefandi þvi, að þeir,
sem ekki eru búnir að borga það, geri svo vel
og láti það ekki bregðast að borga það i haust-
kauptíðinni.
Kaupendur blaðsins í Reykjavík sem ekki
hafa borgað blaðið, eru vinsamlega beðnir að
vitja þess til útgefanda á Lindargötu 34, því
það verður ekki borið heim til þeirra fyr en þeir
hafa borgað. Eru þá lika beðnir að gera að-
vart ef breyting verður á um bústaði.
Barnablaðið „Æskan“ kemur út í Reykja-
vik mánaðarlega, 12 blöð á ári, og auk þ'ess
sérstakt jólablað. Árg. kostar aðeins kr. 1,20.
Utg.: Aðalbjörn Stefdnsson og Sigurj. Jónsson.
SKINFAXI, 16 síður á mánuði. Flytur
myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvís-
um kaupendum „Þjóðfélagsfræði", eft-
ir Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri Jónas
Jónsson frá Hriflu.
Utgefandi og óbyrgðarmaður:
Jón Helgason prentari
F élagsprentBmiðj an.