Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1916, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.01.1916, Blaðsíða 8
6 HEIMILISBL AÐIÐ Töframaður með uppréttan, stirðnaðan hand- legg, langar og bognar neglur, sumar gengn- ar gegnum lófann. það eru alþektar iðkanir töframannanna. Slíkt hið sama, að ganga með glóandi kolamola í rnunni, og drgast áfram með fimmhundruð punda þunga, bundinn við skrokk eða fætur. Og all- torveld æfing hlýtur það að vera, að ganga með krefta hnefa, unz hendin er orðin vansköpuð og neglurnar vaxnar gegnum lófann og út um handarbakið. Sjálf-valin, algerð þögn er uppáhalds mein- læting þessara sjálfsníðinga. Og þess eru dæmi að töframaður, sem annars var vel máli farinn, gekk svo árum skifti, án þess að mæla orð af munni. En það eru líka til kátlegar sögur um slíka „málleysingja“, sem skyndilega hafa þurft að taka til málfæranna. Til dæmis er svo mælt um einn, er komst í stælu við konu sína út af fimm smákökum, sem hún hafði búið þeim til. Þau gátu ekki orðið ásátt um það, hvernig þau eettu að skifta í milli sín kökunum. Og loks kom þeim saman um að ganga undir þagnar- okið. Það sem fyr yrði til að rjúfa þögnina, skyldi fá tvær kökur, en hitt þrjár. Þegar liðnir voru nokkrir dagar og nágrannarnir höfðu ekk- ert heyrt né séð til munksins né konu hans, fóru þeir heim til þeirra til að vita hverju það sætti. Þau lágu hæði í rúminu og virtust vera dauð. Þau voru tekin og flutt á kostnað ríkis- ins til líkbrenslustöðvarinnar, lögð þar á sinn viðarköstinn hvort — og kveikt í. En þegar logana fór að leggja um fætur munksins, þótti honum nóg um og ráðlegast að gefast upp. Og líkmennirnir urðu meira en litið óttaslegnir, er þeir heyrðu hann alt í einu hrópa: „Jæja, ég læt mér nægja tvær kökur!“ Og strax heyrð- ist rödd konunnar frá hinum kestinum: „Eg hefi þá unnið; fáið mér hinar þrjár!“ Það eru æfagamlar brellur lndversku mein- lætamannanna, að láta kviksetja sig. Sögð eru dæmi þess, að töframaður hafi raknað við aftur eftir að hafa legið sex vikur í gröfinni. Læknar neita því ekki, að menn geti lifað f svo langvinnum dvala. En engin vísindaleg ráðn- ing er enn fengin á þessu einkennilega dauða- dái Indversku töframannanna. Og yfirleitt hafa vísindin lítið fengist við háttu og athafnir þessara dulrænu manna. En það er í rauninni illa farið, því að það væri afar-fróðlegt að fá ábyggiiegar úrlausnir á þeim mörgu gátum, sem óneitanlega hjúpa líf þeirra. Eftir þvi sem tímar líða, verða töframenn- irnir æ færri og sjaldgæfari. Og ef til vill er þess ekki Iangt að bíða, að þeir hverfi alveg úr sögunni. Heimsmenningin hefir engaástæðu tit syrgja þá. En ferðamennirnir munu injög: sakna þeirra. £. ál. „jgjehr gieht!“ (Siðustu orð Goetlies). I undirvitund álls sem til er oy sálu geymir, þar leikur eitthvert undraspil, — þar eðli lifsins dreymir. Og þó i sóldýrð sindri rós, þá samt það hvislar: „Meira Iji5s/“' það sjálfu sér ei gleymirl

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.