Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1917, Blaðsíða 6

Heimilisblaðið - 01.04.1917, Blaðsíða 6
40 HEIMILISBI.AÐIf) breyta nokkru, til öryggis og varnar lífi voru og góöri líðan, hvað sem uppá kann að koma? Já, vér getum og eigum að hugsa og gera eins og flestar aðrar þjóðir gera nú, flestar að vísu nauðugar, þær, sem styrjaldarneyðin sjálf liggur á, en sumar líka viljugar af forsjá og fyrirhyggju. En hvað er þá það? Það er það, að taka upp einfatdara og kostnaðarminna líf en áð- ur, spara eða synja sér sjálfkrafa um margt, sem án má vera, og jafnframt hagnýta sér á sem drýgstan, ódýrastan og hollastan hátt það, sem ekki má án vera. En hvað gætum vér þá gert; eða munum vér geta gert nokkuð svipað? Daglegan mat og drykk og klæðnað verð- um vér þó allir að hafa, svo að oss líði vel; og margir mu ekki hafa meira af þessum nauðsynjum en svo, að síst mega þær minni vera, Reyndar segja nú margir læknar, að fjöldi fóiks missi heilsu og deyi fyrir sitt endadægur af óhófi í mat og drykk og skaðræðisfullum tískuklæðnaði — náttúrlega á góðu dögunum helst. En yfirleitt held eg, að erfiðisfólk megi ekki minni eða lakari mat og föt hafa en það alment hefir hér. „Enginn fer það svangur — og fullir kunna flest ráð“, segja góð og gömul máltæki. Enginn má né á að erfiða svangur, ef annað er möguiegt, enda verður þá líka lak- ar og minna unnið; en hæfilega saddur maður getur unnið vel og mikið, og á að gera það; og honum verður líka síst orku og ráðafátt. Og líkt er að segja um klæðnaðinn. Enginn getur verið né má vera án hlýrra og góðra klæða úti í vetrarkuldanum okkar og ekki heid- ur sitja inni í húskuldanum. Eg er því viss um, að ekkert af þessu má Vera öllu minna né lakara en það er, fyrir ali- an aimenning vor á meðai. Það skyldi þó helst vera, að ýmislegt mætti betur hagnýta eða með- höndla og undirbúa til neyslu og nota. En það er annað, sem missast má, eða að m. k. mikið minka: Margt eða flest glingur og prjál, og mörg eða flest munaðarvara, sem samtals kostar offjár, og eyðir langsamlega um of eig- um manna frá því, sem nauðsynlegt er og nyt- samiegt, og það víða svo, að fyrir þ&ð vantar bœdi föt og fóður, og þar með dnœqju og góða líðan. Hér á meðal tel eg alt tóbak — um áfengi ætli ekki að vera að tala — og nú viidi eg, að eg hefði þrek og þol til að fleygja frá mér þessum dýra óþarfa (tóbakinu), sem étur mat bæði frá mér og mínum. Því næst mætti kannske nefna kaffið, sem minka mætti að miklum mun, að m. k. þar sem nokkur mjólk er til, súkkulaði sjálfsagt og alt þetta dót, sem einu nafni heitir hinu ljóta og leiðiniega nafni: „Bakkelse11 á „móðms“-máli nú. — Og svo mest eða alt sætindasullið, sem hérmeð fyigir; en þar í er auðvitað sykurinn. Margir telja reyndar, að sykur sé holi og nauðsynleg vara, einkum fyrir börn, og með kaffi, seni sé ómissanlegt mjólkurieysingjum, og getur það vel verið nokkuð satt. En þó svo sé, þá er það samt víst, að mikið má minka sykurát. — Og ekki hugsa eg, að fornmenn hér hafi alist upp við sykur og sætindi, og sagðir eru þeir þó verið hafa hraustir á likama og sál. Annars munu menn hafa nægileg sykurefni í nanðsynja- vörunni: matnum. Öll þessi munaðarefni eru þvi engin fo'/snauðsyn og geta tæpast verið holl, þótt gómsæt séu; og hverl með öðru kosta þau stórfé í vanai. árferði, auk heldur þá nú, er þau eru uppsett miklu meir en nokkuð annað, og sum jafnvel að þrotum komin alstaðar. — Náttúrl. eru þessi efni misjafnt keypt og brúk- uð, en allir eyða miklu; og margar og miklar bráðar nauðsynjar mætti kaupa alstaðar, og viða vœrí minni skortur fœðis og klceða, ef verði þessarar sæt- og sælgætisvöru væri að mestu eða öllu varið til nauðsynjaöflunar eða tryggingar, Þegar um þetta er hugsað, nú, eins og tímar, horfur og líknr líta út núna, þá verð- ur, finst mér, varla annað lagl til, og varla á annað fallist, af skynsömu og sanngjörnu fólki, velviljuðu sjálfu sér og öðrum, en að alt eða flest þetta ónauðsynlega, sem vel má oftast og víðast án vera, sé sem mest takmarkað, mink- að eða afnumið, og verði þess varið til þess, að standast betur núverandi og komandi dýr- tíð, og svo geta staðið í skilum við alla, með góðri afkomu og góðri.og heilsusamlegri líðan. En þetta getur als ekki tekist, nema meb almennu

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.