Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1918, Qupperneq 10

Heimilisblaðið - 01.10.1918, Qupperneq 10
154 HEIMILISBLAÐIÐ þennan vin sinn með sér til Oare-búgarðs- ins. — Ursúla hafði hinn mesta hug á sjúkra- hjúkrun; henni brá því fljótlega er hún sá útlitið á Payne. Hann leit út fyrir að vera rúmlega þritugur og varla mundi hann hafa sýnst svo gamall, ef hann hefði ekki verið svona náfölur í andliti og hæruskot- inn. Af viðtali við hann fékk hún að vita, að hann væri nýstaðinn upp úr taugaveiki, sem hefði lagst þungt á hann; varð henni þvi en tíðara um hann en áður og svo jók það ekki lítið á athygli hennar á lion- um, að liann virtist vera eini maðurinn í hópnum, er væri af sama stéttarbergi brot- inn og hún. Hún varð steinhissa, er hann sagði henni, að hann væri Ameríkumaður. »Eg hélt ábyggilega, að þér væruð Eng- lendingur«, mælti hún, »Eg vildi gjarna vita, hvort þér væruð að slá mér gullhamra með því«, og horfði í augu henni. En Úrsúla brosti ekki einu sinni. Hún tók spurningunni i fullri alvöru. wÞað getur gjarnan verið, að mér sé dá- lítið hætt við hleypidómum«, mælti Úrsúla blátt áfram, »en mér finst nú alt af landar mínir vera beztu menn í heimi«. Þetta sagði hún svo blátt áfram og sak- leysislega, að Payne gleymdi alveg að tala i þeim samkvæmistóni, sem hann var van- ur að tala. Honum varð nú smám saman ljóst, að þessi fríða og rólega hefðarstúlka, likust Mariu mey, var öll önnur en konur þær, sem hann hafði ótt að venjast. Við þær var hann vanur að beita hálfgildings ertni eða fagurgala. Úrsúlu svaraði hann hreinskilnislega og var alveg hissa á því, hvað þessi hefðarmey gat dregið huga hans að sér; honum hafði þó fyrst fundist hún vera alt of alvörugefin og siðlót til þess. Seinna um daginn kom Henry Fitch vinur hans að máli við hann. »Það var svo að sjá sem þú hefðir yndi af að tala við þessa reigingslegu drós af háaðlk, mælti hann. »Já, eg hafði verulega skemtun af þvi«, svaraði Payne kæruleysislega, hún er alls eigi svo reigingsleg og þú heldur. Hún er miklu hreinskilnari og meíra blátt áfram í viðtali en flestar aðrar ungar stúlkur, sem eg hefi hitt fyrir«. Ungar stúlkur! Mér gæti nú aldrei kom- ið til hugar að kalla þessa aðalsdrós yngis- stúlku; hún er líkari einhverri miðalda- drotningunni«, sagði Fitch. Og var svo að sjá, sem Payne hefði gaman af þessu til- svari vinar sins. »Drotning frá miðöldunum ! Það var ekki svo vitlaust að hitta á það. Á vorum dög- um er það beinlinis orðin tízka, jafnvel þótt aðalsmannadætur eigi í hlut, að þær gæta eigi tignar sinnar, svo það er sannnefnd andleg hressing, ef maður hittir konu, sem gætir sóma sins; þá finst manni þegar, að maður sé beinlínis kominn 1 betri félags- skap«. Fitch virti nú vin sinn fyrir sér í gegn- um reykinn úr vindlinum, svo tók hann alt í einu vindilinn úr munni sér og lagði munninn að eyranu á Payne. Það var nú alveg óþörf forsjálni, því að allir hinir. sem við borðið sátu, voru í háværri kappræðu um hesta, sem æítu að taka þátt i veðreið- inni daginn eftir«. »Heyrðu«, sagði Fitch, »hvi viltu ekki reyna að ná í hana?« Payne leit upp forviða, en Fitch varð þvi ákafari og mælli: »Þú flakkar eirðarlaust fram og aftur og ert orðinn leiður á lifinu; nú er timi til kominn fyrir þig að njóta næðis. Hún á alt, sem þú getur óskað þér. Hún er af góð- um ættum, er fríð sýnum og á tiu þúsundir punda. Farðu nú undir eins, gamli vinur, og talaðu við hana. Þið bæði væruð fríð hjón!« Þetta sagði Fitch með allmiklum áhuga. Payne lét þetta auðsjáanlega vel i eyrum, en jafnl'ramt virtist hann vera í bobba. Eftir litla þögn svaraði hann »Enskur jarl gefur ekki dóttur sina for- takslaust þeim, sem fyrst kemur, eða eitt- hvað út í bláinn«.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.