Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1918, Síða 16

Heimilisblaðið - 01.10.1918, Síða 16
160 HEÍMILISBLAÐIÐ um fjörutíu eldgígum, sem eru á botni smá- vatna í nánd við borgina; vatnið í laugun- um er 60—80 gr. heitt. Fyr á tímum urðu menn að ferðast til Ítalíu til þess að njóta þessara baða. En nú er leðjan þurkuð og send um allan heim. Á meðal 350 manns, sem lagði af stað frá New-Ýork í byrjun ágústmánaðar 1914, í fnrðalag umhverfis jörðina, voru 33 ekkjur. Eldhúsráð. Fars úr soðnu kjöti. 500 gr. soðið kjöt, er skorið smátt eða sett ásamt 4 matskeiðum af hveiti og 3 eggj- um i gegnum söxunarvél. Því næst skal hræra deigið vel með 1 pela af mjólk og krydda það með salti, sykri og pipar. Blikk- hringur, til þess ætlaður, er smurður og stráð í hann mulduin tvíbökum og deiginu svo drepið í hringinn. Því næsLer hringur- inn látinn í ofninn og farsið bakað við góð- un hita. Farsinu er nú hvolft á fat og kar- töflur í jafningi látnar í miðjuna og brún, vanaleg steikarsósa borin með, sem búa má til úr góðu kjötsoði. Skrítlur. H a n n: Þegar eg gifli mig þér, hélt eg að þú værir hreinasti engill. Hún: Já, þú hefir víst haldið að eg þyrfti ekki að klæðast. H ú n : Næsta vor höldum við silfurbrúð- kaup okkar. H a n n : Við skulum fresta þvi um fimm ár og höldum þá minningardag þrjátíuára- stríðsins. Náungi einn kemur inn í kökubúð og pantar lagköku og fær hana. Hugsar sig lítið eitt um og sendir hana svo fram aftur og fær aðra kökutegund í staðinn. — þegar hann hefir etið kökuna, ætlar hann að fara, en kökusalinn kallar á eftir honum og spjrr hvort hann ætli ekki að borga kökuna. Hinn kveðst hafa skift á henni og lagkökunni. Þá biður kökusalinn hann að borga lagkökuna, en hinn kvaðst elcki borga hana, því hann hefði ekki etið hana, og með það skildu þeir. Kennarinn (við inntökupróf): Hvað heitir þú drengur minn? — Pétur. — Hvað er faðir þinn? — Hann er dáinn. — Hvað var hann áður en hann dó? — Lifandi. Lísa: Eg skal segja þér mannna, hvað stelpan hún María, dóttir bakarans, sagði við mig í gær; hún kallaði hann pabba minn bókaorm, af því að hann les svo mikið. M ó ð i r i n : Hvað sagðir þú þá við hana ? L í s a : Eg sagði, að verri væri hann pabbi hennar, því hann væri kornmaðkur. Bariiabókin „Fanney“ fæst lijá öllum bóksölum viðsvegar um land alt. í henni er fjöldi af ágætum sögum, kvæðum, myndum og skrítlum. Fimm heíti á 50 au. hvert. — Bezti skemtilestur fyrir unglinga í vetur. Dýraverndarinn kernur út annanhvern mán- uð; verð árgangsins er kr. 0,50. Afgreiðslu- maður er Jóh. ugm. Oddsson, kaupm. á Laugavegi 63. Styðjið málstað munaðarleys- ingjanna ! Kaupið málgagn þeirra! Húnvetningar eru beðnir, eins og að und- anförnu, að greiða andvirði blaðsins til herra Krislófers Kristóferssonar á Blönduósi. Útgefandi: Jón Helgason, prentari. Preatsmiðjan Gutenberg.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.