Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1920, Side 8

Heimilisblaðið - 01.05.1920, Side 8
72 HEIMILISBLAÐIÐ »Pabbi, ert það þú?« var aflur sagt með veika málróminum. Faðir hans laut þá niður að rúminu. »Já, eg —« »Þú — þú ert kominn hingað!« Baxter þagði auguablik, en síðan sagði hann: »Já, já, eg er kominn hingað!« Hann varð þá alt i einu yfirkominn af geðshræringu. ísinn bráðnaði af hjarfa hans. »Fyrirgelðu mér, Frank, drengurinn minn, fyrirgefðu mér!« »Elsku pabbi«, svaraði hann i lágum og veikum rómi, »talaðu við hana«. — Baxter gerði sem hann beiddi og sneri sér að konu sonar sins. Hann leit undan, hann blygðaðist sín fyrir þeirri konu. sem hann hafði sýnt svo megna rangsleitni. »Fyrirgefið mér, Elsie«. Nú varð hljótt um stund; þá rétti konan honum hönd sína. Baxter greip nú handlegginn á bókaran- um sínum og leiddi hann út úr herberg- inu. Síðan námu þeir staðar við stigann. »Eg held, að eg skilji nú alt saman«, mælti Baxter hljóðlega. »Það var enginn stuldur«. Bókarinn gamli kastaði hnakka og mælli: »Þér gerð- uð son yðar lieimilisrækan hugsunarlaust, af þvi einu, að hann feldi ástarhug til stúlku, sem til allrar óhamingju var dóltir manns, sem hafði gert yður mein fyrir mörgum, mörgum árum. Þér eruð auðugur að fé — hann var sjúkur og fátækur. Eg tók af nægtum yðar, sem hann hefði átt að eiga ráð á, til að bjarga lífi hans. Það var ekki stuldur«. »Nei«, sagði Baxter, »það var ekki stuldur«. »Pegar eg gerðist svo djarfur að tala við yður um það mikla ranglæti, sem þér sýnduð syni yðar, þá hótuðuð þér því, að þér skylduð óðara reka mig úr þjónustu yðar, ef eg mintist framar á það mál við yð- ur. Mér — mér þótti svo undur vænt um Frank; hann var alt af svo góður mér. Eg útvegaði honum stöðu og þau hjónin bjuggu hjá mér og borguðu mér það, sem þau gátu. En svo lagðist sjúkdómurinn að; ud er hann búinn að vara heilt missiri, áður en læknarnir komust að þeirri niðurstöðu, að holskurður væri óhjákvæmilegur. Á þess- um mánuðum þurfti á peningum að halda- Eg gal ómögulega látið það af hendi rakna. Og eg vissi, að ekki hefði verið lil neins að snúa sér til yðar aftur. Þess vegna túk eg til minna ráða, og eg sagði við sjálfan mig: Það er enginn stuldur, þó að eg taki af nægtum föðursins til að bjarga lifi son- arins, er hann gerði heimilisrækan að or- sakalausu. Uppskurðurinn 'kostaði 500 kr. og hann var gerður fyrir þremur dögunn Nú er Frank á batavegi. — Og nú — að þér viljið kveðja lögrégluna til fylgis vio yður og láta hana taka mig fastan eins og þjóf, þá er eg viðbúinn«. »Nei, nei, eg er í takmarkalausri þakk- lætisskuld við þjófinn — þakklætisskuld, sem eg get aldrei greitt«, sagði Baxter með tárin i augunum. umaró^k Varpar sól burtu vetrarþunga og vekur öllu nýjan þrótt. Brosir senn við oss blómið unga og björt og fögur sumarnólt. Dillar í lofti daga alla sitt »dýrðin-dýrðin« lóan smá, og um oss glæstir geislar falla og gleðin skín á hverri brá. Því hugann það í sólskrúð setur og sorta burtu flæmir ský. Verði þar aldrei aftur vetur, en öll vor hugsun góð og hlý. 1920. Benedikt Gubriel Benedikisson.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.