Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1920, Side 15

Heimilisblaðið - 01.05.1920, Side 15
HEÍMÍLISBLAÐIÐ n stundu stokkinn upp í tré. Bar sat hann og dró dár að manninum. »Eg get ekki lýst því með orðum, hvað þú hryggir mig með framferði þinu«, sagði maðurinn. »Hingað, í hina friðsælu náttúru, hefii eg flúið, vegna ilsku og grimdar mannanna, en þá hitti eg þig fyrir, þorparinn þinn. Þú berð ekki hjarta í brjósti þínu, þar eð þér þótti ekki vænt um litlu, saklausu sólskrikju- ungana, sem voru nýkomnir í heiminn og móðir þeirra var svo ákaflega hamingjusöm. Þú hefir heldur enga sómatilfinningu — finst þér það sæma gömlum, reyndum ketti, að myrða þrjá ofurlitla fuglsunga?« Hann tók stein og ætlaði að henda hon- um í köttinn, en hitti hann ekki, þvi að kötturinn stökk hærra upp í tréð. »Hættu að kasta steinunum«, sagði köttur- inn. »1>Ú getur, ef til vill, einhverntíma hitt mig af klaufaskap. Settu þig heldur á garð- inn og þá skal eg segja þér dálítið«. »Getir þú sagt þér nokkuð til afsökunar, þá gleður það mig«, sagði maðurinn. »Eg ætla alls ekki að afsaka mig«, sagði kötturinn. »Eg hefi ekki gert annað en það, s^m eg hefi leyfi til að gera. En eg ætla að skamma þig, hræsnarinn þinn«. »Fyrir hvað?« sagði maðurinn og settist á garðinn. »Þú ert dáindisfélegur náungi«, sagði kött- urinn. »í gær komstu heim til mín og sóttir mig til að eta mýsnar í kjallaranum þínum. Þér fanst eg vera ágætur köttur og alveg eins og köttur ætti að vera. Þegar eg var búinn að gera það, sem þú ætlaðir mér að vinna, klappaðir þú mér og hrósaðir mér. Þér datt þá ekki í hug að kalla mig þorp- ara. En í dag kallar þú mig öllum illum nöfnum, af því að eg át þrjá snoðna sól- skríkjuungu«. »Músin hafði etið svínslærið milt«, sagði maðurinn. »Heldur þú að þetta sé málsbót fyrir þig?« sagði kötturinn. »Má eg spyrja þig — hvaða hádegismat borðaðir þú í gær?« »Eg borðaði hænuunga«, sagði maðurinn. »Þá áztu«, sagði kötturinn. »Eg heyrði að þú hefðir útvegað þá hjá bóndanum — Og eg sá með mínum eigin augum að vinnu- konan hjó af þeim höfuðið. Viltu nú ekki vera svo vænn og segja mér, hvort þessir ungar hafi etið frá þér syínslæri, eða á ein- hvern annan hátt unnið þér mein?« »Ne-e-ei«, sagði maðurinn. Hann lét steininn, sem hann hafði ákveðið að henda í köttinn, detta úr hendi sinni, setti hann hönd undir kinn og hugsaði. En kötturinn hélt áfram að storka honum: »Má vera að þú viljir einnig vera svo góð- ur að segja mér, af hvaða dýri lærið var, sem þú ætlaðir að láta í magann á sjálfum þér, en fór í músarmaga?« »Það var af svíni«, sagði maðurinn. »Það var það«, sagði kötturinn, »eg þekli vel svínið — það átti heima í bænum fyrir handan og hrein og át og gerði engum mein. Má eg vera svo framur að spyrja — hvað hafði svínið gert þér til bölvunar, svo að þú skyldir vilja eta af því lærið?« »Þetta er nú rétt«, sagði maðurinu. »Svona ert þú«, sagði kötturinn. »Þú hrós- ar mér, þegar eg et mýs, en skammar mig, þegar eg et sólskríkjuunga. Sjálfur etur þú með góðri samvizku bæði svín og hænuunga. Og þó ertu maður og vilt vera hygnari en allir aðrir«. Maðurinn sá að hann gat ekki svarað kettinum. Hann gekk því heim í litla húsið og fór að hugsa um ástandið á jörðunni. En leiður varð hann á þeirri hugsun. (Niðurl. nwst). taka, Sólin bræðir bjarta mjöll, blómum klæðir svartan völl, sálna græðir sárin öll, sefar mæðu-táraföll. g. kr.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.