Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1920, Page 9

Heimilisblaðið - 01.05.1920, Page 9
HEIMILISBLAÐIÐ 73 r 4 4 4 4 4 4 Lára. Saga ungrar sttilku. Eftir Vilhelm Dankau. Bjarni Jónsson þýddi. ► ► ► ► ► I »Eg skil ekki, hvað læknirinn á við«. Eg fékk bréf frá einum vina minna i K. F. U. M. og hann segir mér beinlínis, og nú skuluð þér fá að heyra. Siðan lók hann upp bréfið og las: »Ekki má eg láta mér gleymast að tjá þér þau gleðitíðindi, að hinn ungi og ötuli guðfræðinemandi, Jörgen Gadegaard, sem nú á að ganga undir embættispróf, er orð- inn trúaður maður. Við höfum lengi veitt þvi eftirtekt, að þessum unga manni var að snúast hugur, en höfum eigi þorað að blanda okkur i það mál, fyr en hann gæfi sig fram sjálfur; en svo héldum við dálitla bænarsamkomu hérna um daginn; þá kraupvhann til bænar með okkur og barð- ist góðu baráltunni frammi fyrir Guði. Við urðum allir hljóðir og slóum hring um hann með innilegri bæn til Guðs um það, að hann léli Ijósið af hæðum vinna sigur í hjarta hans, og þess var heldur ekki langt að bíða, að friður Guðs ljómaði af ásjónu hans; þá vissum við það allir, að hann var genginn inn um hið þrönga hlið aftur- hvarfsins og kominn á lífsins veg, því að Jesús segir sjálfur, að vegurinn sé mjór og hliðið þröngt. Hann faðmaði okkur að sér alla og við þökkuðum Drotni, að hann hafði gefið okkur nýjan bróður«. Nú varð steinhljóð, euginn heyrði neitt, nema skrjáfið í bréfinu, þegar læknirinn braut það saman. Þá féllu tár niður kinnarnar á Maren Gadegaard; en þó vissi hún eiginlega ekki sjálf, hvernig á þvi stóð. Ekki gat henni verið það gleðiefni; hún bar miklu heldur einhvern kvíða fyrir þvi, að þeir þar í Kaupmannahöfn heiðu gert drengnum hennar eitthvað, sem væri alt annað en gott. IJótt undarlegt væri, þá skildi Lára bezt þessa sögu læknisins og hún hlakkaði til að hitta Jörgen í tilvonandi jólaleyfi. Þau litu hvort til annars, Lára og lækn- irinn, og það var eins og þau gætu ekki haft augun hvort af öðru. Maren þerraði tárin úr augum sér og mælti, en auðvitað andvarpandi: »Maður ætti þó að mega vona, að það, sem þeir hafa gert drengnum mínum, verði honum til góðs«. »Þetta er ekkert það, sem menn geta gert, kæra Gadegaard«, sagði læknirinn: aÞað er verk Guðs, verk Guðs heilaga anda, ef einhver maður vaknar af andleg- um svefni og rís upp frá dauðum, og sér, að hann er sökum syndarinnar glataður og fyrirdæmdur, en sér jafnframt, að Guð hefir veitt honum náð sína i skírninni og eilífa fyrirgefningu; en skilyrðin fyrir þvi, að maður öðlist þá fyrirgefningu er sjálfsaf- neitun og trúin á Jesúm Krist. Og það sem komið hefir fram við Jörgen, verður að koma fram við oss öll, sem hér erum, ef vér eigum uokkurntíma að sjá Guðs ríki. — Mikill gæfumaður var Jörgen, að hon- um skyldi auðnast að ganga til embættis- prófs með þá trú i hjarla sínu, sem í er fólginn kraftur til að sigra heiminn í oss og fyrir utan oss. Eg hlakka til að hitla Jörgen sem nýbakaðan kandídat og nýbú- inn að snúa sér lil Guðs«. Læknirinn kvaddi, en allir hinir, eldri og yngri, sátu eftir eins og hrædd hjörð, sem hvergi á lieima og gátu eigi náð and- anum til fulls, fyr en læknirinn var farinn. Með hverjum böggli sem Lára fékk, fylgdi venjulega flaska af einhverju vini til reynslu, sin víntegundin í hverri og Láru gat eigi dulist það, að prestur varð æ fegnari hverri flöskunni, sem kom, og gerði sér far um, að komast yfir þær, svo að aðrir eigi vissu og var ekki laust við, að Láru félli það miður.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.