Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 02.12.1935, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 02.12.1935, Blaðsíða 5
HEIMILISBLAÐIÐ 187 Og orðið varð hold og fcann bjó með oss, fullur náð.:r og sannleika; og vér sáum dýrð hars, dýrð sem eingetins Sonar frá Fuður. J6h. 1: 14. Fyrir sjónum vor skammsýnna manna liggur við, að fátæklegar ytri aðstæður vilji skyggja á þá miklu dýrð jóla-viðburð- anna, sem til vor stafa frá gripahúsinu og jötunni í Betlehem. Og þetta virðist einnig rð nokkru leyti eiga við um þá, sem komnir eru til trúar á Jesúm Krist og þrá af hjarta samfélag- við hann. Pað munu varla vera til nokkur orð, er varpi meiri dýrðarljóma yfir hina dásam- legu Betlehems-atburði, en vitnisburður Jóhannesar, er hann segir: »Orðið varð hold — og hann bjó með oss<- Það er kjarni jólabrðskaparins, sem vér scfnvms: :» enn saman til að hugsa um og hlýða á. ó, að Guð næði að gera þann boðskap lif- andi í hjörtum vorum á þessari jólahátíð! Biðjum hann að »úthella yfir oss anda bænar og náðar«, sem geri oss hæf til að halda jól - hæf til að veita viðtöku tár- hreinum boðskap jclanna og sannri jóla- gleði, þeirri hjartanlegu jólagleSi, sem er jafn hrein og heilög, hvort sem hennai’ er notið á ríkmannlegu heimili eða í fá- tæklegu hreysi. Hugsum um þetta: »Orð'ð varð hold« óg heimfærum það til Jesú. Minnumst svo þess, sem sagt er á öðrum stað: »Guö hefir talað til vor fyrir Soninn, þ. e. fyrir munn sins elskaða Sonar«. Einmitt með orðunum látum vér i ljósi hugsanir vorar, tilfinningar og vilja,. Alveg eins er um Krist, orðiö Guðs, sem iklæddist holdi. í Kristi opinberast hugsanir Guðs og vilji * hans, oss-til handa. Já, þar finnum vér hjartalag Guðs til vor. Að sama skapi sem Vér sjáum dýrð hans vér jiekkjum Jesú, þekkjum vér insta eðli Guðs og hver hugur hans er til vor. »Enginn hefir nokkurntíma séð Guð; en Sonurinn eingetni, sem hallast að brjósti Föðursins, hefir veitt oss þekkingu ú honum.« Eins og Jesús segir: »ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið«, eins er hann líka »Orðið«, hið eilífa Orð, Guðs eiginn Sonur, kominn úr skauti Föðursins, til að opin- bera oss Guð. Það er hið mikla jóla-undur, sem var r

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.