Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 02.12.1935, Blaðsíða 12

Heimilisblaðið - 02.12.1935, Blaðsíða 12
194 HEIMILISBLAÐIÐ »Nafarinn«, fór nú að tygg'ja og leii hugsandi út. »Ég heiti Birgitta,« sagði litla stúlkan. »En hvað heitir þú?« »Hm!« Hann hugsaði sig ofurlítið um. »Ég heiti Níels,« sagði hann hikandi. »Pað er nú ekkert sértaklega fallegt nafn, en þú átt víst ekki neitt betra! Ertu svo ekki bráðum búinn Níels? Pú hlýtur nú að hafa borðað nóg!« »Nú á ég aðeins einn bita eftir,« taut- aði hann og tók tvo stóra munnbita í snatrí og flýtti sér að gleypa þá, og stinga því sem eftir var upp í sig. »Svona,, nú er ég; búinn.« »Komdu svo,« sagði hún og gekk á- und- an honum. »Mundu að slökkva ljósið!« Hún tók í hönd hans og leicldi hann gegn um eldhúsið inn í herberei. sem auð- sjáanlega. var ætlað börnum, »Hvað eigum við é.ð leika okkur?« spurði hún og horfði áhyggjufull á hann. »Ja, ég veit svei mér ekki,« svaraði hann hálf vandræðalega og klóraði sér í höfðinu. »Þú verður nú að finna upp áeirhverju,« sagði hún óánægjulega. »Áttu enga n>yndabók?« »Ö, jú, hérna eru margar, komdu, svo setjumst við á g'ólfið, fyr:st þú, og svo sesí ég í kjöltu þína, eins og hjá honum pabba.« »Nafarinn« fann til einkennilegra til- finninga og' hann fann þarna litlan barns- líkama hajla sér upp að sér í fullu trausti. »Átt þú enga myr.dabók? Þú mátt gjarna eig;a þessa. bók. Ég fæ áreiðanlega nýja á morgun,« »Svo! Er afmælisdagurinn þinn morgun?« »Guð minn góður! Já, það er víst satt.« »Hvar hefir þú jólatré? Heima hjá pabba þínum og mömmu?« Hann klappaði á kinn barnsins. »Nei, litla stúlka, ég' á hvorki föður né móður, og' engan sem hugsar um mig á aðfanga- dagskvöld.« »Veslings Níels! Ég skal hugsa um þig! Þú skalt koma til okkar; við höfum það svo skemtilegt. Fyrst förum við til fólks- ins í bænum — þú veizt að pabbi á sveita- bæ hérna rétt bak við — og þar er hafr stórt jólatré, og pabbi heldur svo fallega ræðu, og svo bjóðum við öllum »gleðileg jól« og gefum þeim öllurn gjafir. — Hvers- ^ vegna átt þú enga móðir?« spurði hún alt í einu. »Hún er dáin, litla vina, fyrir löngu.« »Veslings Níels!« Hún strauk hönd hans með mjúkurn fingrum sínum. »Þá get ég vel skilið, að þú vitir það ekki, að bjúgu eiga að sneiðast þunt. — Átt þú ekki held- ur pabba?« Hann hristi höfuðið. »Pabbi minn er svo góður, og á aðfanga- dagskvöld talrr hann svo fallega. við okl:- ur og svo dönsum við kring um jólatréð.- Hún geispaði svolítið og þrýsti sér fastar að i onum. »Svo talar pabbi um hvaða þýð ingu jólin hafa fyrir okkur, cg svo biðui' hann fvrir öllum sjúkum og fyrir föng- u,m —.« »Nafa.rinn« kiptist við ofurlítið. Hún misskildi hreyfinguna. »Hann gerir það vissulega,« sagði hún áköf. »Mamma * sagði mér það sjálf í dag.« »Það er vel gert af honum,« tautaði hann lágt. »Pabbi er altef góður,« sagð' hún ákveð- in. Hún geispaði aftur og hélt svo áfrarn hálf sifjuð: »Svo blessar pabbi yfir okkur öll og segir: »Friður á jörðu og-------ég er svo sifjuð.« Rödd hennar smálækkaði, og litlu aug- un hennar lokuðust, »Nafarinn« sat grafkyr og þorði varla að drag-a andann. Straumar af óþektum tilfinningum streymdu um huga hans, þar sem hann starði fram undan sér, og hugs- aði um orð litlu stúlkunnar. »Friður á jörðu!« Já, Guð gæfi að hann gæti fundið frið. Hann leit á Birgittu litlu sem hvíldi svo rótt við brjóst hans, og innileg ástúð greip hann, er hann sveip- aði snjáða jakkanum sínum utan um hana. 0 Alt- það, sem hafði dregið hann inn í þetta <«

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.