Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 02.12.1935, Side 14

Heimilisblaðið - 02.12.1935, Side 14
196 HEIMILISBI, AÐlÐ < lengi bui'tu. Eftir nokkrar mínútur lyfci »Nafarinn« liöfði og litaðist um. Petta var skrautlegt herbergi með bókaskápum. Hann stóð upp og gekk að þeim. Undir glugganum stóð skrifborð, og áþvílábréfa- pressa og undir henni tíukróna seðill! Hann lyfti bréfapressunni varlega og tók seðilinn upp. En í stað þess að stinga honum á sig hélt hann á honum í hend- inni. Honum varð litið á mynd er stóð á skrifborðinu. Inni í rammanum brosti Bir- gitta litla móti honum. Hann stóð ofurlitla stund, og horfði á þetta vingjarnlega barns- andlit, svo komu fastir drættir í andlit hans. Hann lyfti bréfapressunni aftur, og lagði seðilinn þar sem hann áður var, Svo sneri hann sér við og mætti þá hin- um alvarlegu augum prestsins. »Eg ætla að hjálpa yður! Ég sá til yðar,« Inni í borðstofunni stóð stór og þrek- inn maður. »Þetta er bílstjóri minn,« sagði prestur og sneri sér að honum og mælti: »Hér er Níels Andersen er ég hefi tekið. Þér verðið að muna að hann er alveg óvan- ur sveitastörfum svo þér verðið að vera þolinmóður við hann fyrst í stað. Það væri máske réttast að hann byrjaði ekki að vinna fyr en eftir jól, en þér sýnið honum alt og skýrið fyrir honu,m hvað hann á að gera. — Og svo sjáið þér um fötin sem ég talaði um.« »Já, herra prestur! Já, komið svo meó mér, Andersen.« »Góða nótt!« Presturinn kinkaði vin- gjarnlega kolli til þeirra er þeir fylgdust að út í myrkrið. Það var komið aðfangadagskvöld. Úti í bænum glóðu ljósin á geysistóru jólatré, og alt vinnuflókið ásamt bústjóranum var saman komið í stofunni. Við hlið hans stóð Níels, áður »Nafarinn«, dálítið óframfær- inn í þessum óvenjulegu kringumstæðum, en með það á tilfinningunni að nú hefði honum loks boðist tækifæri. Hann var klæddur hlýjum, gráum fötum, er bústjór- inn hafði keypt handa honum um daginn. Og honum fanst, þar sem hann stóð rnd- ir hátíðaski eyttu jólatrénu, að i m hann streymdi löngun til að reyna af fremsta megni, að vinna sig áfranr á heiðarlegan hát-t. I Presturinn gekk nú að trénu, en frúin og Birgitta stóðu skamt frá. Hann talaði fagurt og látlaust um jólin og þýðingu þeirra. Það hafði djúp áhrif á Níels, sem aldrei hafði heyrt það fyr, eða að minsta ’kosti aldrei skilið það fyr en nú. Svo endaði presturinn með þessum brðum: »Og fram gegnum aldirnar lýsa þessi orð, sem fremur öllu öðru heyra jólunum til og sem fært hafa gleði og blessun inn á miljónir og aftur miljónir heimila: »Frið- ur á jörðu!« — Gleðileg jól öll!« Þungt andvarp leið upp frá brjósti Ní- elsar, eins og gömlu hlekkirnir væru að springa, svo friðurinn gæti komist þar að. Prestsfrúin tók nú gjafirnar og lét Bir- gittu útbýta þeim. Þar var eitthvað handa öllum, föt, pípur, tóbak og vindlingar og loks tók presturinn lítinn böggul og hvísl- aði einhverju að Birgittu, en hún hljóp aí stað til Níelsar með hann, lagði hann .■ lófa, hans og hvíslaði: »Á morgun fáum við bjúgu.« I bögglinum var myndabókin er Birgitta hafði lofað honum, Ijósmynd hennar er staðið hafði á skrifborði prestsins og loks tíukrónaseðill, og á pappírsblað hafði presturinn skrifað: »Það sem við vitum tveir einir, fá engir aðrir að vita, — Heill og hamingju í fram- tíðinni, Níels Andersen, og gleðileg jól!« Þegar Níels lagðist til hvíldar þetta kvöld í litla vinnumannaherberginu, skildi hann hvað orðin: »Friður á jörðu«, höfðu að þýða fyrir mannkynið. Myndin af Bir- gittu litlu stóð á borðinu, og á það horfði hann síðast, er hann slökti ljósið og lagð- ist til svefns. Þ. F. þýddi. PRENTSMIÐJA JóNS HELGASONAR <1

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.