Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1951, Page 2

Heimilisblaðið - 01.03.1951, Page 2
30 HEIMILISBLAÐIÐ F r i t z R u z icka ÉG KANN AÐ UNGUR rnaður gekk um gólf "í forsal vetrargistihússins. Hann virti fyrir sér 'meiV sýnilegum áhuga ungu konurnar, sem sátu við bar- inn og úti við stóra gluggann. Athygli hans hafði beinzt sérstak- lega að einni konunni. Ef til vill var hún þéirra elzt, en hún var falleg — meira að segja mjög falleg — og hún' var ákaflega tíguleg í fasi. Auk þess var hún ein saman. Hún hafði til að hera alla þá eigin- Ieika, sem gátu freistað ungs manns til að setjast við lilið hennar. Þess vegna settist hann. Fáeinar mínútur liðu. Þá gerði hann fyrstu tilraunina og sagði, samkvæmt gam- alli og þrautreyndri forskrift: — Finnst yður veðrið ekki vera yndislegt í dag? Það er ekki svo kalt, að maður veigri sér við að fara á skíði — giaða sólskin! Konan brosti og sagði: — Já, það er verulega gott veður í dag! Múrinn var rofinn. Hann færði sig nær henni og hélt áfram: — Skelfileg snjókoma hefur þetta annars verið síðustu dagana. Engin leið að koma út fyrir dyr! En með- al annarra orða — þér verðið sjálf- sagt á dansleiknum í kvöld? — Já, svaraði hún brosandi. Auð- UeijfnilUblalií Útgef. og ábm.: Jón Helgason. Blaðið kemur út mánaðarlega, um 180 blaðsiöur á ári. Verð árgangsins er kr. 15.00. í lausa- sölu kostar hvert hlað kr. 1.50. — Gjalddagi er 14. apríl. — Afgreiðslu annast Prentsmiðja Jóns Helgasonar, Bergstaðastr. 27, sími 4200. Pósthólf 304. Prentsmiðja Jóns Helgasonar. LESA I LÓFA vitað! Ég iilakka ákaflega mikið til kvöldsins. Ungi maðuririn færði sig ennþá nær hénni. Ilann var upptendraður af lirifningu. Hann hafði ekki þor- að að gera sér vonir um, að það yrði svona auðvelt að kynnast þess- ari töfrandi fögru konu. — Kannske við sjáumst þá aftur í kvöld? Konan kinkaði kolli, og um varir hennar lék hros, sem gaf mikil fyrirheit. — Það er áreiðan- legt! — Ég hlakka til að hitta yður aftur! — Mín cr ánægjan! Hún leit allt í einu alvarlegum augum á hann. Ég vissi, að við inundum hittast í kvöld, áður en þér sögðuð eitt ein- asta orð við inig. Og ég vissi meira. Ég vissi, áður en við hittumst, að við mundum einhverntíma hittast — einhvers staðar. Ég er nefnilega forlagatrúar. — Hvað eigið þér við — forlaga- trúar? Ungi maðurinn vissi ekki sitt rjúkandi ráð og var í fyrstu orðlaus. Að lokum jafnaði iiann sig aftur eftir undrunina og hélt áfram sam- ræðunum, sem nú liöfðu beinzt inn á aðra braut en hann hafði órað fyrir. — Það var kynlegt — þetta sem þér sögðuð. Þér eigið þá í raun og veru við, að það hafi legið fyrir okkur að hittast einhverntíma ? Þér hljótið að vera yfirnáttúrlegum gáf- um gædd — þér eruð þá skyggn! Konan hrosti. Miklti meira en það! Ég veit fieira en fólk yfirleitt. Til dæmis kann ég líka að lesa í lófa. Þér viljið kannske lofa inér að líta í lófann á yður — ef þér þorið það. — Ef ég þori? Unga manninum var ekki farið að standa á sania, en það inátti hann auðvitað ekki viðurkenna. Hann rak upp hlálur og rétti henni hægri höndina. Konan virti gaumgæfilega fyrir sér línurnar í lófa hans. Hún hugs- aði sig um rétt sem snöggvast. Svo strauk húii hendinni yfir enni sér og sagði hægt með hálflokuð augu: — Ég sé, að þér eruð tutlugu og níu ára gainall. Þér , eruö í góðri stö'ðu, verkfræðingur í málmverk- smiðju. Þér eruð ókvæntur og eigið heima í Stokkhólmi. Ungi maðurinn starði til skiptis á konuna og iiöndina á sjálfuni sér með opinn munninn. Það er rétt — alveg rétt! En ... — Bíðið þér við, ég sé miklu fleira! Þér eigið þrjú systkini, eina systur og tvo hræður. Faðir yðar á verksmiðju í Kolding, og þér eigið innan skainms að taka að yður stjórn hennar .. . — Já, já, stamaði ungi maðurinn. Þetta er ótrúlegt — það er blátt áfram óhugnanlegt! Hann studdi hinni hendinni á hjartastað. Konan lét engan hilbug á sér finna, en hélt áfram: — Þér eruð trúlofaður. Unnustan yðar heitir Gerða, húh er átján ára gömul, ljós- liærð og mjög lagleg. Þér kynntust henni í Bostad í fyrra. Ilún var þar á tenniskeppninni með föður sinum. Þér hafið enn ekki hitt móður hennar ... Ungi maðurinn þurrkaði svitann af enninu. Hann var mjög æstur. — Fyrirgefið, sagði hann. Ég á ekkert orð til. Þetta eru hreinustu galdrar ... Hann reyndi að draga til sín höndina. — Augnablik! Ég er alveg að verða liúin. Já — faðir unnustunn- ar yðar á heima í Árósum. Hann er skurðlæknir .. . — Það er auðvitað rétt líka, stundi ungi maðurinn. Þetta ev hræðilegt! Þér vitið allt. Kannske vitið þér einnig, hvar tengdamóðir mín tilvonandi er núna? — Já — hún er ekki í Árós- UIIl .. . UNGI maðurinn stökk ánægjulega á fætur og dró andann léttar. Skakkt! hrópaði hann. Guði sé lof< þar skjátlaðist yður loksins! Mér var hlátt áfram farið að líða illa. Það var farinn að fara um mig hrollur- Frh. á hls. 54.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.