Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1951, Síða 12

Heimilisblaðið - 01.03.1951, Síða 12
40 Stuart Cloete Maðurinn, sem blekkti konuna sína EGAR Pétur Moster þurfti að brjóta heilann um eitthvað, var hann vanur að kveikja í pípu sinni og setjast undir stóra möndlutréð, sem var til hægri fyrir fruraan hús- ið. Þar sat hann, unz hann hafði komizt að ákveðinni niðurstöðu. Pípan var stór og silfurbúin. Hann hafði erft hana eftir föður sinn, þegar liann var tuttugu og eins árs. Faðir hans hafði sagt: — Flýttu þér aldrei, Pétur. Á morgun er nýr dagur. Gefðu þér tíma til að reykja og setjast út í garðinn og hugsa málið. Og það var þess vegna, sem Pét- ur kveikti í pípunni í dag — hann þurfti að taka ákvörðun í mikil- vægu máli. I þetta skipti var það stúlka, mjög lítil stúlka, en yndisleg eins og gaz- ella. Hún var falleg og hann elsk- aði liana. Það var vandamálið. Fyr- ir einu ári var enginn, ekki einu sinni hann sjálfur, er hafði áhuga á Grétu litlu. En nú gegndi öðru ináli. Kona virðist þroskast eins og ávöxtur. í mörg ár var Gréta óþrosk- uð eins og ávöxtur, og enginn leit við henni — en svo var hún allt í einu orðin þroskuð. Ávöxturinn glóði í sólskininu, rauður og girni- legur, og allir, sem sáu hann, réttu fram hendurnar eftir lionum. Pétur settist liægt á hekkinn, kveikti í pípu sinni og fór að hugsa málið. Henni leizt vel á liann. Já, en það voru margir aðrir menn, sem henni leizt vel á. Hann komst vel áfram, en það gerðu líka margir aðrir. Hann var ekki ólaglegur, en það voru margir fallegri. Að einu leyti var hann fremri keppinautum sínum. Hann var stór. Stærri og sterkari en allir hinir. En mundi svona lítil stúlka kæra sig nokkuð um það? Mundi liún vera hreykin yfir því, að hann gœti lyft tvö hundruð punda poka úr vagni, eins og það væri smápakki? Ef til vill yrði hún hrædd? Hann varð að gera áætlun, en það gerðu sjálfsagt hinir líka. Þess vegna varð ráðagerð hans að vera bezt. Hann reyndi að líta á málið frá sjónarmiði Grétu. Grétu þótti ákaflega vænt um móður sína, sem var ekkja. Annað fólk skipti sér yfirleitt Iítið af henni. Marta Fourie var einnig Iítil og líktist á sinn hátt ávexti. Hún var eins og gamalt, súrt og skorpið epli. Það vissu allir nema Gréta. Móðir Grétu var lykillinn að ráða- gerð Péturs. Strax í kvöld ætlaði liann að ríða á bezta hestinum sín- um til Grétu og Mörtu Fourie. Hann ætlaði ekki að hera fram hónorð. í þess stað ætlaði hann að spyrja Mörtu, hvort hún vildi verða ráðs- kona hjá honum. Já, hugsaði hann, ef ég er neydd- ur til að taka móðurina til að fá Grétu, þá tek ég þær háðar. Það er eins og þegar maður þarf að kaupa sér góðan ökuklár. Það selur enginn klárinn einan. Maður neyð- ist til að kaupa vagninn og öll ökutækin. Jú, ég verð að ná í móð- urina. Gömul móðir með fallega dóttur, sem hleypur um eins og folald við hlið liennar. Veikasta hlið stúlkunnar var ást hennar til móðurinnar. Móðirin hjó aftur á móti til ágætan mat. Hann reykti ákaft. Hann ætlaði að freista hennar með nýrri eldavél. Hann hló. Sú gamla kynni að verða nöldrun- arsöm á stunduin. En karlmaður gat fyrirgefið mikið, þegar hann fékk góðan mat að borða. Hann var svo hrifinn af ráðagerð sinni, að hann gleymdi að horða, en hann ætlaði að þvo sér, ekki að- eins andlit og liendur, lieldur allan skrokkinn. Og hann ætlaði að setja brillantín í hárið, svo að hann ilm- HEIMII. ISBLAÐIÐ aði eins og blómabeð. Konur kunnu að meta slíkt. Það mundi ekki að- eins gefa til kynna snyrtimennsku lians, heldur einnig hver tilgangur væri ineð förinni. Karlmaður klædd- ist ekki sunnudagafötuin og reið uppáhaldshesti sínum án einhvers tilefnis. Hann hreinsaði pípu sína og reis á fætur. Ilann hélt út i liesthús og setti reiðtýgin á hestinn. Svo hatt liann hestinn fyrir utan dyrnar. Nú var allt tilhúið. Hann átti aðeins eftir að raka sig og fara í bað og auk þess að gefa hænsnunum. Þegar þessu var lokið, gat hann lagt af stað. Hann hitaði vatn og tók fram fötin sín. Roland, hesturinn, virtist hafa það á tilfinningunni, að eitthvað óveuju- legt væri á seyði. Hann stóð kvrr, þegar eigandinn sté á nak honiini- Pétur reið hægt til þess að svitna ekki. Og á leiðinni íhugaði liann, hvað hann ætti að segja. llann bjo til margar ágætar setningur í hug- anum. En þegar hann stóð fyrir framan dyrnar og Gréta opnaði fvrir lionum, hafði hann gleymt þcim öllum. —- Ég er kominn til þess að heilsa upp á ykkur, sagði hann. »• — Það er gaman að fá heimsókn. Tjóðraðu hestinn og komdu inn fyr' ir og fáðu kaffisopa, svaraði Gréta. — Viltu kaffi? spurði Marta Fourie, þegar hann kom inn. Það er bara gaman að hita kaffi handa einum ennþá! — Þökk fyrir, Marta. Manni þyk' ir vænt um, þegar einhver hitar fyrir liann kaffi. Það er ekki verk fyrir karlinann að laga kaffi. En síðan nióðir mín dó, hef ég lagað þúsund kaffibolla. Nei, það er ann- að en gaman að vera munaðarlaus og einn í heiminum. Samtalið varð fjörugt, og liann gat hrátt nefnt eldavélina á nafn. — Ég þarf að kaupa mér nýj8 eldavél, sagði hann skömmu geinna- Ég hef hugsað mér að kaupa nýj' ustu gerð. Hún eyðir litlu eldsney11 og er skjannahvít utan. Auk þeS® er í henni vatnshólf úr kopar. er þægilegt að geta alltaf haft heilt vatn. En hvað á karlmaður að ger®

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.