Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1951, Síða 14

Heimilisblaðið - 01.03.1951, Síða 14
42 heimilisblaðið og áður. Og nú vár sá tími kominn, þegar pípan koni að gagni. — Hvert ætlarðu með þessa stóru pípu? spurði Gréta. — Þetta er injög gagnleg pípa, vina mín. Ég erfði hana eftir föð- ur minn. Ég reyki ekki úr henni, nema við sérstök tækifæri. — Og við hvers konar tækifæri er það, Pétur? spurði Gréta. Hann sá, að henni þótti gaman að. — í þetta skipti er það dálítið, sem ég þarf að ráða fram úr, svar- aði hann. Fyrri hluti ráðagerðar hans hafði heppnazt. Hann hafði eignazt Grétu, sem hann elskaði heitar með hverjum deginum, sem leið. En móðir hennar var líka hjá honum og hún fór æ meira í taug- arnar á honum. Það þýddi ekkert að biðja hana að fara, því þá inundi Gréta verða á móti því. Þess vegna varð hann að upphugsa nýtt ráð. Hann settist því undir möndlutréð og reykti þrjár pípur af sterku tóþaki. I fyrstu datt lionum ekkert í hug, en svo hugkvæmdist honum nokkuð. Hann fór að hlæja, svo einfalt var það. Hann átti hara að halda áfrain á sömu hraut og hann byrjaði. Að- eins að ýkja það ennþá meira. Það inundi hjálpa Grétu til að finnast móðir sín ómissandi. Hann ætlaði að byrja strax. Honum gafst tækifæri þá um kvöldið'. Gréta hafði húið til mat- inn, eins og hún gerði stundum, og hann sagði: — Maturinn er góð- ur, Gréta, en engin ung stúlka get- ur búið til eins góðan mat og móð- ir hennar. Þess vegna er ég lukk- unnar pamfill. Ég á konu, sem ég elska, og móður, sein veit, að góð- ur matur er nauðsynlegur hverjum karlmanni. Gréta móðgað'ist og sagði ckki orð það sem eftir var dagsins. Hann hugsaði: — Þetta er ágætt! Nú fer hún að hugsa! Inæstu viku fór liann í kaupstað- inn og keypti útsaumað sjal fyr- ir tengdamóður sína. Grétu gaf hann tvo metra af rauðu silkibandi. — Hvað á ég að' gera við þetta? spurði hún. — Ég hélt, að ungum stúlkum þætti gaman að fá silkiband. — Ég er gift kona, og ég vil eign- ast sjöl og kjóla. — Já, ég veit það góða mín, en ég átti ekki peninga nema fyrir einu sjali, og mér fannst ég yrði að gefa móður minni það. Það er ekkert of gott fyrir hana! Marta var hreykin. Hinn nýi son- ur hennar fór aldrei til bæjarins án þess að gefa henni eitthvað. llann gaf Grétu líka, eu það voru ávallt hlutir, sem menn eru vanir að gefa börnum ■— brjóstsykur, myndabækur og silkibönd! Og hann heilsaði alltaf fyrst móður hennar og sagð'i, að liann mundi hafa keypt meira handa’ lienni, ef hann hefði getað. Hún var mjög ágjörn, og liann gat sér ávallt til um óskir hennar. Veturinn var í nánd, og hann hafði ágæta ráðagerð í huga. Dag nokk- urn var norðvestan strekkingur, og þegar hann kom heim, var hann með þykka vetrarkápu handa tengda- móð'ur sinni. — Ég hefði getað fengið tvær þynnri kápur fyrir sama verð, en mér fannst, að móðir mín ætti skil- ið að' fá það bezta, sem völ væri á. Gréta getur verið í gömlu káp- unni sinni. Hún er ung og blóð- heit. Maður á að hlúa að gamla fólkinu. GRÉTA. sagði ekkert. En á hinum köldu vetrardöguin, er í hönd fóru, hyrjaði deigið, er hann hafði hnoðað, að súrna. Það súrnaði svo inikið, að Marta Fourie fór að kvarta undan Grétu. — Það er furðulegt, að Gréta, sem alltaf hefur verið svo góð við mig frá því hún var barn, er orðin vond og ótuktarleg. Hvernig er hún við þig, drengur minn? — Jú, stundum er hún dálitið uppstökk, en ég hugga mig við það', að ég á þig að, sem alltaf ert svo blíð og góð. Maður getur ekki fengið allt í lífinu. Hún hefur bráðum fengið nóg, hugsaði Pétur. Elsku Gréta hans var orð'in geðvond eins og piparkerling. Honum þótti það leitt liennar vegna, en hann gat ekki stillt sig um að hlæja að móður hennar, er tók við gjöfum hans og kvartaði undan dótt- ur sinni. Það rann upp ljós- í huga Grétu. Hún fór að skilja, að móðir hennar var sjálfselsk og drottnunargjörn. Og hún var undrandi yfir þvn hvernig Pétur hegðaði sér. — Þú hefðir heldur átt að kvæn- ast mömmu, sagði hún dag nokkurn. — Mig langaði ekki til að' kvæn- ast móður þinni. En á ég að segja þér leyndarmál? Þú verður hara að lofa inér því að taka það ekki nærri þér? -— Já, ég Iofa því. — Ég var einu sinni að liugsn um að kvænast henni. En mér þykir vænt um, að ég gerði það ekki- Það er miklu hetra, eins og það er. Hún hýr til matinn, og einn góð' an veðurdag crfir þú hana, og svo ertu konan mín — fallegasta stúlk- an í dalnum. Hún stappaði niður fótunum horfði á hann leiftrandi auguin: — Allir menn eru skepnur! En þu ert langverstur, Pétur! — Nei, þeir eru til verri. En einn góð'an veðurdag lagast þetts allt! — Það lagast ekki fyrr en manim8 fer héðan! — En hvernig ó ég að biðja hana að flytja, þegar ég hef beðið hana að koma hingað? — Ég hef engu lofað henni! Og ég skal koina henni héðan burtu- Það er skylda hvers manns að standa með konu sinni en ekk' tengdamóður. ■— Þú mátt ekki tala þannig. Móð' ir þín er ágæt kona! — Já, hún er ágæt. En hún et eins góð, þótt hún sé einhvers stað' ar annars staðar ■— til dæmis í kus1 sínu í kaupstaðnum. Það er h®?1 að' segja leigjendunum upp nieð þriggja mánaða fyrirvara. — Já, við gætum heimsótt hana- Til dæmis á sunnudögum eftir inessu. Þá gæti hún matreitt fyr,r okkur. — Er ég gift manni eða inaga • spurði Gréta. Manni? Þú ert ekk1 maður, heldur sauður, nieð’ Sra ugan úlfsmaga!

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.